Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Blaðsíða 34
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201626 Fólk Viðtal mjög sterkt að okkar málflutningur hafði góðan hljómgrunn. Ég vissi að þriðja sætið væri svokallað bar­ áttusæti og það var einkar ánægju­ legt þegar í ljós kom að niðurstaðan var betri en skoðanakannanir höfðu bent til skömmu fyrir kosningar.“ Lítur þú, með þínar vestfirsku rætur, á þig sem meiri þingmann Vestfjarða en annarra svæða á landinu? „Nei, ég lít á mig sem þingmann alls Norðvesturkjördæmis. Kjör­ dæmið er mjög víðfeðmt, nær frá botni Hvalfjarðar að Siglufirði. Það eru hátt í þrjátíu byggðarkjarnar í kjördæminu, byggðarlögin eru mis­ jöfn, misvel í sveit sett og hagsmunir þeirra eru misjafnir. Þau eiga þó eitt sameiginlegt, mikilvægi þess að þar sé traust atvinnulíf og aðstæður fyrir atvinnuuppbyggingu. Það er sterk krafa um allt kjördæmið um styrk­ ingu á grunnþjónustu af hendi ríkis­ valdsins. Samgöngur vega mjög þungt sem forsenda allra framfara á svæðinu, hvort sem það er atvinnu­ uppbygging eða styrking á samfé­ laginu í heild. Hlutverk þingmanna kjördæmisins er að vera fulltrúar allra íbúa á svæðinu, ekki eingöngu ákveðinna svæða eða eingöngu þeirra sem greiddu manni atkvæði, heldur allra íbúa.“ Ríkið á að fjármagna grunnþjónustu Þú segir að þetta sé krafan, upp- bygging innviða. Ertu sammála þeirri kröfu? Hvernig fer það saman við af­ stöðu Sjálfstæðisflokksins, og þína, um minni afskipti ríkisvaldsins? „Ég er hjartanlega sammála þeirri kröfu. Meginstefnumarkmið Sjálfstæðis­ flokksins eru mjög skýr. Atvinnulíf­ ið dregur áfram velferðarvagninn og það verður engin velferð án verð­ mætasköpunar. Það er fólk sem býr til verðmæti og svo er það hið opin­ bera sem skattleggur þau verð­ mæti. Það er stefna Sjálfstæðis­ flokksins að ríkið hafi mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að ákveðinni grunnþjónustu, svo sem í heilbrigðiskerfinu. Aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu á að vera óháð efnahag og búsetu, hið sama á við um jafnrétti til náms, svo eitthvað sé nefnt. Þessi verkefni eru á hendi ríkisins og það er ekki í andstöðu við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Þjónusta ríkisins á að vera í boði fyrir alla íbúa þessa lands. Verkefnið í Norðvestur­ kjördæmi er að styrkja þessa þjón­ ustu.“ Er sátt um það innan flokksins, að þessi verkefni skuli vera á hönd- um ríkisvaldsins? „Ég tel að það sé það já, það sé breið sátt um þessi grunnatriði. Ef við tökum til dæmis heilbrigðisþjón­ ustuna er full sátt um að ríkið fjár­ magni þá þjónustu fyrir alla lands­ menn. Þar með er ekki sagt að ekki megi skoða leiðir til að nýta fjármuni sem best. Einkarekstur í heilbrigðis­ þjónustu hefur hingað til gengið vel, hvort sem það eru tannlækningar eða augnlækningar svo dæmi séu tekin. Aðalatriðið er að ríkið fjár­ magni þjónustuna. Við eigum að reyna að keppa að því að auka þjón­ ustu og auka gæði hennar og þurf­ um þá um leið að spyrja hvernig nýt­ um við fjármunina sem best í þeim efnum. Á vissum sviðum tel ég að við verðum að auka aðkomu einka­ aðila en aldrei má falla frá þeirri grundvallarafstöðu að ríkið fjár­ magni þjónustuna.“ Stoltur af föður sínum Teitur hóf nám í hagfræði en komst að því eftir stuttan tíma að það átti ekki við hann. Hann hvarf því frá námi og réð sig á bát fyrir vestan út þann vetur. „Meðan ég var úti á sjó hugsaði ég mitt ráð og haustið eftir skráði ég mig í lögfræði. Það var nú eiginlega tilviljun að lögfræðin varð ofan á en ég sé ekki eftir því að hafa valið þá leið.“ Blundaði þingmaðurinn aldrei í þér fyrr en nú? „Nei, langt því frá. Þegar ég var ungur vissi ég ekki, frekar en aðrir, hvað framtíðin myndi bera í skauti sér. Ég hafði ekki fastmótaðar hugmyndir þá, og kannski ekki frekar nú, um hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór. Nú er ég í þessu verkefni, þingmennskunni, og það er það sem mun eiga hug minn allan þetta kjörtímabil. Meira getur maður ekki gert.