Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 38
Viðhaldsvöktun
Flota tryggir að
fyrirbyggjandi
viðhald sé fram-
kvæmt á réttum
tíma.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Viðhaldsvöktun Flota dregur úr óþægindum sem fylgja stopptíma ökutækja vegna
viðhalds. Vöktunin tryggir að fyrir-
byggjandi viðhald sé framkvæmt
á réttum tíma, að afkastageta
tækja sé í hámarki og að óvæntum
uppákomum fækki,“ segir Guðjón
Ýmir Lárusson, viðskiptastjóri
Flotalausna, sem segir hið nýja við-
haldskerfi ekki eiga sér hliðstæðu
á íslenskum markaði, og þó víðar
væri leitað.
Viðhaldsvökt-
unin, sem er hug-
búnaður þróaður
af starfsmönnum
Flota, heldur utan
um viðhaldssögu
ökutækis sem
Guðjón segir að geti
verið ómetanlegt
ef óvæntar bilanir
komi upp á. „Það
hjálpar öllum sem
koma að viðgerðinni að átta sig
betur á stöðunni. Það eykur skil-
virkni, minnkar tímann sem tækið
er ónothæft og sparar þannig fjár-
muni,“ lýsir hann.
Stopptíminn er
kostnaðarsamur
„Flestir viðskiptavinir okkar
mega ekki við því að tæki og bílar
stöðvist lengur en nauðsynlegt er.
Fyrirbyggjandi viðhaldsviðgerðir
gegna því lykilhlutverki við að
takmarka þann tíma sem farar-
tæki eru ónothæf og það dregur
úr kostnaði,“ segir Guðjón. Hann
bendir á að viðhaldsvöktun Flota
gefi stjórnendum og teymum
rauntímaaðgang að nýjustu við-
haldsgögnunum. Þannig sé hægt að
gera nauðsynlegar breytingar á við-
haldsverkefnum, gera ráðstafanir
og stýra álagi.
Enginn aukakostnaður
Viðhaldskerfið nýja er sjálfkrafa
uppsett hjá viðskiptavinum Flota
og kostar ekkert aukalega enn sem
komið er þar sem
það er innbyggt í
flotastýringarkerfi
fyrirtækisins.
Kerfið býður
upp á marga
möguleika. „Í því
geta viðskipta-
vinir sett inn hvaða
viðhaldi þeir vilji
fylgjast með og
stillt sjálfir hversu
oft eigi að framkvæma það. Það
getur ráðist af tíma, kílómetrum
eða vinnustundum. Eins er hægt að
nota kerfið til almennra áminninga
eins og hvenær eigi að fara með
tæki í skoðun, setja bíla á sumar-
dekk og þess háttar,“ lýsir Guðjón.
Raunar er það svo að ekki ein-
göngu stjórnendur og teymi við-
skiptavina Flota nota kerfið. Það
þekkist einnig vel að þriðji aðili,
eins og t.d. verkstæði sem sinnir
viðhaldi fyrir viðskiptavini, hafi
aðgang að viðhaldsvöktuninni til
að fylgjast með að allt sé á réttu róli
og til að skrá allt sem framkvæmt
er.
Nákvæm viðhaldssaga
mikilvæg
Í viðhaldsvöktunina er einnig hægt
að skrá viðhald sem þarf að fram-
kvæma en ekki var gert ráð fyrir.
Þar má nefna sem dæmi bilanir
sem koma upp og vilji er til að
halda utan um í viðhaldssögunni.
„Viðhaldssöguna má nálgast
fyrir öll þau tæki sem skráð eru í
vöktun. Þar má taka út skýrslu, allt
frá öllum bílum í einu, niður í einn,
og þar kemur fram allt sem hefur
verið framkvæmt ásamt viðeigandi
nauðsynlegum upplýsingum. Svo
það að týna smur- og þjónustu-
bókum er liðin tíð og auðvelt að
sýna fram á allt sem hefur verið
framkvæmt,“ segir Guðjón.
Vakta viðhald farartækja
Floti frá Trackwell þjónustar fyrirtæki og stofnanir með vöktun á tækjaflota, staðsetningu bifreiða
og úrvinnslu margskonar upplýsinga. Nýjasti hugbúnaðurinn er Viðhaldsvöktun Flota sem tryggir
að fyrirbyggjandi viðhald sé framkvæmt á réttum tíma og eykur þannig afkastagetu tækja.
