Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 40
Óskar Sigurmundason (t.v.) og Ívar Þór Sigþórsson eru starfsmenn atvinnubíladeildar Kraftvéla. MYND/STEFÁN Iveco DAILY sendibíllinn var valinn sendibíll ársins 2015. Kraftvélar í Kópavogi eru umboðsaðilar fyrir hina sterk-byggðu sendi- og vörubíla frá Iveco, vörumerki sem byggt hefur upp stöðu sína jafnt og þétt og er í dag meðal stærri framleiðanda fyrir flutningastarfsemi að sögn Ívars Þórs Sigþórssonar, sölustjóra atvinnubif- reiða hjá Kraftvélum. „Iveco hefur verið leiðandi á sviði nýsköpunar og má nefna að fyrirtækið var fyrst til að kynna turbo í allar dísilvélar sínar og fyrst til þess að innleiða Common Rail vélar auk þess að vera leiðandi í endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir sendi- og vörubíla.“ Kraftvélar bjóða upp á gott úrval sendi- og vörubifreiða frá Iveco og þar nefnir Ívar fyrst til sögunnar Iveco Daily línuna sem inniheldur sendi-, pall- og flokkabíla. „DAILY var valinn sendibíll ársins 2015 enda til í nánast óteljandi útfærslum. Hægt er að fá DAILY með allt að 3,0 lítra 210 hestafla dísilvél og þeir eru fyrstu atvinnubílarnir í sínum stærðar- flokki með 8 gíra HI-Matic sjálf- skiptingu. Fyrir vikið eru þeir afar hagkvæmir í eyðslu og rekstri. Iveco DAILY er eini bíllinn í sínum flokki sem er byggður á sjálfstæðri grind og því er hann einstaklega sterkur og burðarþolinn. Hægt er að fá hann með heildarþyngd frá 3.500-7.200.“ Einstaklega liprir DAILY er meðal annars í boði sem 4x4 pallbíll og vinnuflokkabíll á mjög hagkvæmu verði. „Þeir koma á 37" dekkjum með mikla veghæð og í samstarfi við Arctic Trucks bjóða Kraftvélar upp á 40" breytingapakka sem gerir bílinn enn fjölhæfari.“ DAILY 4x4 eru mjög öflugir, koma með háu og lágu drifi og skriðgír, 100% driflæsingum að framan og aftan og læstum millikassa og eru því tilbúnir í átök. „Bílarnir eru einstaklega liprir miðað við stærð. Verktakar og orkufyrirtæki eru nú þegar komin með þessa bíla í sína þjónustu og eru mjög ánægð með útkomuna.“ Þar sem Iveco DAILY bílarnir eru byggðir á sjálfstæðri grind er fyrir vikið margvíslegur aukabúnaður í boði að sögn Ívars, t.d. sturtupallur, fastur pallur, kranar, snjótennur, saltkassar, vinnu- og jafnvel ferða- hús. „Þar má nefna að 2-7 manna útfærsla á DAILY 4x4 með pallhýsi fyrir aftan ökumannshús er álíka dýr og hefðbundinn húsbíll. Hann er því raunhæfur valkostur fyrir þá sem vilja stunda ferðamennsku og fjölbreyttan lífsstíl. DAILY 4x4 er raunhæfur valkostur fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu og bílaleigur, enda hafa þessi fyrirtæki sýnt bílunum talsverðan áhuga.“ Mikil eftirvænting Góðu fréttirnar eru að Iveco Daily koma einnig í metan- og rafmagnsút- gáfu að sögn Ívars og er nú þegar hafinn undirbúningur að innflutn- ingi og sölu á þeim. „Þeir hjá Iveco eru engir nýgræðingar í þessum efnum en fyrsti metanbíll þeirra kom á götuna um aldamótin. Metan- vélin er byggð á dísilvél sem gefur því eiginleika dísilvéla auk þess sem hún er mun hljóðlátari en hefðbundin dísilvél. Þess vegna er DAILY í met- anútfærslu einstaklega hentugur í Gott úrval sendi- og vörubifreiða frá Iveco Iveco er sterkt vörumerki sem hefur byggt upp stöðu sína jafnt og þétt undanfarin ár hér á landi. Kraftvélar í Kópavogi bjóða upp á gott úrval sendi- og vörubifreiða frá Iveco sem nýtist íslensku atvinnulífi vel. Iveco DAILY eru fyrstu atvinnu- bílarnir í sínum stærðar- flokki með 8 gíra HI- Matic sjálfskiptingu. Ívar Þór Sigþórsson þéttbýlisnotkun. Metanútfærslurnar gefa því fyrirtækjum sem vilja skuld- binda sig í átt að sjálfbærni alveg nýja möguleika.“ Von er á fyrsta Iveco DAILY 100% rafmagnssendibílnum hingað til lands, segir Ívar. „Hann hefur sama innanrými og er með sambærilega burðargetu og hefðbundinn Daily bíll. Hann er 100% rafmagnsbíll og býr yfir hraðhleðslumöguleika. Fyrsti bíllinn er nú þegar seldur til Orkuveitu Reykjavíkur og ríkir mikil eftirvænting eftir afhendingu á honum enda um fyrsta rafmagns- bílinn í þessum flokki að ræða á landinu.“ Vinsælir bílar Iveco Stralis dráttarbílar eru einir vinsælustu dráttarbílar í Evrópu og eru frá 19 tonnum. „Ný kynslóð af Stralis er með nýjum dísilvélum sem eru rúmlega 11% sparneytnari en fyrri kynslóð samkvæmt TUV. Stóru fréttirnar eru að einnig er hægt að fá þessa öflugu bíla í metanútfærslu með allt að 1.500 km drægni. Með auknum landflutningum væri auð- veldlega hægt að draga úr mengun andrúmsloft með Stralis í metanút- færslu enda teljum við að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær verði byrjað að metanvæða vöru- flutningsbíla.“ Allar nánari upplýsingar eru á www.kraftvelar.is. Iveco D AILY 4x4 með sturtupalli er einstaklega lipur miðað við stærð. Verktakar og orkufyrirtæki nota Iveco DAILY pallbíl með góðum árangri. 20 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m A í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C F 7 -8 9 6 8 1 C F 7 -8 8 2 C 1 C F 7 -8 6 F 0 1 C F 7 -8 5 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.