Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 10
Dómsmál Þess er beðið að dómur falli í Hæstarétti sem gæti haft veruleg hamlandi áhrif á starf- semi Airbnb hér á landi. Fjölskip- aður dómur kemur til með að taka afstöðu til þess hvort þeim sem leigja út íbúðir á Airbnb í fjölbýlis- húsum beri að fá samþykki hús- félags fyrir útleigunni. Málflutn- ingur fer fram á miðvikudag. Í apríl á síðasta ári dæmdi héraðs- dómur á þá leið að hjónum, sem leigðu þrjár íbúðir út í fjölbýlis- húsum í Skuggahverfi við Vatnsstíg, bæri að fá samþykki íbúa í öllum íbúðum húsanna fyrir leigunni. Íbúðirnar eru ríflega sjötíu talsins. „Þetta er mjög fordæmisgefandi mál þar sem er í raun tekist á um allan pakkann. Það er tekist á um hvort um sé að ræða atvinnustarf- semi í skilningi laganna,“ segir Val- týr Sigurðsson lögmaður sem fer með mál hjónanna. Valtýr segir að fari svo að dæmt verði húsfélaginu í vil komi málið til með að hafa áhrif á heimild allra Airbnb-gestgjafa í fjölbýlishúsum. – snæ Arftaki flugráðs ekki starfað í eitt og hálft ár Fagráð um flugmál hefur ekki fundað í yfir nítján mánuði. Skipan nýs ráðs tefst af því að tilnefningar á konum vantar. Flugmenn harma að ráðið liggi í dróma og segja skjóta skökku við að ekki sé til opinber stefna stjórnvalda í flugmálum. Ef Hæstiréttur staðfestir málið þá hefur dómurinn verulegar raskanir í för með sér. Valtýr Sigurðsson, lögmaður Flugmenn sakna faglegrar umræðu um Reykjavíkurflugvöll og vonast eftir að blásið verði lífi í fagráð um flugmál. FRéttablaðið/Vilhelm stjórnsýsla Svokallað fagráð um flugmál sem leysti af hólmi flugráð hefur ekki haldið fund í meira en nítján mánuði. Ráðinu er ætlað að vera samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra til ráðuneytis um flug- og loftferðamál. Fyrst var skipað í fagráð um flug- mál í febrúar 2014. Þeir sjö sem tóku sæti í fagráðinu voru þá skipaðir til tveggja ára eða til febrúar 2016. Skipunartími þeirra rann því út fyrir 15 mánuðum. Ekki hefur verið skipað í ráðið að nýju en Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi innan ríkisráðuneytisins, segir það nú í undirbúningi. „Eftir síðustu ríkisstjórnarskipti hófst undirbúningur við skipun í ráðið og hafa tilnefningar borist en formlegri skipun er ekki lokið, meðal annars þar sem kanna þarf hjá sumum tilnefningaraðilum hvort unnt er að tilnefna konur þar sem það var ekki gert,“ útskýrir Jóhannes. Jafnframt bendir Jóhannes á að á síðasta fundi fagráðsins hafi verið rætt um að endurskoða hlutverk þess og að tengja það á einhvern hátt við gerð samgönguáætlunar. Ráðuneytið hefur á þessum tíma átt margs konar samráðsfundi með full- trúum flugrekenda, rekstraraðilum flugvalla, grasrótinni í flugheim- inum og Félagi íslenskra atvinnu- flugmanna. „Því hefur það ekki komið að sök þótt fagráðið hafi ekki verið virkt þennan tíma. Mikilvægt er þó að koma þessum samráðsvettvangi á að nýju,“ segir upplýsingafulltrúinn. Fréttablaðið hefur fengið afrit fundargerða þeirra sex funda sem fagráð um flugmál hélt frá fyrsta fundi 20. mars 2014 til síðasta fund- ar 15. október 2015. Eini meðlimur ráðsins sem fékk greitt fyrir setu sína þar var formaður þess, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir. Mánaðar- legar þóknanir til hennar fram til 14. febrúar 2016 námu samtals 711 þúsund krónum. „Ráðið virðist hafa farið vel af stað en lognast út af og það ber að harma,“ segir Ingvar Tryggvason, formaður öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Eitt og annað veki athygli í fundargerð- unum. Til dæmis komi þar fram gagnrýni á niðurskurð á fé til fram- kvæmda á innanlandsvöllum en þar sé ekki að finna umfjöllun um stöðu Reykjavíkurflugvallar og lokun flug- brautar 06/24 – sem stundum er kölluð neyðarbrautin. Ingvar segir að taka megi undir ýmislegt í fundargerðunum. Til dæmis