Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 46
Bíllinn var stríp- aður og ekkert hús á honum en þannig ók hann honum norður- leiðina seinnipart vetrar. Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Guðmundur Sveinsson sem lengi ók Fjallkirkjunni fyrir Ingimar Þórðarson tók þessa mynd af bílnum fyrir allmörgum árum. Fjallkirkjan er komin í hús og verður gerð upp með tímanum. Einn þeirra sem þekkja vel til Ingimars og Fjallkirkjunnar er Svavar Sigurðsson sem ók Fjall- kirkjunni fyrir Ingimar í fjölmörg ár. „Ingimar fæddist á Úlfsstöðum í Vallahreppi og þótti frumkvöðull í landflutningum á vörubílum. Veturinn 1964 keypti hann Scania Vabis árgerð '56. Bíllinn var stríp- aður og ekkert hús á honum en þannig ók hann honum norður- leiðina seinnipart vetrar, sitjandi á stól sem festur var á grindina,“ lýsir Svavar. Reyndar komst Ingimar ekki alla leið austur á Egilsstaði þar sem fjallvegir voru ófærir og bíllinn ekki til stórræðanna, húslaus í snjó með bera grind. Því ók hann niður á Húsavík og fékk þar far með skipi sem flutti bílinn austur á land. Margar sögur ganga af afrekum Ingimars og ein þeirra er sú að hann hafi setið á 50 flösku trékassa þegar hann ók fyrstu ferðina á bílnum. Þá sögu segir Svavar ekki sanna en þó hafi Ingimari verið trúandi til margs enda þótti hann uppátækjasamur. Ómáluð fyrsta sumarið Þegar bíllinn var kominn austur stillti Ingimar honum upp heima hjá sér og byggði á hann hús eftir sínu höfði. „Ingimar var alltmúglíg- mann og tók sér það fyrir hendur sem þurfti,“ segir Svavar. En hvaðan kemur nafnið Fjallkirkjan? „Ég er ekki viss, þetta nafn festist við bílinn og hélst alla tíð. Kannski var það vegna útlitsins sem þótti nokkuð sérstakt eða vegna þess að fyrsta sumarið var bíllinn ómálaður þar sem Ingimar hafði ekki tíma til að mála hann eftir að vegir urðu færir.“ Svavar byrjaði að vinna hjá Ingi- mari árið 1966. „Þá hafði Ingimar keypt annan bíl sem hann keyrði sjálfur en ég var á Fjallkirkjunni. Við vorum að flytja vörur fyrir verslanir og eitt og annað, bæði frá Reykjavík og hingað austur og til baka,“ lýsir Svavar sem ók Fjallkirkjunni til 1971 þegar hætt var að nota hana sem sem aðalbíl. „Eftir það var hún notuð í annað. Þá voru aðalbílarnir losaðir á Egilsstöðum en Fjall- kirkjan keyrði vörurnar áfram inn á firði.“ Lögreglan varð hissa Svavar segir að mjög gott hafi verið að keyra Fjallkirkjuna. „Hún fór mjög vel með mann,“ segir Svavar og bendir á að vegir hafi verið slæmir á þessum tíma og því hafi ferðalagið á milli landshlutanna oft tekið sólarhring. „Það var koja í bílnum sem var ekki algengt á þessum tíma en hún var uppi á lofti.“ Ingimar þótti um margt sér- stakur karakter eins og þær fjöl- mörgu sögur sýna sem sagðar eru af honum. Í minningargrein sem Björn Ólafsson ritaði um Ingimar segir hann þessa sögu: „Einhverju sinni hafði Ingimar komið um nótt til Reykjavíkur og verið með farm sem þurfti að losa í Vesturbænum að morgni, svo hann lagði bílnum í laust stæði ekki langt frá. Um morguninn hafði einhver sam- band við lögregluna og kvartaði yfir þessum stóra flutningabíl sem lagt væri þarna við húsið. Lögreglan kom á staðinn og athugaði bílinn, en hann reyndist harðlæstur og ökumaður hvergi sjáanlegur. Þeir tóku því þá ákvörðun að bíða og sjá hvort sökudólgurinn kæmi ekki út úr einhverju húsi þar nærri. En mikil var undrun þeirra þegar bifreiðin fór allt í einu í gang og ók sem leið lá úr stæðinu og áfram á götuna án þess að nokkur hefði farið inn í bílinn. Þeir flýttu sér á eftir honum, og um leið og hann stöðvaði á ákvörðunarstað stukku þeir að bílnum og opnuðu dyrnar. Þá reyndist vera undir stýri þunn- hærður miðaldra maður og varð brosmildur þegar þeir spurðu fyrst hvar hann hefði verið. „Nú ég var auðvitað á efri hæðinni,“ sagði öku- maðurinn og brosti enn breiðar.“ Verður gerð upp Fjallkirkjan var notuð nokkuð lengi og Ingimar átti hana alla tíð en hann lést árið 2008. „Eftir það eignaðist bróðurdóttir hans bílinn en nokkrir menn sem lengi höfðu unnið hjá Ingimari fengu hann síðan í sína umsjá,“ segir Svavar. Byggð var skemma yfir bílinn og honum ekið var inn í hana undir eigin vélarafli. Ætlunin er að gera Fjallkirkjuna upp en þó er líklegt að það taki þó nokkur ár. Fjallkirkjan komin í skjól Bifreiðasaga Íslands hefur að geyma einn og annan dýrgripinn. Einn þeirra er án efa Fjallkirkjan, Scania Vabis vörubíll, sem Ingimar Þórðarson keypti húslausan árið 1965 og smíðaði sjálfur ofan á. Í dag er Fjallkirkjan komin í húsaskjól þar sem til stendur að gera hana upp. 26 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m a Í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C F 7 -A B F 8 1 C F 7 -A A B C 1 C F 7 -A 9 8 0 1 C F 7 -A 8 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.