Fréttablaðið - 30.05.2017, Síða 2

Fréttablaðið - 30.05.2017, Síða 2
Æft fyrir utanlandsferð 27 krakkar sem hafa meðal annars dansað í Billy Elliot og Bláa hnettinum í Borgarleikhúsinu æfa nú af fullum krafti fyrir alþjóðlega danssýningu sem haldin verður á Englandi síðar í vikunni. Sýningin er á vegum félags breskra leikhúsdansara og munu krakkarnir meðal annars fá leiðsögn frá nokkrum af þekktustu danshöfundum landsins. Mikið tækifæri fyrir þessa ungu og efnilegu dansara. Fréttablaðið/gva Veður Austankaldi og víða rigning, en snýst í hægari suðaustanátt á Suður- og Vesturlandi og styttir upp þar seinnipartinn. Kólnar heldur í veðri. sjá síðu 20 Garðtraktorar fyrir þá kröfuhörðu Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Efnahagsmál Óbeinna áhrifa af opnun Costco gætir í nýjustu verð- bólgumælingu Hagstofunnar. Um þetta eru hagfræðingar greiningar- deildar Arion banka og hagfræði- deildar Landsbankans sammála. Neysluverðsvísitalan í maí hækk- aði um 0,2%. Sé horft fram hjá hús- næðisliðnum lækkaði neysluverðs- vísitalan um 0,4%. Niðurstaðan er sú að tólf mánaða verðbólga fer úr 1,9% í 1,7%. Gústaf Steingrímsson, hag- fræðingur í hagfræðideild Lands- bankans, segir verð í ákveðnum vöruflokkum hafa lækkað, ólíkt því sem búast hefði mátt við. Þar nefnir hann föt, raftæki, snyrtivörur, tóm- stundavörur og varahluti í bíla. „Það eru sterkar vísbendingar um að áhrif Costco hafi verið þarna til staðar,“ segir Gústaf en bendir á að þar sé um að ræða lækkanir vöru- verðs hjá þeim verslunum sem voru fyrir á markaðnum og hafa verið að undirbúa sig undir opnun Costco. Undir þetta tekur Erna Sverris- dóttir, hagfræðingur hjá greiningar- deild Arion banka. Hún segir ekki vera hægt að sjá bein áhrif af opnun Costco strax. Mæling Hagstofunnar hafi verið gerð 8. til 12. maí, fyrir opnun Costco. Næsta mæling fari fram 12. til 16. júní. Erna segir að það verði spenn- andi að sjá hver beinu áhrifin af Costco á verðlagsvísitöluna verði. En Hagstofan muni taka tillit til markaðshlutdeildar verslunarinnar í útreikningum sínum. – jhh Minni verðbólga vegna Costco Costco hefur undanfarið boðið elds- neyti á mun lægra verði en önnur olíufélög. Fréttablaðið/Ernir miðborgin „Við bara hötum miðbæinn, það er ekki hægt að vinna þarna,“ segir Ólafur Foss, sjálfstætt starfandi sendibílstjóri hjá Nýju sendibílastöðinni. Að sögn Ólafs varaði lögreglu- maður sendibílstjóra við því á föstu- dag að nú eftir helgina myndi eftir- lit verða hert og sektum beitt gegn þeim sem afferma vörur í Austur- stræti eftir klukkan ellefu á morgn- ana. Hann segir þegar alltof mikið hafa verið þrengt að vöru- og fólks- flutningnum í miðbænum. Ekki sé nóg með að ekki sé gert ráð fyrir afhendingarstæðum fyrir svo stóra bíla heldur sé tímaglugginn aðeins fjórir klukkutímar – milli klukkan sjö og ellefu á morgnana. „Það er verið að troða öllum rút- unum og öllum sendibílunum á sama tíma niður í miðbæ og það náttúrlega gengur ekki því þá stífl- ast allt saman,“ segir Ólafur sem kveðst vera farinn að hafna túrum í miðbæinn. „Maður er endalaust að tefja fólkið fyrir aftan sig af því að það er ekki hægt að stoppa neins staðar til að afferma.