Fréttablaðið - 01.06.2017, Síða 34
Það eru nýir
pastel litir sem lífga
upp á hárið, fjólublátt,
grænt, blátt og svo
baby-blond. Gráir tónar
og þessi kalda blanda
sem hefur verið vinsæl
er að hverfa.
Steinunn Markúsdóttir
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Steinunn á átta verðlaunagripi eftir að hafa orðið Íslands-meistari bæði í dömu- og
herraklippingum. Þar að auki
lenti hún í úrslitum Aveda Global
Fashionista 2015 og 2016. Um sex
þúsund keppendur tóku þátt í
fyrra og um átta þúsund árið þar
á undan en aðeins 21 vinnur til
verðlauna. „Ég er ákaflega stolt af
því að hafa komast í úrslit í þessari
keppni. Það er mikill heiður,“ segir
Steinunn. Hún starfar á Aveda
hárstofunni í Faxafeni 9 og segir
að það sé ánægja hennar með vör-
urnar sem hafi komið henni aftur
til að vinna við fagið en Steinunn
hefur starfað sem stílisti við aug-
lýsingatökur. Meðal annars í stóru
verkefni fyrir Samsung fyrirtækið.
Hún er með breskan umboðs-
mann og hefur fengið margvísleg
skemmtileg verkefni upp í hend-
urnar, bæði hér á landi og erlendis.
„Þegar ég kynntist Aveda vör-
unum heillaðist ég gjörsamlega.
Þetta eru umhverfisvænar vörur
sem fara vel með hárið og okkur
fagfólkið. Vegna þeirra ákvað ég að
fara aftur að vinna á gólfinu,“ segir
hún. „Ég hef átt mjög góð sam-
skipti við stjórnendur fyrirtækis-
ins á heimsvísu um nýjustu línur í
klippingum, litun og greiðslu. Við
erum eins og ein stór fjölskylda. Ég
fæ alltaf nýjustu upplýsingar um
tískulitina sem eru í gangi hverju
sinni,“ segir hún.
Steinunn var spurð hvaða litir
væru vinsælastir í sumar. Hún
svaraði um hæl að pastellitir í
hárið væru málið í sumar. „Það eru
vissar breytingar í gangi en ekkert
svakalega miklar. Það eru nýir
pastellitir sem lífga upp á hárið;
fjólublátt, grænt, blátt og svo baby-
blond. Gráir tónar og þessi kalda
blanda sem hefur verið vinsæl er
að hverfa. Hlýir og mjúkir tónar
detta inn,“ útskýrir Steinunn en
tekur fram að ekki sé mjög auðvelt
að lýsa þessum nýju litum. „Litirnir
eru settir hér og þar í hárið,“ segir
hún. „Þegar þessir nýju litir eru
settir í hárið þarf að lýsa það fyrst
og hreinsa gamla liti úr hárinu.
Mjög skemmtilegur blær kemur á
hárið við þessa breytingu. Sumar
konur eru mjög óhræddar við að
prófa eitthvað nýtt og velja mjög
áberandi liti, jafnvel allan regn-
bogann. Þær sem eru mjög dökk-
hærðar hafa verið að setja fallega
súkkulaðiliti yfir dökka litinn,
aðeins út í gyllta og ljósa tóna.“
Steinunn segir að axlasítt hár sé
mjög vinsælt um þessar mundir.
Síða hárið er að fjúka. „Þungir
toppar eru vinsælir, jafnvel krullur.
Mér finnst hárstíllinn vera að detta
svolítið inn í „nineties“ fíling. Flétt-
urnar halda þó velli, þær eru enn
í tísku og notaðar á margvíslegan
máta. Ég hef fylgst töluvert með
tískunni í Þýskalandi og á Ítalíu,
en þar er mikið um fléttur. Svo
er mjög skemmtileg breyting hjá
strákunum. Þeir koma í permanent
og skeggið er horfið. Hárið er
aðeins síðara en það hefur verið.
Mjög margir herrar koma í strípur
en það var mjög vinsælt á diskó-
árunum. Tískan er svolítið að fara
í þá átt. Langmestu breytingarnar
eru þó í litum og þeim vörum sem
við hárgreiðslufólk erum að vinna
með. Þar hafa orðið miklar fram-
farir. Það er alltaf skemmtilegt í
vinnunni þegar svona breytingar
verða.“
Steinunn segist ekki vera per-
sónulegur stílisti en hefur gaman af
því að gefa viðskiptavinum sínum
góð ráð. „Ég er mest að vinna í aug-
lýsingamálum en það eru ekkert
mörg ár síðan ljósmyndarar hér á
landi fóru að vinna með stílistum.
Í útlöndum er heilt teymi á bak við
hverja auglýsingu,“ segir Steinunn
en hún sýndi glæsilegar greiðslur í
jólablaði Glamour.
Eftir hrunið spöruðu margir við
sig í klippingu og litun. Nú er öldin
önnur og aftur er komið líf og fjör
á hárgreiðslustofurnar. „Það eru
breyttir tímar og karlmenn eru
ekki síður en konur uppteknir af
því að líta vel út,“ segir Steinunn.
„Maður er miklu öruggari með sig
ef útlitið er í lagi. Mér finnst ekkert
fallegra en glansandi heilbrigt og
fallegt hár.“
Steinunn segir að hún fylgist
mjög vel með því sem er að gerast
á heimsvísu í faginu. „Við erum
sífellt að endurmennta okkur og
læra eitthvað nýtt.“
Líf og fjör í litun
og klippingum
Steinunn Markúsdóttir, hárgreiðslumeistari,
förðunarfræðingur og stílisti, er margfaldur
Íslandsmeistari og fylgist með því nýjasta.
Steinunn
Markúsdóttir
er margfaldur
Íslandsmeistari
í hárgreiðslu en
hún er einn-
ig menntaður
stílisti og förð-
unarfræðingur.
MYND/ERNIR
Sumarhárgreiðsla. Skemmtilegir lita-
tónar og krullað hár.
Dökkt hár með bláum tónum.
Þessi háralitur verður vinsæll í
sumar.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Flott sumarföt, fyrir flottar konur
Fa
rv
i.i
s
//
0
51
7
KRINGLUNNI | 588 2300
KJÓLL
9.495
Til
í svörtu og hvítu
ÁSKRIFTIN
FYLGIR ÞÉR
365ASKRIFT.is
Með sjónvarpsáskrift hjá 365 getur þú horft á
uppáhaldssjónvarpsefnið þitt, hvar og hvenær
sem er – því áskriftin fylgir þér.
Kynntu þér málið á 365askrift.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . j ú n Í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-7
9
6
8
1
C
F
C
-7
8
2
C
1
C
F
C
-7
6
F
0
1
C
F
C
-7
5
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K