Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201614 Fréttir
É
g vissi ekki einu sinni hvað þetta
var,“ segir þingmaðurinn Brynjar
Níelsson sem óvænt er kominn
í hóp örfárra og útvalinna Ís-
lendinga sem vottaðir hafa verið
af Facebook. Brynjar segir í samtali við
DV að vottuninni hafi verið smellt á
persónulegan prófíl hans að honum
forspurðum og hann kannast ekkert
við að hafa samþykkt né sótt um slíkt.
Í hóp með afreksmönnum
Vottun sem þessi á Facebook og
öðrum samfélagsmiðlum hlotnast
vanalega frægu fólki með marga fylgj-
endur, fyrirtækjum eða vörumerkjum
til að notendur geti áttað sig á því að
þarna sé viðkomandi í raun og veru að
baki því sem á síðunni birtist. Lausleg
athugun DV leiddi í ljós að af stjórn-
málamönnum eru aðeins Brynjar og
opinber síða Bjarna Benediktssonar
sem hlotið hafa slíka vottun hér. Þá
hafa síður knattspyrnustjarnanna
Eiðs Smára Guðjohnsen og Alfreðs
Finnbogasonar fengið svona vottun,
svo dæmi sé tekið, en annars eru þær
fátíðar meðal Íslendinga.
Einu stjórnmálamennirnir
„Allt í einu var kominn blár hringur
við nafnið mitt og ég vissi ekkert hvað
þetta var. Svo sagði ein kona við mig:
„Mikið þykist þú vera orðinn merki-
legur.“ Ég kom af fjöllum og þá sagði
hún að þetta fái bara sumir og það
þurfi eitthvert umsóknarferli og
vesen til. En ég þurfti ekki mikið um-
sóknarferli því þetta kom mér al-
gjörlega að óvörum.“ Athygli vek-
ur að vottunin er á persónulega síðu
Brynjars og er hann þar sér á báti
hvað varðar kjörna fulltrúa þjóðarinn-
ar varðar. Enginn af ráðherrum fráfar-
andi ríkis stjórnar hefur fengið slíka
upphefð, að Bjarna undanskildum, né
opinber síða forseta Íslands. Ljóst er
að Brynjar er kominn í hóp útvalinna.
Kann ekkert á Facebook
„Það getur vel verið að þeir hafi sent
mér eitthvað án þess að ég hafi tekið
eftir því, en ég efa það. Ég kann ekkert
á tölvur. Ég kann ekkert á Facebook,
nema að ég get sett inn færslur og fífl-
ast. Það kom mér því á óvart að þessi
blái hringur með hvíta hakinu væri
allt í einu kominn og þá var mér sagt
að þetta væri eitthvað sem færi í gegn-
um eitthvert ferli. Ég fór ekki í gegnum
neitt ferli og þetta kom fyrirvaralaust.“
Á upplýsingasíðu Facebook segir
að sumar síður og prófílar einstak-
linga fái vottun sem þessa til að
tryggja að notendur geti treysti því að
síðan sé ekta. Vottunarmerkið þýði
að Facebook hafi staðfest að síðan sé
ekki falsprófíll eða síða og viðkom-
andi sé „opinber fígúra, fyrirtæki eða
vörumerki.“
Nú má hafa af honum æruna
Brynjar grínast með þetta og segir að
nú þegar hann sé orðinn „opinber
fígúra“ – með áherslu á seinna orðið,
megi þá líklega rífa af honum æruna
í nafni tjáningarfrelsis.
„Dómstólar segja það. Þegar þú
ert orðin opinber fígúra þá má segja
meira um þig en aðra.“
Glettinn segir Brynjar að hann
verði nú að fara varlega í að stríða
Pírötum í framtíðinni svo hann fái
ekki á sig ákæru fyrir hatursum-
ræðu.
„Nú þorir maður ekki að gera
neitt,“ segir Brynjar og hlær. n
Vottaðir Opinberar síður Bjarna Benediktssonar, ráðherra og formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, og knattspyrnukappanna Eiðs Smára Guðjohnsen og Alfreðs Finnbogasonar eru meðal
þeirra sem fengið hafa vottun Facebook við nöfn sín. MyNd FacEbooK
„Ég kann ekkert á
Facebook, nema
að ég get sett inn færslur
og fíflast.
Brynjar
og Bjarni
vottaðir
af Facebook
n Sjálfstæðismennirnir í hóp útvalinna
n Brynjar Níelsson var óvænt vottaður
n „Vissi ekki hvað þetta var“
Vottaður þingmaður Brynjar Níelsson
virðist vera eini óbreytti þingmaðurinn á
Íslandi sem vottaður hefur verið af Facebook.
Hann kom af fjöllum og segir merkið hafa birst
fyrirvaralaust. MyNd dV Sigtryggur ari
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is