Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Síða 36
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201628 Sport
K O L R E S T A U R A N T · S K Ó L A V Ö R Ð U S T Í G U R 4 0 · S Í M I 5 1 7 7 4 7 4 · K O L R E S T A U R A N T . I S
JÓLASTEMNINGIN
HEFST 23. NÓV
…og matseðillinn fer í léttan jólabúning
VILLIBRÁÐARSÚPA,
TVÍREYKT HANGIKJÖT,
TÚNFISKUR,
DJÚPSTEIKT ANDAR-CONFIT,
GRAFIÐ HREINDÝR,
HANGIREYKTUR LAX,
KRÓNHJÖRTUR OG PURUSTEIK eða KOLAÐUR LAX,
MÖNDLUKAKA
Verð 8.990 kr. á mann
Borðapantanir í síma 517 7474 eða kolrestaurant.is
KVÖLD
JÓLAMATSEÐILL
Þeir bestu sem ekki
unnu úrvalsdeildina
Steven Gerrard, Gianfranco Zola, Matt Le Tissier og allir hinir
S
teven Gerrard, fyrrverandi
leikmaður Liverpool, til-
kynnti í liðinni viku að hann
væri hættur í fótbolta, 36 ára
gamall. Óhætt er að segja að
Gerrard hafi átt frábæran feril með
Liverpool þar sem hann vann Meist-
aradeildina, UEFA-bikarinn, enska
bikarinn tvisvar og deildabikarinn
þrisvar.
En Gerrard tókst aldrei á þeim 17
leiktíðum sem hann lék með Liver-
pool að vinna ensku úrvals-
deildina. Hér gefur að líta
yfirlit yfir aðra frábæra
leikmenn, sem settu
mark sitt á ensku úr-
valsdeildina, en
tókst aldrei að
vinna titilinn
eftir sótta. Sumir
þessara leik-
manna eru
enn að og
geta enn
nælt í titil
áður en
skórnir
fara upp
í hillu. Þá
skal tekið
fram að leik-
menn sem
eru tiltölu-
lega nýkomnir
í deildina, eða
enn ungir að
árum, eru ekki í
úttektinni. Ber þar
að nefna leikmenn eins
og Zlatan Ibrahimovic, Paul
Pogba, Philippe Coutinho,
Mesut Özil og Alexis Sanchez
svo dæmi séu tekin. n
Gianfranco Zola
Félag: Chelsea Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 7
Ítalinn smái en knái er í hópi bestu leikmanna
úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Zola lék með
Chelsea frá 1996 til 2003 en það var áður en Rom-
an Abramovic keypti félagið. Meðan Zola spilaði
með Chelsea var félagið yfirleitt í efri hluta deildar-
innar en gat illa keppt við Arsenal og Manchester
United um titilinn. Zola skoraði 80 mörk í deildinni fyrir Chelsea
en vann aldrei titilinn. Zola fékk sess í frægðarhöll enska
boltans árið 2006.
Robbie
Fowler
Félög: Liverpool, Leeds,
Manchester City Leiktíð-
ir í úrvalsdeildinni: 16
Fowler er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar
frá upphafi. Aðeins Alan Shearer, Wayne Rooney, Andy Cole, Frank Lampard
og Thierry Henry hafa skorað fleiri mörk. Fowler skoraði 30 mörk eða meira
þrjár leiktíðir í röð á árunum 1994 til 1997 en hafa ber í huga að þá var hann
á aldrinum 19 til 22 ára. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá þessum frábæra
leikmanni sem hætti í fótbolta árið 2012.
Matt Le Tissier
Félag: Southampton Leiktíðir í úrvals-
deildinni: 10
Matt Le Tissier var í uppáhaldi hjá mörgum
enda frábær fótboltamaður sem sannaði
að það er hægt að vera örfáum kílóum of
þungur í deild þeirra bestu. Tissier spilaði nær
allan sinn feril með Southampton og var algjör yfirburðamaður
í liðinu. Southampton var aldrei í toppbaráttu og því komst
þessi magnaði leikmaður aldrei nálægt því að vinna titilinn.
