Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 33
VW Multivan er rúmgóður fjölskyldubíll sem nýtist bæði í borgarumferð og á
vegum úti. Í honum eru sæti fyrir sjö manns og hægt er að leggja niður öftustu
sætaröð og nýta hana sem svefnrými. Hugað er að hverju smáatriði í þessum
glæsilega fjölnotabíl og er notagildi hans einstakt.
„Volkswagen Caddy hefur verið einn vinsælasti atvinnubíllinn á Íslandi um langt skeið. Hann sameinar vel hina þekktu eiginleika Volkswagen sem ná til
áreiðanleika, öryggis og framúrskarandi hönnunar,“ segir Ingigerður Einarsdóttir. MYNDIr/ANTON BrINK
Hjá HEKLU er fjölbreytt úrval bifreiða, allt frá litlum vistvænum smábílum
sem eru tilvaldir í ýmiss konar erindrekstur, upp í stóra sendibíla og lúxusbíla.
Fyrirtækjasvið HEKLU er sér-hæft í heildarlausnum í bíla-málum fyrirtækja af öllum
toga og vöruframboðið er afar
breitt. „Við hjá HEKLU bjóðum
upp á fjölbreytt úrval bifreiða, allt
frá litlum vistvænum smábílum
sem eru tilvaldir í ýmiss konar
erindrekstur, upp í stóra sendibíla
og lúxusbíla. HEKLA býður auk
þess upp á gott úrval vörumerkja
svo auðvelt er að mæta þörfum
fyrirtækja sem vilja traustar og
áreiðanlegar bifreiðar,“ segir Ingi-
gerður Einarsdóttir, framkvæmda-
stjóri fyrirtækjasviðs.
Markaðurinn fyrir atvinnubíla
hefur farið stækkandi undanfarið,
að sögn Ingigerðar. „Viðskipta-
vinir HEKLU eru ört stækkandi
hópur sem gerir mjög mismun-
andi kröfur til bílanna og því er
mikilvægt að vera með víðtækar
lausnir og mikla vörubreidd. Við
bjóðum upp á mjög breiða línu
af sendibílum, atvinnubílum,
fólksflutningabílum og fólksbílum
bæði fyrir fyrirtæki og lögaðila.
Við erum með fjölbreytt vöruúr-
val og getum því boðið upp á sér-
sniðnar lausnir fyrir viðskiptavini
okkar og uppfyllt ólíkar kröfur.
Það getur verið skynsamlegt að
hafa mismunandi samsetningu
atvinnubíla í bílaflotanum, bæði
hvað varðar orkugjafa og stærðir,
og þar kemur HEKLA sterk inn,“
upplýsir Ingigerður.
Volkswagen
vinsælir atvinnubílar
Volkswagen atvinnubílar upp-
fylla ströngustu kröfur um gæði,
þægindi og endingu. „Volkswagen
Caddy hefur verið einn vinsælasti
atvinnubíllinn á Íslandi um langt
skeið. Hann sameinar vel hina
þekktu eiginleika Volkswagen
sem ná til áreiðanleika, öryggis
og framúrskarandi hönnunar.
Volkswagen Caddy er hægt að fá
fjórhjóladrifinn sem hentar mjög
vel við íslenskar aðstæður. Hann
fæst líka í tveimur lengdum, hefð-
bundinni og lengri gerð, auk þess
sem velja má á milli hagkvæmra
dísil-, bensín- og metanvéla,“ segir
Ingigerður.
Sjö manna fólksbíllinn getur
tekið sjö fullorðna í sæti en er auk
þess með 530 lítra farangursrými.
Bíllinn er með rennihurðum sem
gerir aðgengi að öftustu sætunum
mjög gott og þægilegt er að ganga
um hann. „Þú situr mjög vel í
honum og sætin eru hærri eftir því
sem þau eru aftar. Því er mjög gott
útsýni bæði fram í bílinn og til
hliðanna,“ bendir Ingigerður á.
Nýtt „rúgbrauð“
Volkswagen T6 atvinnubílar
samanstanda af Transporter, Cara-
velle og Multivan sem byggja allir
á arfleifð hins þekkta Volkswagen
„rúgbrauðs“. „Í ár er 70 ára afmæli
hins fræga rúgbrauðs og bjóðum
við upp á sérstaka afmælispakka
í tilefni þess. Allir atvinnubílar T6
línunnar bjóðast með fjórhjóla-
drifi sem getur gert gæfumuninn
hér á veturna. VW Transporter er
fáanlegur með rennihurð á báðum
hliðum og vængjahurð að aftan
með glugga. VW Caravelle hefur í
áraraðir fylgt fólki sem hefur þurft
á traustum og áreiðanlegum fólks-
Sérsniðnar lausnir á
atvinnubílamarkaði
Nýtt fyrirtækjasvið HEKLU leggur sérstaka áherslu á sölu og þjónustu til
fyrirtækja. Í boði eru sérsniðnar lausnir og fjölbreytt vöruúrval.
Volkswagen Caddy
hefur verið einn
vinsælasti atvinnubíllinn
á Íslandi um langt skeið.
Hann sameinar vel hina
þekktu eiginleika
Volkswagen sem ná til
áreiðanleika, öryggis og
framúrskarandi hönn-
unar.
Ingigerður Einarsdóttir
flutningabíl að halda. Hann er níu
manna og býður upp á mikið rými
fyrir farþega og farangur, enda
hannaður með þægindi og fólks-
flutninga í huga. Caravelle fæst
bæði beinskiptur og sjálfskiptur,“
segir Ingigerður.
Miklir notkunarmöguleikar
Þá er VW Multivan einnig einstak-
lega rúmgóður fjölskyldubíll sem
nýtist hvort sem er í borgarum-
ferð eða á vegum úti. „Í honum
eru sæti fyrir sjö manns og hægt
er að leggja niður öftustu sæta-
röð og nýta hana sem svefnrými.
Hugað er að hverju smáatriði í
þessum glæsilega fjölnotabíl og
er notagildi hans einstakt. Hann
fæst nú fjórhjóladrifinn og er því
fullkominn ferðafélagi í íslenskum
aðstæðum,“ segir Ingigerður og
bætir við að haustið verði ein-
staklega spennandi en þá verður
VW Crafter frumsýndur. „Ég fór á
dögunum til útlanda og reynsluók
nýjum Crafter og hlakka mikið
til að fá hann til landsins. Við
munum frumsýna nýjan Crafter
sendibíl í haust en hann hefur
breyst töluvert; í útliti, virkni
og tækni. Nýr Crafter var valinn
sendibíll ársins 2017 á Alþjóð-
legu atvinnubifreiðasýningunni í
Hannover og var það einróma álit
dómnefndar að hann væri einstak-
lega hagnýtur. Svo í lokin langar
mig að minna á pallbílinn VW
Amarok en við frumsýndum hann
nýlega við mikla lukku,“ segir
Ingigerður og bætir við að Amarok
bjóði upp á mikla notkunarmögu-
leika fyrir fólk með fjölbreyttan
lífsstíl, hann sé skemmtilegur í
akstri, flottur í útliti og til í fjöl-
breyttum útfærslum. „Hjá okkur
ættu allir að finna bíl við hæfi,“
segir Ingigerður að lokum.
KYNNINGArBLAÐ 13 Þ r I ÐJ U DAG U r 3 0 . m a Í 2 0 1 7
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
7
-8
9
6
8
1
C
F
7
-8
8
2
C
1
C
F
7
-8
6
F
0
1
C
F
7
-8
5
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K