Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 66
Hug my n d i n ko m í rauninni vegna þess að okkur hafði lengi dreymt um að fá nýja keppnisbúninga fyrir
fótboltafélagið okkar og við feng-
um gott boð á silfurfati – en við
fengum boð um það að við gætum
fengið búninga frá ítalska fyrirtæk-
inu Macron. Umboðsaðilar Macron
á Íslandi vildu styrkja eitthvert gott
málefni og kynna þar með sína
vöru og leyfa okkur að njóta góðs
af því. Tímasetningin passaði vel
við Dag rauða nefsins og þeim leist
bara mjög vel á þetta,“ segir Björn
Teitsson, meðlimur knattspyrnu-
félagsins Mjaðmar, sem mun etja
kappi við íslenska kvennalands-
liðið í fúsball í portinu við Kex
Host el á laugardaginn.
Viðburðurinn er í boði KexLands
og Vodafone fyrir UNICEF en líta
má á þennan stórleik sem upphitun
fyrir bæði Dag rauða nefsins sem og
EM. Fyrir þá sem ekki þekkja er KF
Mjöðm knattspyrnufélag skipað
hinum ýmsu listaspírum og mið-
bæjar-bóhemum og hefur félagið
verið starfrækt í níu ár.
Hvers vegna mætist þið í fúsball
en ekki alvöru knattspyrnu? „Ég
held að það yrði náttúrulega algjört
glapræði að fara inn á völlinn í
alvöru leik við landsliðið – bæði
væri það mjög niðurlægjandi fyrir
okkur og ekki síst algjör óþarfi að
vera að hætta á meiðsl hjá okkar
fulltrúum á alþjóðavettvangi á
næstu mánuðum.“
Heimildir Fréttablaðsins herma
að fyrir landsliðið spili þær Sandra
Sigurðardóttir, Málfríður Erna
Sigurðardóttir, Katrín Ásbjörns-
dóttir og Lára Kristín Pedersen.
Fyrir KF Mjöðm segir Björn að það
sé þétt setinn bekkur og á honum
verði m.a. Sindri „Sin Fang“ Már
Sigfússon, Örvar Smárason, Högni
Egilsson, Steinþór Helgi Arnsteins-
son, Halldór Armand rithöfundur,
Hilmar Guðjónsson leikari og fleiri.
Hver er ykkar sterkasti leik-
maður? „Ég myndi giska á Sindra
– hann er svolítið þesslegur. Hann
er með mjúkar hreyfingar og mikla
útsjónarsemi.“
Dagskráin verður þannig að fyrir
leik mun Högni Egilsson syngja
þjóðsönginn af sinni alkunnu
snilld og fljótlega eftir það hefjast
leikar. Í hálfleik mun Kött Grá Pjé
frumflytja lag Dags rauða nefsins –
en þess má geta að hann er þekktur
fyrir að fara úr buxunum á tónleik-
um, svo þetta gæti orðið skemmti-
legur flutningur. Eftir flutninginn
hefst svo seinni hálfleikur en að
honum loknum fer fram verðlauna-
afhending og síðan verður áfram-
haldandi fjör í portinu. Gummi Ben
og Matti Már munu sjá um að lýsa
leiknum.
Glænýjar heimsforeldratreyjur
KF Mjaðmar verða til sölu í tak-
mörkuðu upplagi á viðburðinum
en þær fara í sölu í vefbúð Vodafone
í næstu viku. stefanthor@frettabladid.is
Glapræði að spila
fótbolta við landsliðið
Íslenska kvennalandsliðið etur kappi við Knattspyrnufélagið
Mjöðm í góðgerðarleik í fúsball á Kexi hosteli á laugardaginn.
Viðburðurinn er upphitun fyrir Dag rauða nefsins. Í hálfleik mun
Kött Grá Pjé frumflytja lag Dags rauða nefsins á sviði.
Það verður örugglega hart tekist á í portinu við Kex hostel á laugardaginn.
ÉG held að það yrði
náttúruleGa
alGjört Glapræði að fara
inn á völlinn í alvöru leik
við landsliðið – bæði væri
það mjöG niðurlæGjandi
fyrir okkur oG ekki síst
alGjör óþarfi að vera að
hætta á meiðsl hjá okkar
fulltrúum á alþjóðavett-
vanGi á næstu mánuðum.
hr.is
– Hagfræði
– Iðnfræði/byggingafræði
– Íþróttafræði
– Lögfræði
– Sálfræði
– Tæknifræði
Velkomin í HR
Háskólinn í Reykjavík býður nemendum sínum nútímalega
kennsluhætti, góða aðstöðu og sterk tengsl við atvinnulífið.
Opið fyrir umsóknir í grunnnám til 5. júní.
– Tölvunarfræði
– Verkfræði
– Viðskiptafræði
– Haftengd nýsköpun
– Frumgreinar
1 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R50 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
C
-8
3
4
8
1
C
F
C
-8
2
0
C
1
C
F
C
-8
0
D
0
1
C
F
C
-7
F
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K