Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2017, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 30.05.2017, Qupperneq 4
Gerir sláttinn auðveldari Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Það er leikur einn að slá með nýju garðsláttuvélunum frá CubCadet. Þær eru með MySpeed hraðastilli sem aðlagar keyrsluhraða vélanna að þínum gönguhraða. ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Ráðherrarnir Benedikt Jóhannesson, Óttarr Proppé og Björt Ólafsdóttir á þingfundi í gær. Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki, ýjaði að því að flokkur hinna síðarnefndu væri útibú frá flokki Benedikts. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Benedikt Jóhannesson (C) „Samkeppnishæfni greina verður aldrei tryggð með mismunandi skattareglum heldur með því að skapa heilbrigt rekstrarumhverfi fyrir allar greinar. Allir gleðjast yfir því þegar vel gengur í ferðaþjón- ustu. En ef Viðreisn vill vera sjálfri sér samkvæm berst hún gegn sérhagsmunum allra, líka vina sinna.“ Katrín Jakobsdóttir (V) „Samfélag er ekki aðeins bókhald sem þarf að stemma af. Samfélag er undirstaða þeirrar velferðar sem við viljum búa fólkinu okkar. Það er sáttmáli grundvallaður á réttlæti og sanngirni þannig að þeir sem mest hafa leggi hlutfallslega meira af mörkum en þeir sem hafa minna á milli handanna.“ Jón Gunnarsson (D) „Það er allt í lagi að gagnrýna og við vitum að það eru brotalamir sem þarf að laga, en það er ástæðulaust að tala allt niður í svaðið og það eykur sannarlega ekki virðingu Alþingis þegar slíkar raddir heyrast úr þessum ræðustól.“ Birgitta Jónsdóttir (P) „Þó má ekki gleyma því að mikil samstaða myndaðist um að verja heilbrigðiskerfi þjóðar- innar. Fjölmennasti undirskriftalisti lýðveldisins var krafa um endurreisn heilbrigðiskerfisins korter í kosningar, flokkarnir allir lofuðu að gera slíkt og samt lætur ríkisstjórnin eins og það skipti engu máli eftir kosningar.“ Óttarr Proppé (A) „Það eru mörg þjóðþrifamál sem lítill ágreiningur er um í íslenskum stjórnmálum. Alþingi hefur sýnt það trekk í trekk síðastliðinn vetur að við berum gæfu til þess að geta hafið okkur yfir flokkadrætti í þágu góðra mála. Það er gott og alls ekki sjálfsagt.“ Sigurður Ingi Jóhannsson (B) „Sé gengið til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis- flokkinn þarf að hafa afl til að standa í lappirnar. Slíkt afl hefur mér sýnst að viðhengin tvö, Björt framtíð og Viðreisn, hafi ekki. Viðreisn er útibú frá Sjálfstæðisflokknum, Björt framtíð virðist svo vera orðin útibú frá Viðreisn.“ Logi Már Einarsson (S) „Landspítalinn er orðinn svo heit kartafla að stjórnin getur ekki haldið á henni. Hún ræður ekki við reksturinn; sér þá einu lausn að setja pólitíska agenta yfir stjórn spítalans til að fela vandræða- gang sinn. Þrátt fyrir þá staðreynd að margt sé vel gert í heilbrigðismálum er æpandi sú staðreynd að þeim fjölgar sem sleppa því að sækja sér læknis- þjónustu vegna kostnaðar.“ ALÞINGI Þingmenn héldu eldhús- daginn hátíðlegan í gærkvöldi. Venju samkvæmt baunuðu stjórnar- andstæðingar á stjórnarþingmenn. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, reið á vaðið og líkti stjórnarmyndunarviðræðunum við kvöld á barnum þar sem stjórnar- flokkarnir hefðu farið heim saman í eftirpartý. „Þegar partýið loksins hefst hefur þreytan náð yfirhöndinni, enginn man lengur væntingarnar frá fyrr í kvöld, […], sumir eru svolítið fúlir með að hafa lent í þessu partýi en ekki einhverju öðru. Og húsráð- andinn er ekki einu sinni heima,“ sagði Katrín undir hlátrasköllum þingheims. Vísar hún þar til þess að Bjarni Benediktsson er um þessar mundir staddur í Björgvin á fundi norrænna forsætisráðherra. „Það er enn þá stjórnarkreppa á Íslandi. Hjálparflokkar Sjálfstæðis- flokksins eru í kreppu,“ sagði Svan- dís Svavarsdóttir, samflokkskona Katrínar, í sinni ræðu. Skömmu áður hafði Jón Gunnarsson, sam- gönguráðherra Sjálfstæðisflokks, sagt óhyggilegt að „hafa hestaskipti í miðri á, hvað þá að reyna það þegar enginn annar hestur er tiltækur“. Þingmönnum var tíðrætt um heilbrigðismálin, stöðu krónunn- ar, hvort stjórnin ætlaði sér frekari einkavæðingu í menntakerfinu og fjármálaáætlun stjórnarinnar. Þá gerði fjármálaráðherra starfshætti þingsins að umræðuefni. „Enn meira gagn væri að umræðum á Alþingi, ef þingmenn temdu sér þá vinnureglu að tala ekki nema þeir teldu sig eitthvað hafa til málanna að leggja, nýttu ekki alltaf þann tíma sem þeir hafa lengstan, heldur einbeittu sér að því að koma sínum skoðunum og ábendingum á framfæri á hnitmið- aðan hátt,“ sagði Benedikt. Koma Costco hefur verið talsvert milli tanna landans undanfarna daga og var hún einnig milli tann- anna á þingmönnum. Hildur Sverr- isdóttir, Sjálfstæðisflokki, vék örs- nöggt að því að Íslendingar hefðu verið að slá höfðatöluheimsmet í verslun við Costco en verslunin var fyrirferðarmeiri í ræðu Píratans Birgittu Jónsdóttur. „Það er stórmerkilegt að sjá þessa skyndilegu og auknu neytenda- vitund og meðvitundina um þann mátt samstöðu sem fólk er að fatta. Næsta bylgja samstöðu og hjálp- semi af þessu tagi gæti auðveldlega orðið um laun og launatengd rétt- indi, nú þegar margir samningar losna,“ sagði Birgitta. Í fyrsta sinn fluttu innflytjendur af fyrstu kynslóð ræður á eldhús- degi. Pawel Bartozsek, Viðreisn, reið á vaðið en Nichole Leigh Mosty, Bjartri framtíð, lokaði eldhúsdegin- um með tilfinningaþrunginni ræðu. „Þegar ég flutti hingað fyrir 16 árum síðan starfaði ég eins og flestir innflytjendur sem ræstitæknir því það var ekkert annað í boði fyrir manneskju eins og mig sem talaði næstum enga íslensku. Ég einangr- aðist og mætti fordómum oft og víða. En mjög margt hefur breyst og nú stend ég hér, þökk sé íslenska menntakerfinu,“ sagði Nichole. johannoli@frettabladid.is Costco og eftirpartý í eldhúsdagsumræðum Stefnt er að þinglokum í vikunni eftir snarpt og óvenjulegt vorþing. Af því til- efni fóru eldhúsdagsumræður fram á Alþingi í gær. Þingmenn allra flokka fóru um víðan völl en heilbrigðis-, mennta- og myntmál voru fyrirferðarmikil. 3 0 . m A í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R4 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A Ð I Ð 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -6 B C 8 1 C F 7 -6 A 8 C 1 C F 7 -6 9 5 0 1 C F 7 -6 8 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.