Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 32
Trukkaumferð á Íslandi er í raun ekki mikil en hún verður áberandi og þétt tvisvar á sólarhring; snemma á morgnana og seint á kvöldin þegar bílarnir halda af stað frá sínum höfuðstöðvum,“ segir Jón og bætir við að lögreglan sé tiltölulega fljót að fara yfir sviðið þegar kemur að eftirliti með vöruflutningabílum. „Þetta eru mikið til sömu trukk- arnir sem keyra á milli lands- hluta og þarf af leiðandi erum við fljótir að sigta út bíla sem við erum nýbúnir að stoppa. Verkefnin eru þó ærin þegar kemur að eftir- litinu.“ Þann 1. janúar í fyrra var umferðareftirlitið flutt frá Sam- göngustofu til þriggja lögreglu- embætta: lögreglustjórans á Vesturlandi, lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglu- stjórans á Suðurlandi. „Í umferðareftirlitinu fram- kvæmum við vegaskoðanir á flutningabílum, sem þó eru ekki jafn nákvæmar og þegar farið er með bílana í skoðun. Skoðað er ástand bifreiðar, hvort dekk séu í lagi og hvort búnaður virki rétt. Ef eitthvað reynist í ólestri eru menn boðaðir í skoðun á næstu skoðunarstöð eða sendir rakleiðis á verkstæði til viðgerða.“ Athuga ekki með mansal í íslenskum flutningabílum Lögreglan skoðar einnig farm vöruflutningabíla sem þeir stoppa handahófskennt á vegunum. „Þegar farmur er skoðaður er athugað hvort hann sé rétt frá- genginn og hvort hann falli undir ADR-farm, eða hættulegan farm. Strangar reglur gilda um flutning ýmissa efna sem ekki má flytja saman og þurfa ökumenn þess háttar farms ákveðin ökuréttindi umfram meirapróf. Langleiðina sýnist mér þó að menn fari að lögum og vegna landamæra okkar höfum við ekki ástæður til að athuga með mansal eða flutninga á fólki í vöruflutningabifreiðum,“ upplýsir Jón. Akstur- og hvíldartími atvinnu- bílstjóra er lögbundinn og er skoðaður hverju sinni sem lögregla tekur bíl út í eftirliti á vegum. „Við tökum allt fyrir þegar við stöðvum vöruflutningabíl á vegum úti: vigtum bílinn, athugum frá- gang á farmi og afritum upplýs- ingar úr rafrænum ökuritum sem gefa upp aksturstíma, hvíldartíma, hvenær farið var af stað, hvenær akstri lauk og hvenær pásur voru teknar. Ökuritarnir kjafta frá öllu enda oft kallaðir kjaftakerlingar,“ segir Jón kankvís. Rafrænir ökuritar eru núorðið í flestum vöruflutningabílum en ökuritar eru einnig í eldri bílum. „Gömlu ökuritarnir eru skífa með nál sem skrifar niður sömu upplýsingar á pappír. Þeir ökuritar gilda enn og segja það sama en þeim fer fækkandi.“ Brot vegna ökurita Jón kom nýlega heim frá Nor- egi þar sem hann segir aðstöðu Norðmanna til fyrirmyndar til að taka út heilu trukkalestirnar til skoðunar. „Á síðasta ári stoppuðum við alls 1.125 vöruflutningabíla til að kanna þyngd og stærð. Athugun á hleðslu, farmi og merkingu á farmi fór fram á tæplega 600 bílum. Þá voru 2.400 vöruflutningabílar stöðvaðir handahófskennt af lög- reglu í fyrra vegna aksturs- og hvíldartíma.“ Þetta þýði þó ekki að ökumenn hafi gerst brotlegir og segir Jón að fremur lágt hlutfall lendi í kæru. „Maður heyrir stundum á atvinnubílstjórum að eigandi bílanna geri kröfur um langan akstur en þá er til þess að líta að brjóti ökumaður reglur um hvíldartíma fær sá hinn sami háa sekt og eigandinn líka. Sem dæmi er sektin 60 þúsund krónur fyrir ökumann sem fer 30 prósent yfir hvíldartíma og fær eigandinn þá sömuleiðis 90 þúsund króna sekt.