Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 4
Leiðrétting
Í frétt í blaðinu í gær um
byggðaverkefni á Þingeyri sagði að
þorpið væri í Ísafjarðardjúpi. Hið
rétta er að Þingeyri er í Dýrafirði.
KjaramáL „Mér finnst að stofnun
eins og Ríkisútvarpið, flaggskip
íslenskrar menningar, beri að vera
með svona hluti á hreinu. Hag-
ræðingarkrafa eða rekstrartölur
mega aldrei verða til þess að það
sé gengið á réttindi starfsmanna,“
segir Kolbeinn Óttarsson Proppé,
þingmaður VG.
Hann hefur í tvo mánuði beðið
eftir upplýsingum frá mennta- og
menningarmálaráðherra um fjölda
starfsmanna á verktakasamningi
við RÚV. „Maður hefur heyrt það
að verktakar séu í auknum mæli að
sinna starfinu og ekki bara að taka
þátt og þátt, heldur séu að sinna
fullri starfsskyldu en séu ekki fast-
ráðnir starfsmenn heldur verktak-
ar,“ segir Kolbeinn við Fréttablaðið.
Þá vill hann líka vita hversu langan
tíma það tekur hjá starfsmönnum
stofnunarinnar að fá fastráðningu.
„Af því að það eru ákveðin réttindi
sem fylgja því,“ bætir Kolbeinn við.
Á þingfundi í fyrradag sakaði
Kolbeinn ráðherra menningar-
mála, Kristján Þór Júlíusson, um að
víkja sér undan því að svara fyrir-
spurninni vegna þess að hún væri
óþægileg. Fréttablaðið hefur aftur á
móti þær upplýsingar frá ráðuneyt-
inu að ítrekað hafi verið óskað eftir
svörum frá Ríkisútvarpinu. Svör við
fyrirspurninni hafi hins vegar dreg-
ist vegna þess að tímafrekt sé að
kalla fram umbeðnar upplýsingar.
Kolbeinn hefur hins vegar ítrek-
að sagt að það hljóti að vera hægt
að svara þessari upplýsingu greið-
lega. „Ég get ekki ímyndað mér
annað en að það sé mjög auðvelt að
svara þessari spurningu fyrir starfs-
mannahald RÚV. Það er ekki verið
að biðja um neina greiningu, bara
tölulegar staðreyndir,“ segir hann.
Kolbeinn óttast að sé verktaka-
samningum að fjölga hjá RÚV sé
stofnunin að fara á svig við kjara-
samninga og launataxta. „Ef þú ert
ráðinn inn sem verktaki þá eru það
bara samningar milli þín og verk-
kaupans,“ segir Kolbeinn og bætir
við að þar með njóti starfsmaður-
inn ekki lengur þeirra réttinda sem
fylgir því að vera launþegi. „Mér
finnst ótækt að þetta viðgangist
hjá ríkisstofnun, jafnvel þótt hún
sé opinbert hlutafélag,“ segir Kol-
beinn. Ríkið eigi að ganga á undan
með góðu fordæmi í vinnumark-
aðsmálum og hvað varðar réttindi
starfsmanna.
jonhakon@frettabladid.is
Hefur áhyggjur af réttindum
starfsmanna Ríkisútvarpsins
Þingmann VG grunar að verktökum hjá RÚV hafi fjölgað undanfarið. Nauðsynlegt sé að ríkið sýni gott
fordæmi á vinnumarkaði. Menntamálaráðuneytið hefur ítrekað spurst fyrir um málið án þess að fá svör.
Kolbeinn Proppé spurðist fyrir um starfsmannahald RÚV, en það hefur tekið langan tíma að fá svör. FRéttablaðið/PjetuR
Maður hefur heyrt
það að verktakar
séu í auknum
mæli að sinna
starfinu.
Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé,
þingmaður VG
WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ
FINNA UPP HJÓLIÐ
– ÞÚ FINNUR ÞAÐ HJÁ GÁP
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 10 - 16
stjórnsýsLa Þingvallanefnd sem
kjörin var á Alþingi fyrir rúmum
mánuði hélt sinn fyrsta fund síð-
astliðinn mánudag. Var það fyrsti
fundur Þingvallanefndar í sjö
mánuði eða frá því fyrri nefnd lauk
störfum rétt fyrir alþingiskosningar
í lok október í fyrra.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokks úr Suðurkjör-
dæmi, nýr formaður Þingvalla-
nefndar, segir mörg aðkallandi
verkefni bíða.
„Það er ýmis innviðauppbygging
og undirbúningur sem þarf til að
taka á móti 1,8 milljón ferðamönn-
um á ári hverju,“ segir Vilhjálmur.
Meðal annars segir Vilhjálmur
um að ræða lagningu rafstrengs til
að geta byggt upp vatnssalerni við
bílastæðin í þinghelginni á Völl-
unum og endurnýjun vegarins um
þjóðgarðinn. „Það þarf að byggja
veginn þannig að umferðaröryggi
sé tryggt en um leið séu gildi þjóð-
garðsins varin og að samfélagið sem
býr í návígi við þjóðgarðinn sé líka
haft í huga.“
Eftir langt fundarhlé bíða mörg
erindi Þingvallanefndar, meðal
annars frá aðilum sem vilja bjóða
veitingar eða afþreyingarþjónustu
í þjóðgarðinum.
„Við þurfum að byrja á að setja
okkur inn í það og hvernig það
passar inn í stefnumörkun og mark-
mið með þjóðgarðinum,“ segir nýi
formaðurinn.
Varaformaður Þingvallanefndar
er Theodóra S. Þorsteinsdóttir,
alþingismaður Bjartrar framtíðar,
úr Suðvesturkjördæmi. – gar
Margt á borði Þingvallanefndar sem fundar eftir sjö mánaða hlé
bygging salerna er meðal þeirra mála sem bíða nýrrar nefndar. Hefði komið
að góðum notum þegar þessi herramaður var á ferð. FRéttablaðið/PjetuR
BretLand Salman Abedi, sem myrti
22 í Manchester í síðustu viku,
keypti stærstan hluta efnisins sem
þurfti til að búa til sprengjuna einn
síns liðs. Frá þessu greindi lögregla
í gær. Að sögn Russ Jackson, yfir-
manns hryðjuverkadeildar lög-
reglu Norðaustur-Englands, var
Abedi einn að verki í flestum sínum
aðgerðum í aðdraganda árásar-
innar. Þó útilokar lögregla ekki að
hann hafi tilheyrt skipulögðum
hópi hryðjuverkamanna.
Þá sagði Jackson að rannsókn lög-
reglu undanfarna daga hefði eink-
um beinst að síðustu dögum Abedis.
Lögregla hefði skoðað myndbönd
úr eftirlitsmyndavélum og símtöl
Abedis.
Alls hafa sextán verið handtekin
í tengslum við árásina. Fimm hefur
verið sleppt án ákæru en ellefu eru
enn í haldi lögreglunnar. – þea
Keypti efnið í
sprengjuna einn
nOregUr Nokkur hundruð Norð-
menn segjast ætla að gefa eina
norska krónu fyrir hvern metra sem
nýnasistar í Norrænu andstöðu-
hreyfingunni ganga í fyrirhugaðri
mótmælagöngu sinni í júlí gegn
samkynhneigðum. Peningarnir
verða gefnir samtökum sem styðja
samkynhneigð ungmenni. Norð-
mennirnir vona að nýnasistar láti
verða af göngunni.
Íbúar í bænum Wunsiedel í
Þýskalandi fengu sams konar hug-
mynd árið 2014. Þá gengu nýnasist-
ar til heiðurs Rudolf Hess, staðgengli
Hitlers. – ibs
Græða á göngu
nýnasista
1 . j ú n í 2 0 1 7 F i m m t U d a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-6
0
B
8
1
C
F
C
-5
F
7
C
1
C
F
C
-5
E
4
0
1
C
F
C
-5
D
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K