Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 2 6 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 3 0 . M a Í 2 0 1 7 FrÍtt Fréttablaðið í dag sport Aron Kristjánsson gerði Aalborg að dönskum meistara í handbolta á sunnudaginn. 16 Nafnið breytist en áfangastaðirnir hafa enn sama aðdráttarafl. Ævinlega velkomin um borð. airicelandconnect.is alÞingi Afar fátt sem ágreiningur ríkir um á milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar kemst í gegnum Alþingi. Þingi verður frestað á morgun, miðvikudag, en það er helst ríkisfjármálaáætlun sem fer í gegnum þingið og einhver ágrein- ingur ríkir um. Um önnur mál á borð við áfengis- frumvarpið, rammaáætlun, rafrettu- frumvarpið og frumvarp um fjölda borgarfulltrúa, ríkir ágreiningur og verða þau látin bíða betri tíma. Frí- verslunarsamningur við Filippseyjar, sem mikill ágreiningur ríkir um, verður sömuleiðis settur á ís. Veikur eins manns meirihluti stjórnarflokkanna kemur í veg fyrir að ríkisstjórnin geti keyrt mál í gegnum þingið eins og löngum hefur tíðkast. Í stað þess hafa þingmenn þurft að setjast niður og stjórnar- flokkarnir þurft að sætta sig við veru- legar málamiðlunartillögur stjórnar- andstöðu.Ekki ríkir ágreiningur um jafnlaunavottun eftir að frumvarpið tók einhverjum breytingum svo það flýgur í gegnum þingið. „Stjórnin er ekki að þvinga neitt í gegn. Þau geta það ekki,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, starfandi þing- flokksformaður Framsóknar. Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá mun áfengisfrumvarpið ekki komast í gegn. Heimildir Fréttablaðsins herma að stjórnarflokkarnir hafi ekki lagt neina áherslu á það í samningavið- ræðum við stjórnarandstöðu. „Það fór út af borðinu strax. Það var útséð um að þar væri einhver sátt,“ segir Silja. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir forseta Alþingis hafa lagt mikla áherslu á að klára þing á réttum tíma í stað þess að bæta við þingfundardögum. „Þá er skammur tími til stefnu. Það eru mörg stór mál sem bíða og um það voru formenn allra flokka sammála á laugardag.“ Birgir Ármannsson, þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stjórn og stjórnarandstöðu vera að læra hvor á aðra. Stjórnarflokkarnir hafi ekki getað keyrt hluti áfram með sama hætti og áður. „Það er annað- hvort meirihluti fyrir málum eða ekki. Ef það er meirihluti, þá breytir í sjálfu sér ekki hvort það er eins manns meirihluti eða ekki, en auð- vitað er skynsemi fólgin í því að leita samkomulags um það sem mögulegt er. En þar sem er ágreiningur verður bara afl atkvæða að skera úr.“ snæros@frettabladid.is Sigur stjórnarandstöðunnar Nokkur sátt ríkir um öll mál, utan ríkisfjármálaáætlunar, sem fara í gegnum Alþingi fyrir þingfrestun á morgun. Formaður VG segir mörg stór mál bíða. Jafnlaunavottun verður samþykkt nærri ágreiningslaust. Stjórnin er ekki að þvinga neitt í gegn. Þau geta það ekki. Silja Dögg Gunnarsdóttir, starfandi þing- flokksformaður Framsóknar- flokksins Þar sem er ágrein- ingur verður bara afl atkvæða að skera úr, Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokksins plús 2 sérblöð l Fólk l  vörubÍlar og vinnuvélar *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri spókar sig um í Philadelphiu, ásamt borgarstjóranum James F. Kenney. Dagur er ásamt sendinefnd frá borginni að kynna sér skipulag og starfsemi alþjóð- flugvallarins í Philadelphiu ásamt því að ræða samstarfsmöguleika á sviðum viðskipta og menningar. Kenney er væntanlegur í heimsókn til Reykjavíkur síðar í vikunni. Mynd/Sigurjón stJórnsÝsla Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður og umsækj- andi um embætti Landsréttardóm- ara, telur að rökstuðningi dóms- málaráðherra fyrir skipan fimmtán dómara við Landsrétt sé ábótavant. Þetta kom fram í bréfi sem hann sendi forseta Alþingis í gærkvöldi. „Geti ráðherra ekki lagt fram full- nægjandi gögn eða skýringar á að undirbúningur og meðferð málsins hafi verið í samræmi við lög ber að hafna tillögum ráðherra,“ segir í yfir- lýsingu Ástráðs. – jóe Ástráður telur rökin ekki næg 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C F 7 -5 3 1 8 1 C F 7 -5 1 D C 1 C F 7 -5 0 A 0 1 C F 7 -4 F 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.