Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 8
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
Borðapantanir í síma 551 0011
Vertu velkomin í 7 rétta girnilegan „tasting menu“
að hætti Viktors þar sem bragðlaukarnir verða kitlaðir.
VIKTOR
Á APOTEKINU
Íslenskur hörpudiskur
Blómkál, yuzu vinaigrette
Grillaður humar
Estragon alioli
Léttgrafið og hægeldað bleikju-terrine
Bleikjutartar, dill-aioli, brenndur blaðlaukur, bleikjukavíar
Langtímaelduð og stökksteikt svínasíða
Gerjaður hvítlaukur, ostrusveppir, súrsæt sósa
Túnfiskur og foie gras
Shitake sveppir og sesamsósa
Kolagrilluð íslensk nautalund
Jarðskokkar, nautagljái með kantarellum og truum
Jarðaber og reyktur rjómaostur
Sítrónukrem, estragon olía og karamelluð quinoafræ
Þú mátt bara ekki missa af þessu!
7 RÉTTA MATSEÐILL
9.900 KR.
Viktor Örn Andrésson bronsverðlaunahafi
Bocuse d’Or 2017 er gestakokkur
á Apotekinu 31. maí – 4. júní
JEMEN Ramadan, föstumánuður
múslima, gekk í garð síðastliðinn
laugardag og stendur yfir til 24. júní.
Múslimar um víða veröld fasta frá
sólarupprás til sólarlags en gæða sér
oft á kræsingum þegar sólin hefur
sest. Í Jemen er hins vegar áætlað
að um sautján milljónir manna, um
sjötíu prósent íbúa, hafi ekkert val
um að fasta.
Ófremdarástand hefur ríkt í
landinu frá árinu 2015 vegna átaka
Húta, sem njóta stuðnings Írans, við
stjórnarherinn. Áætlað er að yfir
tíu þúsund manns hafi látist í átök-
unum, um fjórfalt fleiri hafi særst
og meira en þrjár milljónir manna
hafi neyðst til að yfirgefa heimili
sín. Skortur er á helstu matvælum
og lyfjum. Í ofanálag hafa tæplega
30 þúsund manns veikst af kóleru í
faraldri sem nú geisar í landinu.
Í skýrslu UNICEF, sem kom út
í desember, er áætlað að um tvær
milljónir jemenskra barna séu van-
nærðar. Í sömu skýrslu kemur fram
að á tíu mínútna fresti látist barn,
yngra en fimm ára, úr hungri. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa lýst stöðunni
í landinu sem „stærsta mannúðar-
vandamáli heimsins“.
„Sölutölur nú eru lægri en nokkru
sinni fyrr. Hvert ár og hver mánuður
er verri en sá sem kom á undan,“
segir Yahya Hubar, verslunareigandi
í strandborginni Hodeidah, við Al-
Jazeera. Venjulega gerir fólk vel við
sig þegar sólin sest en Jemenar sjá
ekki fram á slíkt í ár.
„Staðan er grafalvarleg. Við
höfum ekki fengið greidd laun svo
mánuðum skiptir. Það er erfitt að
kaupa nauðsynjavörur og verð hefur
hækkað upp úr öllu valdi. Við neyð-
umst til að horfa á hluti sem við
höfum ekki efni á að kaupa,“ segir
Nabil Ibrahim, íbúi í Hodeidah.
Áætlað er að ríflega tvo milljarða
Bandaríkjadollara, andvirði um
210 milljarða íslenskra króna, þurfi
í neyðaraðstoð til íbúa landsins.
Tæplega helmingur þeirrar upp-
hæðar hefur safnast. Jemen mátti
illa við skakkaföllum en fyrir stríðið
var það eitt alfátækasta ríki Arabíu-
skagans. johannoli@frettabladid.is
Hungursneyð í Jemen
Hungursneyð ríkir í Jemen af völdum langvarandi borgarastyrjaldar. Talið er
að barn yngra en fimm ára svelti í hel á tíu mínútna fresti í landinu. Áætlað er
að brýn þörf sé á ríflega 200 milljarða króna neyðaraðstoð til landsins.
Ungmenni í Sana’a sitja hjá meðan foreldrar þeirra bíða í röð eftir mataraðstoð frá hjálparstarfsmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Staðan er graf
alvarleg. Við höfum
ekki fengið greidd laun svo
mánuðum skiptir.
Nabil Ibrahim, íbúi í Hodeidah, Jemen
3 0 . M a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
7
-9
3
4
8
1
C
F
7
-9
2
0
C
1
C
F
7
-9
0
D
0
1
C
F
7
-8
F
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K