Hann bendir á að fyrirtæki sem
eigi bíla- og tækjaflota en sinni
ekki viðhaldi eða geri það án
nútíma, alhliða viðhaldskerfis, séu
líklega að eyða meiri peningum en
þörf sé á. „Að fresta því að koma
skipulagi á þessi mál er dýrara til
langs tíma en skammtímakostn-
aður við innleiðinguna.“
Nánari upplýsingar á www.floti.is
Reynsluboltinn Bragi Bergmann Steingrímsson. MYND/ANTON BRINK
Bragi ásamt syni
sínum Steingrími,
ofan á Cat 966 B
Kom árið 1969.
Í rúma hálfa öld hefur Bragi Stein-grímsson, verkstæðisformaður hjá Hlaðbæ Colas, sinnt fjölbreyttum
verkefnum í tengslum við gatnagerð
og aðrar stærri framkvæmdir víða
um land. Margt hefur breyst á þessu
tímabili og ekki síst vinnuvélarnar
sjálfar, segir hann. „Þetta byrjaði allt
í september 1966 en á þessum tíma
flutti ég úr sveitinni ásamt foreldrum
og bróður mínum. Fyrst hóf ég störf
við gatnagerð í Breiðholti, nánar
tiltekið Arnarbakka, við röralagnir,
ýmsa vélavinnu, akstur vörubifreiða
af og til auk ýmissa fleiri verkefna.
Mér er það nú helst minnisstætt
hversu mikil kuldatíð var þá, mikill
snjór og frost.“
Seinna meir hóf Bragi að vinna á
ýmsum vélum, þar á meðal á forláta
krana sem notaður var við að hífa rör
og moka yfir þau, sem kastskófla og
til að hífa sprengimottur. Síðan bætt-
ist í hópinn Ford 5000 traktorsgrafa
með Hamjern gröfu og tönn, Bröyt x2
grafa og Cat 966B hjólaskófla.
Fram til ársins 1974 starfaði Bragi
vítt og breitt um landið í ýmiss konar
vélavinnu. „Þar má m.a. nefna vinnu
við Vesturlandsveg frá Ártúnsbrekku
í Kollafjörð, við Suðurlandsveg um
Kamba og í Ölfus, vinna við stíflu-
gerð og inntaksskurð við Þórisvatn,
við grófum fyrir
möstrum vegna
Búrfellslínu frá
Geithálsi að
Straumsvík,
unnum við Sig-
ölduvirkjun fyrsta
veturinn og við
Búrfell‚ Ólafsvík
á Snæfellsnesi og
mörgum fleiri
stöðum.“
Meira öryggi
Þegar hann hóf störf í malbikinu
hjá Hlaðbæ árið 1975 var hann
gerður að verkstjóra. „Eftir að
malbikunarhluti Hlaðbæjar var
keyptur af Colas árið 1987 hélt ég
þar áfram, fyrst við malbikunar-
vinnu og síðar sá ég um viðhalds-
verkstæðið og verkefni tengd því.“
Á þessari rúmu hálfu öld hefur
malbikið mikið breyst, að sögn
Braga, bæði efnin sjálf og blöndun
á því auk þess sem vinnuaðstæður
hafa breyst til batnaðar.
„Öll öryggismál eru í allt öðrum
farvegi en áður sem er mikið
framfaraskref. En vinnuandinn
hefur líka breyst þannig að þessi
verkgleði sem áður var er nú
horfin.“
Vinnutíminn var líka mun
lengri hér áður fyrr og algengt
að vinnudagur hæfist kl. 7.30 og
stæði yfir til næstum miðnættis.
Unnið var á laugardögum og
stundum á sunnudögum. „Þetta
þurfti að gera til að nýta vélarnar
og allan bílakost sem best. Staðan
er allt önnur á okkur í dag en við
erum með þrjár malbikunar-
stöðvar, þrjár stórar hjólaskóflur,
fjórar stórar malbikunarvélar, tvo
litla valtara auk ýmissa annarra
véla.“
Margt breyst á hálfri öld
Bragi Steingrímsson höf störf við gatnagerð árið 1966 og hefur starfað við hana síðan víða um
land. Flest hefur breyst til batnaðar utan þess að verkgleðin er ekki sú sama og áður fyrr.
Á ferð til Bíldudals, Önundarfjarðar og Hólmavíkur til að leggja olíumöl.
18 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
7
-7
5
A
8
1
C
F
7
-7
4
6
C
1
C
F
7
-7
3
3
0
1
C
F
7
-7
1
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K