að fagráðið sé eini vett- vangurinn sem fagaðilar komi að og mikilvægt sé að ráðið fái aðkomu að öllu því sem snertir flugið. Nefnt sé að varaflugvellir séu að verða ónot- hæfir til að koma í stað Keflavíkur- flugvallar þar sem meðal annars vanti flugvélastæði og að ástandið sé að verða mjög alvarlegt. Nýta mætti arð af Isavia til að greiða niður starf- semi á innanlandsflugvöllum. „Hins vegar er ekki að sjá að neinum málum sé fylgt eftir eða að stjórnvöld leiti til ráðsins með álita- mál,“ segir Ingvar. Ár eftir ár komi samgönguáætlun út með mörkuð- um fjárveitingum til framkvæmda á innanlandsvöllum. „Það næsta sem gerist er að fjárlög koma og þá er komið núll í alla dálkana. Við þetta ástand verður ekki unað lengur.“ Fundargerðirnar segir Ingvar framkalla mynd af brestum í flug- vallakerfi landsins. „Brestum sem stafa fyrst og fremst af stefnuleysi stjórnvalda. Flugrekstur stendur í dag undir rúmum 10 prósentum af landsframleiðslu samkvæmt innan- ríkisráðuneytinu en það er fimm- til sexfalt hærra hlutfall en í nágranna- löndunum. Það skýtur því skökku við að opinber stefna í flugmálum sé ekki til á Íslandi.“ Þá segir Ingvar það einlæga von Félags íslenskra atvinnuflugmanna að fagráð um flugmál verði endur- vakið og það starfi eins og til sé ætlast. Forveri fagráðs um flugmál, flugráð, sem lagt hafi verið niður eftir nærri 70 ára starf, hafi á þeim tíma verið mjög virkt og fundað alls 1.578 sinnum áður en yfir lauk í mars 2013. „Á Íslandi starfar aragrúi fjölhæfs og vel menntaðs fólks í fluggeir- anum. Allar upplýsingar, tölfræði og þekking eru til staðar á meðal þessa fólks til að stjórnvöld geti tekið af skarið og markað skýra og skynsamlega stefnu í flugmálum þjóðarinnar,“ segir Ingvar Tryggva- son. gar@frettabladid.is Ráðið virðist hafa farið vel af stað en lognast út af og það ber að harma. Ingvar Tryggva- son, formaður öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna Formlegri skipun er ekki lokið, meðal annars þar sem kanna þarf hjá sumum tilnefningar­ aðilum hvort unnt er að tilnefna konur þar sem það var ekki gert. Jóhannes Tómas- son, upplýsinga- fulltrúi innanríkis- ráðuneytisins CMYK litir blár: 100-68-7-28 grár: 33-18-13-37 Verkfræðingafélag Íslands Staða Íslands í loftslagsmálum Morgunfundur Verkfræðingafélags Íslands miðvikudaginn 31. maí á Hilton Reykjavík Nordica. Húsið opnar kl. 8:00 með léttri hressingu. Dagskráin hefst kl. 8:30 og fundi lýkur kl. 10. • Helstu stærðir í loftslagsmálum á Íslandi. Gylfi Árnason, verkfræðingur. • Skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Vanda Úlfrún Liv Hellsing, teymisstjóri í loftmengunar teymi Umhverfisstofnunar. • Hvað er í húfi? Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands. Pallborðsumræður: Auk fyrirlesara taka þátt Ágústa S. Loftsdóttir, verkefnisstjóri eldsneytismála og vistvænnar orku hjá Orkustofnun og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Fundarstjóri: Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika. Allir velkomnir. Vinsamlega skráið þátttöku: tilkynningar@verktaekni.is eða í síma: 535 9300. Fundurinn er á vegum Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ. ENDURLÍFGUNARTÆKI • Leiðbeinir með hjartahnoð • Tækið talar íslensku 551 0230 inter@inter.is Kr. 159.900 Tilboðsverð ÁRA 5 - Endingartími rafhlaðna- Endingartími rafskauta - Ábyrgð á tæki HJARTASTUÐTÆKI Gæti breytt miklu fyrir Airbnb-gestgjafa LLA-308 PRO álstigi 3x8 þrep 2,27-5,05 m 17.990 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Tröppur og stigar LFD 90AL70x33x100 cm 9.990 LLA-211 PRO álstigi/trappa 2x11 þrep 16.990 Áltrappa 4 þrep 4.940 5 þrep 6.390 Áltrappa 3 þrep 3.990 Í ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -A 7 0 8 1 C F 7 -A 5 C C 1 C F 7 -A 4 9 0 1 C F 7 -A 3 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.