Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 56
Pirates of the Caribbean:
Salazar’s Revenge
HHHHH
Leikstjórar: Joachim Rønning,
Espen Sandberg
Framleiðendur: Jerry Bruckheimer
Handrit: Jeff Nathanson
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Kaya
Scodelario, Javier Bardem
Varla er til neitt sem heitir slæm
hugmynd, aðeins vond fram-
kvæmd. Í eðli sínu hljómaði það
samt eins og mistök að búa til bíó-
mynd byggða á „skemmtitæki“ í
Disneylandi, en það var nýtt í fyrstu
Pirates of the Caribbean myndinni
sem góður grunnur til þess að prófa
ýmsa nýja hluti. Hvað gerðist svo?
Hún hitti rakleiðis í mark á meðal
fólks með heillandi umgjörð, gamal-
dags ævintýrafíling og óbeisluðum
Johnny Depp.
Fjórum myndum og nokkrum
milljörðum síðar í heildartekjum
er Disney-risinn áfram staðráðinn
í því að fanga aftur sömu töfra
og sannfæra almenning um að
síölvaði, flippaði kafteinninn Jack
Sparrow og félagar hans séu ekki
orðnir uppiskroppa með ný brögð.
Þá kemur fimmta eintakið eins og
kallað til að staðfesta það formlega
að svo sé, þrátt fyrir að nýi liðsauk-
inn hjálpi aðeins til að sinni.
Serían hefur séð bæði aðeins verri
og mun betri daga, en þrátt fyrir
það fær áhorfandinn nákvæmlega
það sem hann á von á; heilalausa,
rándýra og leikna teiknimynd sem
þrífst á því að vera yfirdrifin en
engir sénsar eru teknir. Pirates of
the Caribbean: Salazar’s Revenge
er bundin því að fara eftir gömlum
uppskriftum en í henni virðist hug-
myndaflugið hafa að minnsta kosti
verið víkkað meira heldur en í drep-
leiðinlega fjórða kaflanum í serí-
unni, þar sem Depp var strípaður
öllum sjarma og formlega settur í
burðarhlutverkið í stað þess að vera
fyndinn fylgihlutur.
Karakter eins og Jack Sparrow er
einfaldlega ekki gerður til þess að
bera sig einn í sviðsljósinu. Hann
breytist aldrei né þróast og er
best nýttur sem mótvægi við rétt-
lætiskennd annarra, jarðbundnari
karaktera. Depp sýnir merki um
að hann njóti sín enn í rullunni
sem hann upprunalega hlaut heila
Óskarstilnefningu fyrir, en vandinn
er nú að bæði persónan og frammi-
staðan virkar eins og hún sé komin á
sjálfsstýringu. Sami galli plagaði líka
síðustu mynd. Fátt verra er hægt að
gera við fígúru sem á að vera fjörug
og óútreiknanleg
en að blása hana út, þangað til
hún verður bara fyrirsjáanleg og
óspennandi.
Brenton Thwaites leikur son
Wills Turner, Henry, og er á tíðum
álíka einhliða og pabbinn en slepp-
ur alveg. Hið sama gildir ekki um
persónuna Carinu Smyth, sem leik-
in er af Kayu Scodelario. Sú hefur
mikið karisma, lætur fljótt
vel um sig fara í karlafýlunni
og fer létt með að vera sval-
asta persóna myndarinnar.
Kaya og Geoffrey Rush stela
senunni í sameiningu, en
Rush sannar sig enn á ný
sem einhver dýrmætasti fjár-
sjóðurinn í seríunni. Að öðru
leyti er Javier Bardem pass-
legur sem ógnandi illmennið,
enda leikarinn þekktur fyrir að
lifa sig sterkt í sín hlutverk og
Salazar er engin undantekning.
Það er ekki alveg sama hvaða
leikstjóri tekur að sér svona
Pirates-mynd. Gore Verb-
inski sinnti sínum þríleik með
öruggum, fjölbreyttum tökum.
Seinast tók svo söngleikjaunn-
andinn Rob Marshall við og nú
er taumurinn hjá norska leik-
stjórateyminu Joachim Rønning
og Espen Sandberg, mönnunum
á bak við Max Manus: Man of War
og Kon-Tiki, báðar frábærar myndir.
Tvíeykið heldur stemningunni
léttri, líflegri og fer ágætlega að því
að gera ýktar, kaótískar hasarsenur
snyrtilegar og stílhreinar, en tekst
varla að setja merkan heildarsvip
á vöruna. Útkoman verður eins
bragðlaus í efnistökum og hún er
prýðilega útlítandi og epísk.
Peningurinn sést allur á skjánum,
en það ætti að vera sjálfsagt mál
þegar framleiðsluaurinn slær upp í
230 milljónir dala.
Ef það er eitthvað sem fjármagn á
erfitt með að fela þá eru það þunn-
ildi. Þó eru gerðar margar tilraunir
til þess með því að hafa stutt á milli
hasaratriða. Sum þeirra falla undir
þann flokk að bjóða upp á meira
af því sama og við höfum áður séð,
en það gerist þó stöku sinnum að
hressilegt ímyndunarafl skín í gegn-
um útfærslu þeirra (búturinn með
fallöxinni er þar tær hápunktur).
Í myndinni er teygt aðeins um
of úr hamaganginum og hefði jafn-
vel mátt hafa hana einni hasarsenu
styttri, helst án bankaránsins þar
sem sótt er lauslega í sömu fantasíu-
reglur og í Fast & Furious 5 en gefur
orðinu „hestöfl“ nýja merkingu.
Ekki það að neinn biðji um lógík í
mynd sem inniheldur klofin höf,
óteljandi bölvanir, andsetta hákarla
og skip sem auðveldlega springa í
loft upp.
Tómas Valgeirsson
NiðuRStaða: Peningurinn sést allur
á tjaldinu og myndin á sína spretti, en
Depp og félagar endurvinna gamlar
formúlur og virðast ekki sjá að bestu
dagar Jacks Sparrow eru löngu iiðnir.
Fjörugir sjóræningjar í þreyttum endurtekningum
Karakter eins og Jack Sparrow er einfaldlega ekki gerður til þess að bera sig einn í sviðsljósinu. Hann breytist aldrei né þróast og er best nýttur sem mótvægi við aðra, jarðbundnari karaktera.
Sendu okkur fimm toppa af Merrild umbúðum og þú gætir
unnið gjafabréf fyrir utanlandsferð að upphæð 100.000 kr.
Að auki verða dregnar út 10 kaffikörfur á tímabilinu.
Dregið verður í júní, júlí og ágúst.
Gildir fyrir alla Merrild pakka.
Toppar af öllum Merrild umbúðum gilda. Þátttökuumslög er að
finna í öllum verslunum. Úrslit verða birt á Facebook-síðu Merrild
á Íslandi, og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um leikinn.
1 . j ú N í 2 0 1 7 F i M M t u D a G u R40 M e N N i N G ∙ F R É t t a B L a ð i ð
Bíó
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
C
-6
0
B
8
1
C
F
C
-5
F
7
C
1
C
F
C
-5
E
4
0
1
C
F
C
-5
D
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K