Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Qupperneq 8
Vikublað 15.–17. nóvember 20168 Fréttir
Þ
órólfur Júlían Dagsson hefur
kært tvo menn fyrir líkamsárás
sem átti sér stað um hábjartan
dag í Borgartúni þann 13. júlí
síðastliðinn. Vitni að árásinni gáfu
skýrslu nú fyrir helgi. Þórólfur rotaðist
við árásina en hún var að hans sögn
tilefnislaus en móðir hans varð vitni
að því þegar hann var sleginn niður.
Var hún í áfalli eftir að hafa séð son
sinn liggja í blóði sínu. Þórólfur var í
3. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi
og er kafteinn Pírata á Suðurnesjum.
Hann er reyndur sjómaður og skip
stjóri til margra ára. Segir hann
árásina hafa skemmt mikið fyrir sér,
bæði andlega og þá hafi hann misst af
stóru atvinnutækifæri á meðan hann
var að jafna sig á meiðslunum.
„Er ekki allt í lagi með ykkur?“
Í samtali við blaðamann lýsir Þórólfur
atburðarásinni á þá leið að hann
hafi verið farþegi í bíl móður sinnar
og voru þau að aka niður Borgartún
í töluverðri umferð þegar bílstjóri
svarts jeppa freistaði þess að aka þvert
fyrir þau og inn á næsta bílaplan.
„Það var ekki mögulegt að hleypa
þeim í gegn, við vorum alveg uppi við
annan bíl.“
Þórólfur segir farþega jeppans hafi
tekið þessu illa og fengu þau mæðgin
fúkyrðaflauminn yfir sig. Umferðin
mjakaðist loks áfram og þegar öku
maður jeppans tók beygjuna inn á
bílaplanið fyrir aftan þau henti far
þegi jeppans einhverju í bíl þeirra
mæðgina. Við það heyrðist töluverð
ur dynkur og óttaðist Þórólfur að bíll
inn hefði orðið fyrir hnjaski.
„Ég fór strax út úr bílnum til að
athuga hvort það hefðu orðið ein
hverjar skemmdir. Tveir menn stigu
þá út úr jeppanum, annar þeirra var
Kristens Brynjar Kristensson en hinn
þekkti ég ekki,“ segir Þórólfur. Í aftur
sætinu var Sævar Hilmarsson en
hann tók ekki þátt í árásinni.
„Ég var eðlilega reiður og kallaði til
þeirra: „Er ekki allt í lagi með ykkur?“
Ég sá strax að þeir voru í annarlegu
ástandi. Ég vissi ekki á þessum tíma
punkti hverjir þessir menn voru og
hugsaði að þeir gætu átt við geðræn
vandamál að stríða og þyrftu jafnvel
hjálp en eftir á að hyggja hljóta allir
sem hegða sér með þessum hætti að
eiga við vandamál að stríða. Ég ákvað
því að hörfa.“
Þórólfur segir að annar mannanna
hafi öskrað: „Djöfull ert þú harður að
stíga út úr bílnum“ og fylgdi högg í kjöl
farið. Þórólfur lagði þá á flótta en segir
mennina hafa fylgt honum fast á eftir.
„Hann sló mig eins fast eins og
hann gat í andlitið og ég sá bara
svart og rotaðist,“ segir Þórólfur. Það
fossaði blóð úr nefi hans. „Vitni sögðu
að þau hefðu séð að sparkað var í höf
uðið á mér þar sem ég lá í götunni en
þeir létu sig síðan hverfa.“
Menn sem þurfa á hjálp að halda
Eftir árásina var Þórólfur með tölu
verða áverka. „Móðir mín tók þetta
nærri sér og það fékk á hana að verða
vitni að árásinni.“ Þórólfur var frá í
margar vikur vegna bakmeiðsla, en
hann stundaði sjómennsku á þessum
tíma og hafði verið boðið að eignast
hlut í bát ásamt félaga sínum með því
að veiða upp í hlutinn.
„Ég og félagi minn vorum komnir
með munnlegt samkomulag um að
við myndum vinna saman með það
að markmiði að eignast þennan bát.
Það datt alveg gjörsamlega upp fyrir.“
Þórólfur segir ólíðandi að ekki sé
hægt að stöðva menn sem séu til vand
ræða í samfélaginu. Þetta séu menn
sem þurfi á hjálp að halda og eigi ekki að
fá að leika lausum hala í samfélaginu, í
sumum tilfellum virðist engu skipta
þótt menn séu á skilorði vegna annarra
brota. Bendir hann á að lögreglan hafi
myndskeið af árásinni undir höndum.
Þórólfur var frá vinnu í nokkrar vikur
vegna árásarinnar og kveðst ekki enn
kominn yfir erfiðasta hjallann.
„Ég er ekki búinn að jafna mig and
lega á árásinni. Ég hef ekki haft tíma
til þess að fara í gegnum þessa ferla,
og sálfræðimeðferðir eru ekki greidd
ar niður eins og tímar hjá geðlæknum
og því hefur verið erfitt um vik að
sækja áfallahjálpina sem nauðsynleg
er fyrir mig og móður mína.“ n
Barinn til
óBóta fyrir
framan
móður sína
n „Sá bara svart og rotaðist“
n Missti af stóru atvinnutækifæri
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
„Djöfull
ert þú
harður að stíga
út úr bílnum
Búinn að kæra
Þórólfur segir að
árásin hafi átt sér
stað í Borgartúni.
HVAR ER SÓSAN?
Það er aðeins eitt sem er ómissandi í pítu og það er pítusósan.
Kannski pítubrauðið líka.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
MagnesíuM Kísill
Hin fullkomna tvenna
fyrir Heilsu og fegurð