Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Qupperneq 4
Vikublað 29. nóvember–1. desember 20164 Fréttir
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
kjúklinga
vefjur og borgarar
Níu misþyrmdu
mökum sínum
Tólf líkamsárásir áttu sér stað
nú um helgina, þar af voru níu
einstaklingar sem misþyrmdu
mökum sínum með einum eða
öðrum hætti. Vekur þessi tala
óhug og sá lögregla ástæðu til
að taka það sérstaklega fram um
helgina.
Aðfaranótt mánudags var
róleg hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu en einn öku-
maður var stöðvaður grunaður
um akstur undir áhrifum og þá
reyndi einn ökumaður að stinga
af eftir að hafa valdið árekstri.
Einn maður var handtekinn síðla
nætur vegna rúðubrots en ástand
hans var frekar bágborið. Hann
var vistaður í fangageymslu.
Trúðar elta
börn í Grafar-
vogi
Trúðafaraldur er til rannsóknar
í Grafarvogi. Trúðar hafa hrellt
grunlaust fólk og hefur lögregla
málin til rannsóknar. Þeir hafa
meðal annars barið á glugga hjá
fólki í myrkri. Þá eru dæmi um
að trúðar hafi elt börn í hverfinu.
Vísir greindi frá því á mánudag að
nokkrir einstaklingar liggi undir
grun. Trúðaæði hefur gengið yfir
heimsbyggðina að undanförnu.
Tilkynningar til lögreglu um fólk,
sem klæðist trúðsfötum og hrellir
annað fólk, hafa borist lögreglu-
yfirvöldum víða um heim.
Flykkjast til útlanda
Met í utanlandsferðum Íslendinga
Á
rið 2016 fer í sögubækurnar
hvað varðar fjölda utanlands-
ferða Íslendinga. Á fyrstu tíu
mánuðum ársins voru brott-
farir Íslendinga um Keflavíkurflug-
völl þegar komnar upp í 450 þúsund.
Greining Íslandsbanka fjallaði um
þetta og vísaði í tölur Ferðamálastofu
Íslands. Reiknað er með að rúmlega
74 þúsund Íslendingar bætist við á
síðustu tveimur mánuðum ársins,
samkvæmt spá Isavia. Ef fer sem
horfir verða brottfarir Íslendinga um
Keflavíkurflugvöll 524 þúsund á ár-
inu sem er metfjöldi. Jafngildir þetta
16,4 prósenta aukningu á milli ára. Í
frétt Greiningar kemur fram að það
mikla aðdráttarafl sem EM í Frakk-
landi hafði eigi stóran þátt í þessari
aukningu. n
Margir á EM Þúsundir Íslendinga lögðu leið sína til Frakklands í sumar.
Bjarni Ákason og Valdimar Grímsson í viðræðum við Hafnartorgs-fjárfestinn Guðna Rafn
G
engið verður frá sölu Apple-
umboðsins á Íslandi á
næstu dögum að óbreyttu
en viðræður milli núver-
andi eigenda fyrirtækisins
og fjárfestisins Guðna Rafns Eiríks-
sonar eru á lokametrunum. Um-
boðið er í eigu Bjarna Ákasonar,
framkvæmdastjóra epli.is, og Valdi-
mars Grímssonar, fjárfestis og fyrr-
verandi handboltakappa. Ljóst er að
kaupverðið hleypur á hundruðum
milljóna króna en Bjarni og Valdi-
mar keyptu fyrirtækið á 160 milljón-
ir í miðju efnahagshruninu.
„Þetta er allt í ferli og við höfum
alltaf sagt að ef það kemur réttur
kaupandi, og Apple samþykkir, þá
séum við tilbúnir að selja. Þetta er í
vinnsluferli og það er ekki hægt að
tímasetja eitt eða neitt,“ segir Valdi-
mar í samtali við DV.
Eiga epli.is
Einkahlutafélagið Skakkiturn, í eigu
Bjarna og Valdimars, er umboðsað-
ili Apple á Íslandi og rekur verslanir
undir merkinu Epli. Fyrirtækið nýt-
ur því ákveðinna sérkjara á vörum frá
Apple og er í dag heildsali og smásali
á vörum bandaríska raftækjafram-
leiðandans. Samkvæmt nýjasta árs-
reikningi Skakkaturns nam velta um-
boðsaðilans í fyrra alls 2,7 milljörðum
króna. Hagnaðurinn var þá 81 millj-
ón króna og 177 milljónir árið á und-
an. Heildarhagnaður Skakkaturns frá
2009 til 2015 nemur 713 milljónum.
Arðgreiðslur til eigendanna námu
150 milljónum í fyrra og lagði stjórn
Skakkaturns í sumar til að þeir fengju
180 milljónir í arð á þessu ári vegna
rekstrarársins 2015. Eignir félagsins
umfram skuldir námu í lok síðasta
árs 442 milljónum og eiginfjárhlut-
fallið var þá 39 prósent.
Félag Bjarna og Valdimars keypti
Apple-umboðið út úr þrotabúi
Humac ehf. á 160 milljónir króna
síðla árs 2008 í miðju efnahagshruni.
Humac átti þá einnig umboðið fyrir
Apple á Norðurlöndunum en Bjarni
var í eigendahópi þess þangað til í
apríl 2007. Þá seldi hann hlut sinn til
Baugs Group og á þeim tíma var fé-
lagið metið á 1,5 milljarða króna. Í
maí 2009 seldi Skakkiturn starfsemi
félagsins í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi en það rak áður 15 verslanir í
löndunum þremur.
Átti í Hafnartorginu
Guðni Rafn Eiríksson staðfest-
ir í samtali við DV að salan sé á
lokametrunum og að hann standi
einn að kaupunum. Eins og Valdi-
mar vill hann engu svara um kaup-
verðið. Guðni var hluthafi í Reykjavík
Development, áður Landstólpa þró-
unarfélags ehf., sem átti byggingar-
reitinn Hafnartorg í miðbæ Reykja-
víkur þar sem opna á meðal annars
verslun fatakeðjunnar H&M. Systur-
félag verktakafyrirtækisins ÞG Verk
keypti Reykjavík Development og
reitinn í apríl síðastliðnum og sam-
kvæmt frétt DV nam kaupverðið um
fjórum milljörðum króna. Hluthafa-
hópurinn sem Guðni tilheyrði keypti
lóðirnar tvær sem mynda reitinn af
ríkinu og Reykjavíkurborg á 1,8 millj-
arða króna árið 2014. n
Sala Apple á Íslandi
á lokametrunum Epli Skakki-turn á og rekur verslun Eplis við Laugaveg og vefverslun-ina epli.is.
Vill umboðið Guðni Rafn Eiríksson á í
viðræðum um kaup á Skakkaturni ehf.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Helmingseigandi
Valdimar Grímsson og
Bjarni Ákason keyptu
Apple á Íslandi í
nóvember 2008.