Fréttablaðið - 30.05.2017, Side 22

Fréttablaðið - 30.05.2017, Side 22
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Framhald af forsíðu ➛ Forveri Kletts, sem var vélasvið Heklu, tók við umboði fyrir Caterpillar árið 1947 og hefur Caterpillar frá þeim tíma verið leiðandi á markaði hér á landi. „Tæki frá Caterpillar hafa ávallt verið á meðal söluhæstu tækja á hverju ári síðan þá. Caterpillar vinnuvélar hafa komið við sögu í öllum stórframkvæmdum á sviði jarðvinnu hérlendis, sem sýnir svo sannarlega sterka og rótgróna stöðu CAT á Íslandi í 70 ár. Árangur CAT hérlendis má fyrst og fremst þakka þeim frábæru viðskiptavinum okkar sem hafa stólað á CAT þegar mest á reynir. Þegar áreiðanleikinn skiptir öllu máli treysta menn á Caterpillar. Áreiðanleiki og gæði eru einmitt meðal lykilatriða hjá Caterpillar sem hefur skilað þeim í fremstu röð vinnuvélaframleiðenda í heiminum í dag,“ segir Halldór Ólafsson, sölu- maður hjá Kletti. Góð þjónusta í fyrirrúmi Eitt af aðalsmerkjum Kletts er góð þjónusta. „Við leggjum höfuðáherslu á góða þjónustu, og teljum við að það sé okkar helsti styrkleiki. Við viljum vera í fararbroddi í þeim efnum að veita bestu mögulega þjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Klettur hefur yfir að ráða 24/7 365 þjónustu í öllum deildum. Hjá Kletti starfa um 80 manns og höfum við yfir að ráða einstaklega metnaðar- fullu og hæfileikaríku starfsfólki sem leitast ávallt við að finna hag- kvæmustu lausnir fyrir viðskiptavini okkar. Margt af okkar starfsfólki hefur starfað með okkur í nokkra áratugi. Hjá Kletti kemurðu svo sannarlega ekki að tómum kofanum hvað þekkingu starfsmanna varðar,“ segir Halldór. Caterpillar er stærsti framleiðandi vinnuvéla í heiminum. Með yfir 300 mismunandi tæki og vélar í sinni framleiðslulínu, allt frá minnstu vélum yfir í þær allra stærstu. „Alveg sama hver framkvæmdin er, þá á CAT tæki sem hentar,“ segir Halldór. Klettur - sala og þjónusta ehf. fagnar 70 ára samstarfs- afmæli við Caterpillar á Íslandi. Tæki frá Caterpillar hafa ávallt verið á meðal söluhæstu tækja á hverju ári síðustu sjö áratugina. Klettur afhenti Íslenskum aðalverktökum Caterpillar D9 í vor og myndin er tekin við það tilefni. Caterpillar vinnuvélar hafa komið við sögu í öllum stórframkvæmdum á sviði jarðvinnu hérlendis, sem sýnir svo sannarlega sterka og rótgróna stöðu CAT á Íslandi í 70 ár. Þegar áreiðanleikinn skiptir öllu máli treysta menn á Caterpillar. 2 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -7 5 A 8 1 C F 7 -7 4 6 C 1 C F 7 -7 3 3 0 1 C F 7 -7 1 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.