Tissier var tekinn inn í frægðarhöll enska boltans árið 2013.
Luis Suarez
Félag: Liverpool Leiktíðir í úrvals-
deildinni: 4
Suarez er í hópi bestu fótboltamanna
heims um þessar mundir en því miður
fyrir hann og Liverpool tókst honum
ekki að vinna ensku úrvalsdeildina.
Suarez var kjörinn leikmaður ársins í úr-
valsdeildinni vorið 2014 en það tímabil
skoraði hann 31 mark í 33 leikjum í
deild. Þetta tímabil reyndist vera hans
síðasta með Liverpool – að sinni að
minnsta kosti – og raðar kappinn nú inn
mörkum með Barcelona.
Gareth Bale
Félag: Tottenham Leiktíðir í úrvalsdeildinnii: 6
Gareth Bale var langbesti
maður Tottenham áður en
hann var seldur til Real Madrid
fyrir metfé árið 2013. Síðustu
þrjár leiktíðir hans með Totten-
ham var hann valinn í úrvalslið
deildarinnar og þá var hann kjörinn
leikmaður ársins árin 2011 og 2013. Bale
tókst aldrei að vinna úrvalsdeildina með
Tottenham en er búinn að vinna Meistara-
deildina tvisvar með Real Madrid.
Jimmy Floyd
Hasselbaink
Félag: Chelsea, Middlesbrough,
Charlton Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 7
Eins og allir vita mynduðu þeir Jimmy Floyd
Hasselbaink og Eiður Smári Guðjohnsen eitt besta
framherjapar í sögu deildarinnar. Ólíkt Jimmy tókst Eiði að
vinna titilinn enda var hann lengur hjá Chelsea. Þegar þessi
magnaði Hollendingur var upp á sitt besta raðaði hann inn
mörkum fyrir Chelsea, allt í allt gerði hann 88 mörk í 177 leikj-
um í deild. Hann hélt svo áfram að skora hjá Middlesbrough og
síðar Charlton en allt kom fyrir ekki. Aldrei varð Jimmy Floyd
Englandsmeistari.
Fernando
Torres
Félag: Liverpool, Chelsea Leiktíðir í úrvals-
deildinni: 7
Fernando Torres var einn besti framherji heims
árin 2007 til 2010 og raðaði hann inn mörkum
fyrir Liverpool, skoraði 81 mark í 142 deildar-
leikjum áður en hann var seldur til Chelsea fyrir
metfé árið 2010. Þar gekk Torres ekki jafn vel og
fór svo að hann var lánaður til Milan árið 2014.
Svo vildi til að þetta tímabil varð Chelsea Eng-
landsmeistari og þar sem Torres var fjarverandi á
láni fékk hann enga medalíu.
Marcel Desailly
Félag: Chelsea Leiktíðir í
úrvalsdeildinni: 6
Frakkinn ógnarsterki
á fullan skáp af
verðlaunapening-
um eftir að hafa
orðið heims- og
Evrópumeistari með
Frökkum, Ítalíumeist-
ari með AC Milan og
Evrópumeistari með Milan og Marseille.
Desailly, sem af mörgum er talinn í hópi bestu
varnarmanna í sögu ensku úrvalsdeildarinnar,
náði aldrei að vinna deildina með Chelsea.
Aðrir frábærir
sem ekki hafa
orðið meistarar:
n Xabi Alonso
n Javier Macherano
n Jamie Carragher
n Jermain Defoe
n Les Ferdinand
n Paul Gascoigne
n Ruud Gullit
n David Ginola
n Gianluca Vialli
n Robbie Keane
n Sami Hyypia
Frábær leikmaður
Steven Gerrard lagði
skóna á hilluna í síðustu
viku. Honum tókst ekki að
verða Englandsmeistari
með Liverpool.