“ Sá kvittur hefur gengið að eig- endur vöruflutningabíla taki öku- rita úr bílum sínum eða hreinlega sleppi því að hafa þá um borð til að fela langan vinnudag atvinnu- bílstjóra. „Eigendum vöruflutningabíla er skylt að hafa ökurita um borð og er refsivert að taka þá úr,“ útskýrir Jón. „En þeir geta svo sannarlega skipt um bíla til að aka fleiri en einum bíl sama daginn en ökurita- kortið á þá alltaf að fylgja öku- manninum og á hann að taka það með sér úr einum bíl yfir í þann næsta. Á hinn bóginn er eitthvað um að menn keyri án þess að setja ökuritakortið í bílinn, sem er brot, og einnig hafa komið upp mál þar sem menn eru að keyra á korti ein- hvers annars.“ Ekki enn lent á meiraprófs- lausum atvinnubílstjóra Umferðareftirlit lögreglunnar sinnir fleiri verkefnum en eftirliti með vöruflutningabifreiðum á þjóðvegum landsins og var með 1.600 önnur umferðalagabrot á síðasta ári, þar af hraðakstur, ölvunarakstur og vímuefna- akstur. „Við biðjum ökumenn undan- tekningarlaust um ökuskírteini og höfum ekki enn lent á meira- prófslausum manni. Menn passa sig nokk á að hafa það í lagi. Þeir vita að þeir geta átt von á að verða stoppaðir og stórir lögreglubílar í vegaeftirlitinu eru vel sýnilegir; allt öðruvísi en aðrir lögreglubílar. Þetta eru stórir sendibílar, merktir lögreglunni og stundum má sjá þá úti í kanti á þar til gerðu skoðunar- plani, til dæmis við Blikdalsá undir Esju, þar sem við tökum trukkana í eftirlit,“ segir Jón og er almennt sáttur við ástandið. „Íslensk vörubílamenning er í góðum farvegi en það er vitaskuld alltaf einhver brotalöm á. Flestir passa sig og gera vel. Víst er mikið af bílum á vegunum og alltaf eitt- hvað um umferðaróhöpp og slys enda hefur það sitt að segja að allir flutningar eru komnir á land til að mæta kröfu nútímans um að fá vörurnar heim nýjar og ferskar.“ Réttnefndar kjaftakerlingar Þrír sérútbúnir lögreglubílar sinna vegaeftirliti með vöruflutningabifreiðum á þjóðvegum lands- ins en mættu vel vera sex að mati Jóns Sigurðar Ólasonar, yfirlögregluþjóns á Vesturlandi. Alls voru 2.400 vöruflutningabílar stöðvaðir af lögreglu í fyrra til að kanna akstur og hvíldartíma. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Jón Sigurður Ólason er yfirlögregluþjónn á Vesturlandi. Hann segir eigendum vöruflutningabíla skylt að hafa ökurita um borð sem sýna akstur og hvíldartíma ökumanna. MYND/JÓN ARNAR SIGURÞÓRSSON Á hinn bóginn er eitthvað um að menn keyri án þess að setja ökuritakortið í bílinn, sem er brot, og einnig hafa komið upp mál þar sem menn keyra á korti einhvers annars. Sími 511 6600 · ratio@ratio.is · www.ratio.is FLOTAÞJÓNUSTA Hentugar leigulausnir á atvinnubílum og tækjum fyrir fyrirtæki 12 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m A í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -9 8 3 8 1 C F 7 -9 6 F C 1 C F 7 -9 5 C 0 1 C F 7 -9 4 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.