Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 66
Hug my n d i n ko m í rauninni vegna þess að okkur hafði lengi dreymt um að fá nýja keppnisbúninga fyrir fótboltafélagið okkar og við feng- um gott boð á silfurfati – en við fengum boð um það að við gætum fengið búninga frá ítalska fyrirtæk- inu Macron. Umboðsaðilar Macron á Íslandi vildu styrkja eitthvert gott málefni og kynna þar með sína vöru og leyfa okkur að njóta góðs af því. Tímasetningin passaði vel við Dag rauða nefsins og þeim leist bara mjög vel á þetta,“ segir Björn Teitsson, meðlimur knattspyrnu- félagsins Mjaðmar, sem mun etja kappi við íslenska kvennalands- liðið í fúsball í portinu við Kex Host el á laugardaginn. Viðburðurinn er í boði KexLands og Vodafone fyrir UNICEF en líta má á þennan stórleik sem upphitun fyrir bæði Dag rauða nefsins sem og EM. Fyrir þá sem ekki þekkja er KF Mjöðm knattspyrnufélag skipað hinum ýmsu listaspírum og mið- bæjar-bóhemum og hefur félagið verið starfrækt í níu ár. Hvers vegna mætist þið í fúsball en ekki alvöru knattspyrnu? „Ég held að það yrði náttúrulega algjört glapræði að fara inn á völlinn í alvöru leik við landsliðið – bæði væri það mjög niðurlægjandi fyrir okkur og ekki síst algjör óþarfi að vera að hætta á meiðsl hjá okkar fulltrúum á alþjóðavettvangi á næstu mánuðum.“ Heimildir Fréttablaðsins herma að fyrir landsliðið spili þær Sandra Sigurðardóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Katrín Ásbjörns- dóttir og Lára Kristín Pedersen. Fyrir KF Mjöðm segir Björn að það sé þétt setinn bekkur og á honum verði m.a. Sindri „Sin Fang“ Már Sigfússon, Örvar Smárason, Högni Egilsson, Steinþór Helgi Arnsteins- son, Halldór Armand rithöfundur, Hilmar Guðjónsson leikari og fleiri. Hver er ykkar sterkasti leik- maður? „Ég myndi giska á Sindra – hann er svolítið þesslegur. Hann er með mjúkar hreyfingar og mikla útsjónarsemi.“ Dagskráin verður þannig að fyrir leik mun Högni Egilsson syngja þjóðsönginn af sinni alkunnu snilld og fljótlega eftir það hefjast leikar. Í hálfleik mun Kött Grá Pjé frumflytja lag Dags rauða nefsins – en þess má geta að hann er þekktur fyrir að fara úr buxunum á tónleik- um, svo þetta gæti orðið skemmti- legur flutningur. Eftir flutninginn hefst svo seinni hálfleikur en að honum loknum fer fram verðlauna- afhending og síðan verður áfram- haldandi fjör í portinu. Gummi Ben og Matti Már munu sjá um að lýsa leiknum. Glænýjar heimsforeldratreyjur KF Mjaðmar verða til sölu í tak- mörkuðu upplagi á viðburðinum en þær fara í sölu í vefbúð Vodafone í næstu viku. stefanthor@frettabladid.is Glapræði að spila fótbolta við landsliðið Íslenska kvennalandsliðið etur kappi við Knattspyrnufélagið Mjöðm í góðgerðarleik í fúsball á Kexi hosteli á laugardaginn. Viðburðurinn er upphitun fyrir Dag rauða nefsins. Í hálfleik mun Kött Grá Pjé frumflytja lag Dags rauða nefsins á sviði. Það verður örugglega hart tekist á í portinu við Kex hostel á laugardaginn. ÉG held að það yrði náttúruleGa alGjört Glapræði að fara inn á völlinn í alvöru leik við landsliðið – bæði væri það mjöG niðurlæGjandi fyrir okkur oG ekki síst alGjör óþarfi að vera að hætta á meiðsl hjá okkar fulltrúum á alþjóðavett- vanGi á næstu mánuðum. hr.is – Hagfræði – Iðnfræði/byggingafræði – Íþróttafræði – Lögfræði – Sálfræði – Tæknifræði Velkomin í HR Háskólinn í Reykjavík býður nemendum sínum nútímalega kennsluhætti, góða aðstöðu og sterk tengsl við atvinnulífið. Opið fyrir umsóknir í grunnnám til 5. júní. – Tölvunarfræði – Verkfræði – Viðskiptafræði – Haftengd nýsköpun – Frumgreinar 1 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R50 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð 0 1 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C F C -8 3 4 8 1 C F C -8 2 0 C 1 C F C -8 0 D 0 1 C F C -7 F 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.