Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 6
Hrafnhildur Bridde
löggiltur fasteignasali
HB FASTEIGNIR
ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • ÞINN HAGUR
Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteigasali s: 821 4400
Ármúli 6 • 108 Reykjavík
Laus !
Falleg og rúmgóð 4-5 herb.,
116,9 fm íbúð á 1.hæð.
Baðherbergi og eldhús
hefur verið endurnýjað.
Mjög rúmgóð stofa með
svölum til suðvesturs.
Þrjú svefnherb. en mögu-
leiki á því fjórða.
Parket og flísar á gólfum.
Stutt í verslun, skóla og
aðra þjónustu.
Verð 47,7 millj.
FELLSMÚLI 13 , 108 REYKJAVÍK
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 17 - 17:30
OPIÐ HÚS
Akureyri Alvarleg mistök áttu sér
stað við lagningu nýs reiðvegar
sunnan við golfvöll Akureyringa
í vor. Jarðvegur sem notaður var
í veginn er mjög mengaður af alls
konar postulíni og glerrusli sem er
stórhættulegt bæði mönnum og
dýrum sem eiga leið um veginn. Svið-
stjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
Akureyrarbæjar segir þetta hræðileg
mistök og að rík áhersla sé lögð á að
verktaki skipti út jarðveginum.
„Þetta eru hrikaleg mistök sem
hafa átt sér stað við gerð reiðvegarins
og bæði mönnum og dýrum stendur
ógn af þessum vegi,“ segir Sigfús
Ólafur Helgason, framkvæmdastjóri
hestamannafélagsins Léttis á Akur-
eyri. Reiðvegurinn sem um ræðir
tengir hesthúsahverfi hestamanna
á Akureyri við náttúruperluna Eyja-
fjörð og er fjölfarinn alla daga.
„Þarna hefur verið að koma upp
glerrusl og postulín sem er stór-
hættulegt. Efnið virðist hafa verið
tekið úr eldgömlum ruslahaug því
þarna hafa komið upp Valash gler-
flöskur sem hætt var að framleiða í
kringum 1970 að mig minnir. Við
höfum verið í sambandi við Akur-
eyrarbæ og þeir hafa viðurkennt
að þarna hefur bara orðið slys við
framkvæmdina og þeir ætla að bæta
úr þessu. Það er ánægjulegt,“ bætir
Sigfús við.
Guðríður Friðriksdóttir, svið-
stjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
Akureyrarbæjar, segir vinnu vera
hafna við að bæta úr þessu. „Þetta
er til skammar og við leggjum mikla
áherslu á að úr þessu sé bætt. Verk-
takar sem unnu verkið eru að vinna
að því að skipta út þessum jarðvegi.
Þetta er ekki boðlegt eins og þetta
var,“ segir Guðríður. „Við höfum
tekið á þessu og munum fylgja þessu
eftir.“
Þegar blaðamaður kannaði
aðstæður í gær mátti sjá mikið af
gömlum glerflöskum, ampúlum og
postulíni í vegöxlum beggja vegna.
Ljúka á við lagfæringar á veginum á
næstu dögum en bæði gangandi og
ríðandi vegfarendur fara um veginn
dagsdaglega. sveinn@frettabladid.is
Nýr reiðvegur fullur
af gleri og postulíni
Mikil mistök voru gerð við lagningu nýs reiðvegar við Kjarnaskóg. Gler og
postulín í miklu magni að finna í jarðveginum. Stórhættulegt að mati fram-
kvæmdastjóra hestamannafélags. Sviðsstjóri Akureyrar segir málið til skammar.
Hinn vélræni armur laganna
Fyrsta starfhæfa lögregluvélmenni heims stendur vörð um fallbyssu í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Skotið er af fallbyssunni við sólsetur
til þess að tilkynna lok föstunnar dag hvern, en föstumánuðurinn ramadan er nú haldinn hátíðlegur á meðal múslima. Vélmennið, sem kallast Robocop,
var kynnt til sögunnar í síðustu viku. Það talar sex tungumál og getur lesið í svipbrigði borgara, löghlýðinna sem glæpamanna. Nordicphotos/AFp
Alþingi Ganga þarf úr skugga um að
það hafi ekki verið nefndarmenn í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
sem létu fjölmiðlum í té upplýs-
ingar um mat á hæfni umsækjenda
um dómarastarf í Landsrétti. Þetta
segir Njáll Trausti Friðbertsson,
framsögumaður í nefndinni. Hann
segir á þessari stundu þó ekkert
gefa sérstakt tilefni til að ætla að
gögnin, sem birt voru í fjölmiðlum í
fyrrakvöld, hafi borist úr nefndinni.
Njáll Trausti segist þó ekki hafa
myndað sér skoðun á því hvort
fram eigi að fara rannsókn á lek-
anum. „Ég myndi vilja ræða það
nánar inni í stjórnskipunar og eftir-
litsnefndinni,“ segir hann. Þessi
leki sé mjög óheppilegur og alvar-
legur. „Þetta hlýtur að teljast mjög
óheppilegt fyrir Alþingi að svona
lagað gerist þar sem við erum að
fara með persónuupplýsingar og
fórum mjög gætilega með þær. Við
tókum gögn til baka. Menn fengu
gögn á fundinum, höfðu þau hjá sér
og síðan tókum við þau til baka,“
segir hann. – jhh
Leki úr nefndinni sagður
óheppilegur fyrir Alþingi
Við erum að fara
með persónuupp-
lýsingar og fórum mjög
gætilega með þær.
Njáll Trausti Frið-
bertsson, fulltrúi
Sjálfstæðismanna
í stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd
nOregur Sjálfstæða rannsókna-
stofnunin Sintef segir í skýrslu sinni
að Norðmenn þurfi að grípa til 50
aðgerða til að margfalda útflutn-
ingsverðmæti norskra sjávarafurða.
Þeir þurfi að veiða og flytja út nýjar
tegundir.
Sjávarútvegsráðherra Noregs,
Per Sandberg, segir að aukinn
útflutningur á sjávarafurðum geti
bætt Norðmönnum upp minni
útflutning á olíu. Ráðherrann vill að
Norðmenn veiði meira á djúpsjávar-
miðum og flytji einnig út þang og
þara. Hann greinir frá því að þegar
hann hafi verið í Kína á dögunum
hafi Kínverjar verið hissa á að Norð-
menn veiddu ekki sæbjúgu. Þeir
borgi 15 þúsund norskar krónur
fyrir kílóið eða um 180 þúsund
íslenskar krónur. – ibs
Margfaldi
útflutning
sjávarafurða
Kínverjar greiða um 180 þúsund
krónur fyrir kílóið af sæbjúgum.
FrÉttABLAÐiÐ/ÓLAFUr
Gríðarlegt magn af gleri er að finna
í jarðveginum sem nýttur var í reið-
veginn. FrÉttABLAÐiÐ/sveiNN
Glerflöskur sem hætt var að fram-
leiða upp úr miðri síðustu öld koma í
ljós. FrÉttABLAÐiÐ/sveiNN
1 . j ú n í 2 0 1 7 F i M M T u D A g u r6 F r é T T i r ∙ F r é T T A B l A ð i ð
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-7
4
7
8
1
C
F
C
-7
3
3
C
1
C
F
C
-7
2
0
0
1
C
F
C
-7
0
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K