Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 34
Það eru nýir pastel litir sem lífga upp á hárið, fjólublátt, grænt, blátt og svo baby-blond. Gráir tónar og þessi kalda blanda sem hefur verið vinsæl er að hverfa. Steinunn Markúsdóttir Elín Albertsdóttir elin@365.is Steinunn á átta verðlaunagripi eftir að hafa orðið Íslands-meistari bæði í dömu- og herraklippingum. Þar að auki lenti hún í úrslitum Aveda Global Fashionista 2015 og 2016. Um sex þúsund keppendur tóku þátt í fyrra og um átta þúsund árið þar á undan en aðeins 21 vinnur til verðlauna. „Ég er ákaflega stolt af því að hafa komast í úrslit í þessari keppni. Það er mikill heiður,“ segir Steinunn. Hún starfar á Aveda hárstofunni í Faxafeni 9 og segir að það sé ánægja hennar með vör- urnar sem hafi komið henni aftur til að vinna við fagið en Steinunn hefur starfað sem stílisti við aug- lýsingatökur. Meðal annars í stóru verkefni fyrir Samsung fyrirtækið. Hún er með breskan umboðs- mann og hefur fengið margvísleg skemmtileg verkefni upp í hend- urnar, bæði hér á landi og erlendis. „Þegar ég kynntist Aveda vör- unum heillaðist ég gjörsamlega. Þetta eru umhverfisvænar vörur sem fara vel með hárið og okkur fagfólkið. Vegna þeirra ákvað ég að fara aftur að vinna á gólfinu,“ segir hún. „Ég hef átt mjög góð sam- skipti við stjórnendur fyrirtækis- ins á heimsvísu um nýjustu línur í klippingum, litun og greiðslu. Við erum eins og ein stór fjölskylda. Ég fæ alltaf nýjustu upplýsingar um tískulitina sem eru í gangi hverju sinni,“ segir hún. Steinunn var spurð hvaða litir væru vinsælastir í sumar. Hún svaraði um hæl að pastellitir í hárið væru málið í sumar. „Það eru vissar breytingar í gangi en ekkert svakalega miklar. Það eru nýir pastellitir sem lífga upp á hárið; fjólublátt, grænt, blátt og svo baby- blond. Gráir tónar og þessi kalda blanda sem hefur verið vinsæl er að hverfa. Hlýir og mjúkir tónar detta inn,“ útskýrir Steinunn en tekur fram að ekki sé mjög auðvelt að lýsa þessum nýju litum. „Litirnir eru settir hér og þar í hárið,“ segir hún. „Þegar þessir nýju litir eru settir í hárið þarf að lýsa það fyrst og hreinsa gamla liti úr hárinu. Mjög skemmtilegur blær kemur á hárið við þessa breytingu. Sumar konur eru mjög óhræddar við að prófa eitthvað nýtt og velja mjög áberandi liti, jafnvel allan regn- bogann. Þær sem eru mjög dökk- hærðar hafa verið að setja fallega súkkulaðiliti yfir dökka litinn, aðeins út í gyllta og ljósa tóna.“ Steinunn segir að axlasítt hár sé mjög vinsælt um þessar mundir. Síða hárið er að fjúka. „Þungir toppar eru vinsælir, jafnvel krullur. Mér finnst hárstíllinn vera að detta svolítið inn í „nineties“ fíling. Flétt- urnar halda þó velli, þær eru enn í tísku og notaðar á margvíslegan máta. Ég hef fylgst töluvert með tískunni í Þýskalandi og á Ítalíu, en þar er mikið um fléttur. Svo er mjög skemmtileg breyting hjá strákunum. Þeir koma í permanent og skeggið er horfið. Hárið er aðeins síðara en það hefur verið. Mjög margir herrar koma í strípur en það var mjög vinsælt á diskó- árunum. Tískan er svolítið að fara í þá átt. Langmestu breytingarnar eru þó í litum og þeim vörum sem við hárgreiðslufólk erum að vinna með. Þar hafa orðið miklar fram- farir. Það er alltaf skemmtilegt í vinnunni þegar svona breytingar verða.“ Steinunn segist ekki vera per- sónulegur stílisti en hefur gaman af því að gefa viðskiptavinum sínum góð ráð. „Ég er mest að vinna í aug- lýsingamálum en það eru ekkert mörg ár síðan ljósmyndarar hér á landi fóru að vinna með stílistum. Í útlöndum er heilt teymi á bak við hverja auglýsingu,“ segir Steinunn en hún sýndi glæsilegar greiðslur í jólablaði Glamour. Eftir hrunið spöruðu margir við sig í klippingu og litun. Nú er öldin önnur og aftur er komið líf og fjör á hárgreiðslustofurnar. „Það eru breyttir tímar og karlmenn eru ekki síður en konur uppteknir af því að líta vel út,“ segir Steinunn. „Maður er miklu öruggari með sig ef útlitið er í lagi. Mér finnst ekkert fallegra en glansandi heilbrigt og fallegt hár.“ Steinunn segir að hún fylgist mjög vel með því sem er að gerast á heimsvísu í faginu. „Við erum sífellt að endurmennta okkur og læra eitthvað nýtt.“ Líf og fjör í litun og klippingum Steinunn Markúsdóttir, hárgreiðslumeistari, förðunarfræðingur og stílisti, er margfaldur Íslandsmeistari og fylgist með því nýjasta. Steinunn Markúsdóttir er margfaldur Íslandsmeistari í hárgreiðslu en hún er einn- ig menntaður stílisti og förð- unarfræðingur. MYND/ERNIR Sumarhárgreiðsla. Skemmtilegir lita- tónar og krullað hár. Dökkt hár með bláum tónum. Þessi háralitur verður vinsæll í sumar. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott sumarföt, fyrir flottar konur Fa rv i.i s // 0 51 7 KRINGLUNNI | 588 2300 KJÓLL 9.495 Til í svörtu og hvítu ÁSKRIFTIN FYLGIR ÞÉR 365ASKRIFT.is Með sjónvarpsáskrift hjá 365 getur þú horft á uppáhaldssjónvarpsefnið þitt, hvar og hvenær sem er – því áskriftin fylgir þér. Kynntu þér málið á 365askrift.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . j ú n Í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 0 1 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F C -7 9 6 8 1 C F C -7 8 2 C 1 C F C -7 6 F 0 1 C F C -7 5 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.