“ Ólafur segir auðvelt að ímynda sér öngþveitið þegar upp í þrjátíu fyrirtæki séu að þjónusta Lauga- veginn á sama tíma. „Það er verið að þjónusta túristana þarna niður frá en samt er alltaf verið að þrengja að því að það sé hægt. Rúturnar hafa verið mjög illa séðar í miðbænum og alltaf verið að tuða í þeim. Núna eru sendibílarnar orðnir sama dæmið.“ Þá bendir Ólafur á að það séu ekki aðeins fyrirtækin í miðbænum sem noti sendibíla því þar búi mikið af fólki sem þurfi að flytja húsgögn og fleira. „Maður þarf að leggja ólög- lega, ganga með vöruna, keyra á móti umferð. Maður þarf að hlaupa inn og út með vörur með hjartað í brókunum yfir því hvort maður sé að fá sekt eða ekki. Þetta er frekar taugatrekkjandi,“ segir hann. Lausnina segir Ólafur meðal ann- ars geta falist í því að heimila vöru- losun frá klukkan fjögur á nóttinni líkt og Ölgerðin bað um leyfi fyrir í fyrra. Þeirri beiðni var synjað vegna þess að hún stangaðist á við hávaða- reglugerð eins og kom fram í Frétta- blaðinu í desember síðastliðnum. Aðspurður segir Ólafur sér finn- ast fáránlegt að íbúar í miðbænum kvarti undan hávaða frá vörulosun. Það eina sem heyrist í séu bakk- flautur. „Ég sé nú ekki að það sé mik- ill hávaði í tveimur mönnum sem eru að bera bjórkúta eða fara inn með pallettur. Fólk lætur náttúrlega allt fara í taugarnar á sér í dag. Hjól á ferðatöskum fara fyrir brjóstið á fólki. Það má ekki saumnál detta í dag þá er fólk farið að væla.“ Engin svör fengust frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna þessa máls. Ólafur bendir á að með allri þeirri takmörkun sem sé á umferð sendi- bíla um miðbæinn verði túrarnir lengri og dýrari. „Ef það bætist sekt ofan á, hver á þá að borga hana? Á ég að gera það? Það er ekki hægt að rukka kúnnann fyrir þetta.“ gar@frettabladid.is Taugastríð í miðbænum að buga sendibílstjóra Lögreglan er sögð boða hert eftirlit með sendibílum í miðbæ Reykjavíkur utan leyfðs affermingartíma á morgnana. Sendibílstjóri segist þurfa að beita brögð- um til að veita þjónustuna og jafnvel vera farinn að hafna túrum í miðbæinn. Ólafur segir þrengt að bílstjórum í miðbænum. Fréttablaðið/EyþÓr Ef það bætist sekt ofan á, hver á þá að borga hana? Á ég að gera það? Ólafur Foss sendibílstjóri alÞingi Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, baðst í gær afsökunar á ummælum sem höfð voru eftir honum í Frétta- blaðinu í gær. Sagði hann þau á mis- skilningi byggð. Ummæli ráðherrans, þess efnis að stjórnarandstaðan væri að „bregða fæti fyrir“ frumvörp um NPA-aðstoð og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, vöktu viðbrögð við upphaf þing- fundar í gær. „Hvað þetta varðar hefur minni- hlutinn réttilega vísað til þess að samkomulag hafi orðið um þessar lyktir mála milli minni- og meiri- hluta. Ummæli mín eru því á mis- skilningi byggð og er mér bæði ljúft og skylt að biðjast velvirðingar á því,“ segir í yfirlýsingu frá ráðherr- anum. – jóe Ráðherra biðst afsökunar á ummælum 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -5 8 0 8 1 C F 7 -5 6 C C 1 C F 7 -5 5 9 0 1 C F 7 -5 4 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.