Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 56
Pirates of the Caribbean: Salazar’s Revenge HHHHH Leikstjórar: Joachim Rønning, Espen Sandberg Framleiðendur: Jerry Bruckheimer Handrit: Jeff Nathanson Aðalhlutverk: Johnny Depp, Kaya Scodelario, Javier Bardem Varla er til neitt sem heitir slæm hugmynd, aðeins vond fram- kvæmd. Í eðli sínu hljómaði það samt eins og mistök að búa til bíó- mynd byggða á „skemmtitæki“ í Disneylandi, en það var nýtt í fyrstu Pirates of the Caribbean myndinni sem góður grunnur til þess að prófa ýmsa nýja hluti. Hvað gerðist svo? Hún hitti rakleiðis í mark á meðal fólks með heillandi umgjörð, gamal- dags ævintýrafíling og óbeisluðum Johnny Depp. Fjórum myndum og nokkrum milljörðum síðar í heildartekjum er Disney-risinn áfram staðráðinn í því að fanga aftur sömu töfra og sannfæra almenning um að síölvaði, flippaði kafteinninn Jack Sparrow og félagar hans séu ekki orðnir uppiskroppa með ný brögð. Þá kemur fimmta eintakið eins og kallað til að staðfesta það formlega að svo sé, þrátt fyrir að nýi liðsauk- inn hjálpi aðeins til að sinni. Serían hefur séð bæði aðeins verri og mun betri daga, en þrátt fyrir það fær áhorfandinn nákvæmlega það sem hann á von á; heilalausa, rándýra og leikna teiknimynd sem þrífst á því að vera yfirdrifin en engir sénsar eru teknir. Pirates of the Caribbean: Salazar’s Revenge er bundin því að fara eftir gömlum uppskriftum en í henni virðist hug- myndaflugið hafa að minnsta kosti verið víkkað meira heldur en í drep- leiðinlega fjórða kaflanum í serí- unni, þar sem Depp var strípaður öllum sjarma og formlega settur í burðarhlutverkið í stað þess að vera fyndinn fylgihlutur. Karakter eins og Jack Sparrow er einfaldlega ekki gerður til þess að bera sig einn í sviðsljósinu. Hann breytist aldrei né þróast og er best nýttur sem mótvægi við rétt- lætiskennd annarra, jarðbundnari karaktera. Depp sýnir merki um að hann njóti sín enn í rullunni sem hann upprunalega hlaut heila Óskarstilnefningu fyrir, en vandinn er nú að bæði persónan og frammi- staðan virkar eins og hún sé komin á sjálfsstýringu. Sami galli plagaði líka síðustu mynd. Fátt verra er hægt að gera við fígúru sem á að vera fjörug og óútreiknanleg en að blása hana út, þangað til hún verður bara fyrirsjáanleg og óspennandi. Brenton Thwaites leikur son Wills Turner, Henry, og er á tíðum álíka einhliða og pabbinn en slepp- ur alveg. Hið sama gildir ekki um persónuna Carinu Smyth, sem leik- in er af Kayu Scodelario. Sú hefur mikið karisma, lætur fljótt vel um sig fara í karlafýlunni og fer létt með að vera sval- asta persóna myndarinnar. Kaya og Geoffrey Rush stela senunni í sameiningu, en Rush sannar sig enn á ný sem einhver dýrmætasti fjár- sjóðurinn í seríunni. Að öðru leyti er Javier Bardem pass- legur sem ógnandi illmennið, enda leikarinn þekktur fyrir að lifa sig sterkt í sín hlutverk og Salazar er engin undantekning. Það er ekki alveg sama hvaða leikstjóri tekur að sér svona Pirates-mynd. Gore Verb- inski sinnti sínum þríleik með öruggum, fjölbreyttum tökum. Seinast tók svo söngleikjaunn- andinn Rob Marshall við og nú er taumurinn hjá norska leik- stjórateyminu Joachim Rønning og Espen Sandberg, mönnunum á bak við Max Manus: Man of War og Kon-Tiki, báðar frábærar myndir. Tvíeykið heldur stemningunni léttri, líflegri og fer ágætlega að því að gera ýktar, kaótískar hasarsenur snyrtilegar og stílhreinar, en tekst varla að setja merkan heildarsvip á vöruna. Útkoman verður eins bragðlaus í efnistökum og hún er prýðilega útlítandi og epísk. Peningurinn sést allur á skjánum, en það ætti að vera sjálfsagt mál þegar framleiðsluaurinn slær upp í 230 milljónir dala. Ef það er eitthvað sem fjármagn á erfitt með að fela þá eru það þunn- ildi. Þó eru gerðar margar tilraunir til þess með því að hafa stutt á milli hasaratriða. Sum þeirra falla undir þann flokk að bjóða upp á meira af því sama og við höfum áður séð, en það gerist þó stöku sinnum að hressilegt ímyndunarafl skín í gegn- um útfærslu þeirra (búturinn með fallöxinni er þar tær hápunktur). Í myndinni er teygt aðeins um of úr hamaganginum og hefði jafn- vel mátt hafa hana einni hasarsenu styttri, helst án bankaránsins þar sem sótt er lauslega í sömu fantasíu- reglur og í Fast & Furious 5 en gefur orðinu „hestöfl“ nýja merkingu. Ekki það að neinn biðji um lógík í mynd sem inniheldur klofin höf, óteljandi bölvanir, andsetta hákarla og skip sem auðveldlega springa í loft upp. Tómas Valgeirsson NiðuRStaða: Peningurinn sést allur á tjaldinu og myndin á sína spretti, en Depp og félagar endurvinna gamlar formúlur og virðast ekki sjá að bestu dagar Jacks Sparrow eru löngu iiðnir. Fjörugir sjóræningjar í þreyttum endurtekningum Karakter eins og Jack Sparrow er einfaldlega ekki gerður til þess að bera sig einn í sviðsljósinu. Hann breytist aldrei né þróast og er best nýttur sem mótvægi við aðra, jarðbundnari karaktera. Sendu okkur fimm toppa af Merrild umbúðum og þú gætir unnið gjafabréf fyrir utanlandsferð að upphæð 100.000 kr. Að auki verða dregnar út 10 kaffikörfur á tímabilinu. Dregið verður í júní, júlí og ágúst. Gildir fyrir alla Merrild pakka. Toppar af öllum Merrild umbúðum gilda. Þátttökuumslög er að finna í öllum verslunum. Úrslit verða birt á Facebook-síðu Merrild á Íslandi, og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um leikinn. 1 . j ú N í 2 0 1 7 F i M M t u D a G u R40 M e N N i N G ∙ F R É t t a B L a ð i ð Bíó 0 1 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C F C -6 0 B 8 1 C F C -5 F 7 C 1 C F C -5 E 4 0 1 C F C -5 D 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.