Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 20
 Til að gera einfalt mál ekki flókið mæli ég með að fólk noti niðurteljarann í sím- anum sínum og láti hann hringja á hálftíma fresti, standi þá upp og hreyfi sig aðeins. Andleg vandamál á borð við streitu, þunglyndi og kvíða hafa líka áhrif á stoðkerfið með aukinni spennu. Þess vegna er mikilvægt að hugsa almennt um heilbrigði. Mataræðið skiptir líka miklu máli. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Haraldur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á líkamanum og heilsu almennt. Hann lærði einkaþjálfun og starfaði við það um tíma eða þar til hann flutti til London og hóf nám í osteópati við The British School of Osteo- pady fyrir um tveimur áratugum. „Þetta er fjögurra til fimm ára háskólanám sem er sérhæft í með- höndlun á stoðkerfi líkamans. Okkar svið er því að laga vandamál tengd stoðkerfinu. Ég segi oft til einföldunar að osteópati er eins og sjúkranuddari, hnykkjari og bæklunargreinandi í einu,“ segir Haraldur sem er með eigin stofu í Reykjavík. Fyrir stuttu hóf hann einnig störf hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflug- velli. „Ég var í slökkviliðinu áður en ég fór í námið. Eftir að hafa unnið sem osteópati í 15 ár langaði mig líka að vinna á fjölmennari vinnustað og tek því reglulegar vaktir hjá slökkviliðinu,“ segir Haraldur kankvís. Stoðkerfisvandmál algeng Þegar Haraldur er spurður hver sé helsta ástæðan fyrir því að fólk leiti til hans segir hann það fyrst og fremst vegna stoðkerfisvandamála. „Margir þjást af bakmeiðslum, hálsmeiðslum, verkjum í herðum eða höfði og vöðvabólgu en þetta heyrir allt undir stoðkerfið. Osteó- patar er sú stétt sem er með mörg verkfæri í sinni verkfærakistu og beitir þeim öllum á sama tíma. Hugmyndin á bak við fagið er mjög heildræn. Það er pælt í hvernig allt virkar í einu. Þegar ég meðhöndla axlarmein vinn ég líka með allt svæðið í kring til að vinna með öxlinni.“ Margir skjólstæðinga hans eru í kyrrsetuvinnu, með tilheyrandi stirðleika og oft verkjum í baki, herðum og höfði. Haraldur segir langtímasetu eða kyrrstöðu ekki góða fyrir líkamann. „Mikilvægt er að brjóta upp setur með litlum pásum. Margir vilja gleyma sér við tölvuna og sitja langtímum saman við tölvuskjáinn. Til að gera einfalt mál ekki flókið mæli ég með að fólk noti niðurteljarann í símanum sínum og láti hann hringja á hálf- tíma fresti, standi þá upp og hreyfi sig aðeins. Það er t.d. gott að fara að næsta vaski og fylla glas af vatni að einum þriðja, því þá hefur fólk eitthvað að gera. Svo er hægt að setjast aftur og drekka vatnið, og endurtaka leikinn á hálftíma fresti. Það þarf alls ekki að drekka allt vatnið en þetta getur verið ástæða fyrir fólk til að standa upp í smá stund,“ upplýsir Haraldur. Kyrrstaða eykur stoðverki Fjölmargir þjást af verkjum í stoðkerfinu. Haraldur Magnússon osteópati segir mikilvægt að brjóta daginn upp með litlum pásum til að hreyfa sig og huga að almennu heilbrigði. Streita getur haft áhrif á stoðkerfið. Hugmyndin á bak við osteópatíu er mjög heildræn. Það er pælt í hvernig allt virkar í einu, að sögn Haralds. MYND/ANTON BRINK Sæta bragðið áunnið Hann segir fólk geta gert ýmis- legt sjálft til að halda líkamanum í góðu lagi. „Stoðkerfið er bara hluti af öllum líkamanum þannig að almennt heilbrigði er grunnurinn að góðri heilsu, bæði andlegri og líkamlegri. Varðandi stoðkerfið mæli ég með að hreyfa sig hóflega, ekki of lítið og ekki of mikið. And- leg vandamál á borð við streitu, þunglyndi og kvíða hafa líka áhrif á stoðkerfið með aukinni spennu. Þess vegna er mikilvægt að hugsa almennt um heilbrigði. Mataræðið skiptir líka miklu máli,“ segir Haraldur, sem er lítt hrifinn af sykurneyslu. „Rannsóknir á bragðskyni fólks hafa sýnt fram á að þeir sem eru vanir sætu bragði sækja í sætt. Margir sem hætta í sykri leitast eftir að fá samt sætt bragð af mat, t.d. með því að nota sætuefni. Mér finnst það röng nálgun. Þess vegna finnst mér betra að fólk venji sig smám saman af sæta bragðinu og venji bragðlaukana á eitthvað annað,“ segir Haraldur. Ekki eitt ráð fyrir alla Þegar hann er spurður hvernig sé best að breyta mataræðinu til betri vegar segir hann að ekkert eitt ráð virki fyrir alla. „Persónu- lega aðhyllist ég að taka þetta skref fyrir skref, gefa sér langan tíma og vonandi verður þá betra mataræði að lífsstíl. Sumir vilja umturna öllu í einu og það hentar einhverjum. Ég held að sú leið virki síður í það heila og betra sé að ákveða að taka t.d. einn mánuð í að koma reglu á vatnsdrykkju, næsta mánuð í að koma reglu á sykurneyslu og skoða um leið hvaða veikleika viðkom- andi hefur í sambandi við sykur. Færðu þér alltaf eitthvað sætt á ákveðnum stað? Hvað er hægt að gera í staðinn?“ Haraldur segir lágkolvetnamatar æði henta mörgum. „Margir hafa þá ímynd af slíku mataræði að viðkomandi borði bara beikon, smjör og rjóma í hvert mál. Hins vegar snýst slíkt mataræði um að minnka neyslu á einföldu, hásterkjukolvetni, eða „slæmum kolvetnum“ og borða heldur dökkt grænmeti, ber, góð prótein og góða fitu en láta „slæmu Þriggja mánaða sumarkort á 79.900 kr. Æfðu og nærðu líkama og sál í þægilegu og notalegu umhverfi. Aðstoð í sal og herðanudd í pottunum. Gjafabréfin okkar á nudd- og snyrtistofu eru tilvalin í útskriftarpakkann. Nánari upplýsingar í síma 444 5090. Lifðu og njóttu EINSTÖK HEILSURÆKT Hilton Reykjavik Spa – Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík – hiltonreykjavikspa.is – facebook.com/HiltonReykjavikSpa FÓLK KYNNINGARBLAÐ 4 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 0 . M a í 2 0 1 7 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -6 1 E 8 1 C F 7 -6 0 A C 1 C F 7 -5 F 7 0 1 C F 7 -5 E 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.