Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 10
MIÐNÆTUROPNUN
Í SMÁRALIND
20% afsláttur*
af öllum vörum
*ekki af merktri tilboðsvöru
Fríar sjónmælingar
Opið til 24:00
Bandaríkin Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, mun á næstu dögum
draga Bandaríkin út úr samkomu-
lagi 195 ríkja um aðgerðir í lofts-
lagsmálum, svokölluðu Parísarsam-
komulagi. Þetta fullyrða allnokkrir
bandarískir fjölmiðlar og vitna í
ónafngreinda heimildarmenn innan
ríkisstjórnar Trumps.
Samkomulagið var undirritað árið
2015 og var það í fyrsta sinn sem svo
stór hluti heimsbyggðarinnar sam-
einaðist í aðgerðum gegn loftslags-
breytingum. Alls samþykktu 195 af
197 ríkjum Sameinuðu þjóðanna
samkomulagið. Sýrland og Ník-
aragva stóðu ein utan þess.
Bandaríkin eru það ríki heims
sem blæs út næstmestu magni
gróðurhúsalofttegunda. Eru þau
því einungis eftirbátur Kínverja. Því
er ljóst að riftun samkomulagsins
myndi hafa veruleg áhrif.
Samkvæmt samkomulaginu
skuldbinda Bandaríkin sig til þess
að draga úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda um 26 til 28 prósent af
því sem útblásturinn var árið 2005
fyrir árið 2025.
Óttast er að væntanleg aðgerð
Trumps gæti orðið til þess að fleiri
ríki fari að fordæmi Bandaríkjanna
eða sinni skuldbindingu sinni verr.
Hins vegar hafa leiðtogar Kína, Ind-
lands og Evrópusambandsins sagst
munu virða samkomulagið jafnvel ef
Trump dregur Bandaríkin út úr því.
„Félagar okkar í Afríku, Asíu og
Kína vænta þess nú að Evrópa leiði
þetta átak og við erum tilbúin til
þess,“ sagði Maros Sefcovic, vara-
forseti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, við Reuters í gær.
„Samkomulagið fellur ekki saman
ef ríki dregur sig út úr því,“ sagði
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, í við-
tali við BBC. Hann sagði þó að
mikilvægt væri að Bandaríkin væru
áfram hluti af umræðunni þar sem
loftslagsbreytingar væru vandi allra.
„En ef eitt ríki dregur sig úr þá er
það meiri ástæða fyrir öll hin til að
sameinast og ganga úr skugga um að
markmið Parísarsamkomulagsins
verði uppfyllt,“ sagði Guterres enn
fremur.
Óljóst er með hvaða hætti ríkis-
stjórn Trumps gæti dregið sig út
úr Parísarsamkomulaginu. Þessu
heldur Paul Rincon, greinandi hjá
BBC, fram. Samkvæmt ákvæðum
samkomulagsins tekur fjögur ár að
draga sig út úr því en með því að
draga sig úr rammasamningi SÞ um
loftslagsbreytingar gætu Bandaríkin
losnað á einu ári.
Trump hefur verið einarður and-
stæðingur samkomulagsins allt frá
því í kosningabaráttunni. Hefur
hann til að mynda sagt að loftslags-
breytingar væru gabb. Þá hét hann
því í kosningabaráttunni að draga
Bandaríkin út úr samkomulaginu.
Það væri slæmt fyrir bandarískt
viðskiptalíf og ylli því að erlendir
embættismenn gætu haft of mikil
áhrif á bandarískt samfélag.
„Ég mun tilkynna um ákvörðun
mína er varðar Parísarsamkomulag-
ið á næstu dögum. GERUM BANDA-
RÍKIN FRÁBÆR Á NÝ,“ tísti forsetinn
í gær. thorgnyr@frettabladid.is
Parísarsamkomulagið er sagt í hættu
Donald Trump er sagður vilja draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. Evrópa býst við að leiða baráttuna gegn loftslagsbreyt-
ingum. Framkvæmdastjóri SÞ segir málið vandamál allra. Óljóst er hvernig Bandaríkin gætu dregið sig út úr samkomulaginu.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. NorDicPhoTos/AFP
Samkomulagið
fellur ekki saman
ef ríki dregur sig út
úr því.
Antonio Guterres,
framkvæmda-
stjóri Sameinuðu
þjóðanna
1 . j ú n í 2 0 1 7 F i M M T U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-9
B
F
8
1
C
F
C
-9
A
B
C
1
C
F
C
-9
9
8
0
1
C
F
C
-9
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K