“ Árið 2007 misstir þú föður þinn, ungur maður. Hvaða áhrif hafði það á þitt lífshlaup? „Ég var 27 ára þegar að faðir minn lést, sviplega, hann varð bráð­ kvaddur. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég hafði með honum. Pabbi missti sinn föður, afa minn, mjög ungur. Hann hefur verið fjögurra eða fimm ára og rétt aðeins mundi eftir honum. Hann sagði við mig einhvern tímann að honum hafi fundist föðurleysið erfitt og ég held að það hafi mótað hann mjög sem föður. Hann var afskaplega hlýr og góður, gott að leita til hans og við vorum góðir vinir. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég átti með hon­ um og hvernig hann nestaði mig út í lífið. Tíminn linar síðan sársaukann. Mér varð hugsað til pabba þegar úrslit kosninganna lágu fyrir og ég hafði náð kjöri á þing í sama sæti, fyrir sama flokk og í sama kjördæmi. Það fyllti mig stolti. En að sama skapi vil ég ekki draga upp þá mynd að ég sé með einhverjum markvissum hætti að feta í hans fótspor. Hann var einstakur stjórnmálamaður sem átti engan sinn líka. Þegar mikið gekk á hafði hann einstakt lag á að halda ró sinni og sýna af sér mikið jafnaðargeð. Hann skaut þá oft inn í að þetta yrði allt í lagi, þetta væru mannheimar og umgangast þyrfti mál með það í huga. Hann hafði líka þá skoðun að öll lög, allar reglur, væru mannanna verk og mannanna verkum mætti breyta.“ Hefur trú á Flateyri Teitur tók við framkvæmdastjórastöðu hjá fiskvinnslufyrirtækinu Eyrarodda á Flateyri árið 2007, á erfiðum tím­ um í atvinnulífi Flateyringa. Hann, ásamt aðaleigandanum, rak það fyrir­ tæki í á fimmta ár áður en nauðsyn rak þá sem að því stóðu til að rifa seglin, ekki voru fjárhagslegar forsendur fyr­ ir áframhaldandi rekstri. „Ég kom að því verkefni þegar atvinnulíf á Flat­ eyri komst í uppnám. Á annað hund­ rað manns höfðu misst vinnuna og kvótinn allur var seldur á brott. Ég, ásamt öðrum, sem höfðu sterka tengingu við Flateyri, freistuðum þess að reka þar fiskvinnslu. Ég tók þá hlé frá mínum lögmannsstörfum til að sinna því, hafði hugsað mér að sinna þessu í skamman tíma, en það var ljóst þegar af stað var farið að ekki var hægt að hverfa frá verkefninu eftir svo skamman tíma. Það var á brattann að sækja í þessum efnum. Árið 2007 var mikil niðurskurður í þorskveiðum og haustið 2008 varð hrunið og allt fór í frost í íslensku efnahagslífi eins og við þekkjum. Það gerði okkur erfitt fyrir og markaðir í Evrópu voru einnig erfiðir. Á ákveðnum tímapunkti sáum við að ekki yrði lengra komist.“ En þið fóruð inn í þetta vegna tenginga ykkar við byggðarlagið? Ykkur rann blóðið til skyldunnar? „Vissulega já, að einhverju leyti. En við, sem að þessu komum, vorum þess fullvissir að hægt yrði að byggja upp fiskvinnslu og útgerð á Flateyri. Ég hef enn þá trú að það sé hægt.“ Ertu þá þeirrar skoðunar að það þurfi að aðlaga sjávarútvegskerfið að hagsmunum byggðanna? „Já, hiklaust. Fiskveiðistjórn­ unarkerfið sem við búum við er í grunninn nokkuð gott, hvað varðar sjálfbærni í veiðum og umgengni við auðlindina. Það er líka markmið með kerfinu að sjávarútvegurinn sé arðbær og það hefur náðst fram. Greinin skilar arði og sköttum til rík­ isins umfram aðrar atvinnugrein­ ar. Ríkið hefur þann rétt að taka fyrir hönd þjóðarinnar ákveðna auðlindarentu. Þriðja stoð kerfis­ ins á að vera að treysta atvinnu og byggð í landinu. Sá þáttur hefur ekki gengið nægjanlega vel. Það er tíma­ bært að við stígum í alvörunni það skref – hagsmunir sjávarbyggða eru þáttur í þessu sem ekki hefur verið horft nægilega vel til. Við þurfum að viðurkenna að byggðir sem háð­ ar eru sjávarútvegi séu þátttakendur sem þurfi að taka tillit til.“ n Er stoltur Vestfirðingur Teitur Björn vill leggja sitt af mörkum fyrir æskustöðvarnar á Flateyri. Mynd SigtRygguR ARi Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.