Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 18
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Hinn 1. júní 2007 fyrir 10 árum komu til fram-kvæmda ný lög sem Alþingi hafði samþykkt árinu fyrr. Með lögunum varð, til allra heilla,
óheimilt að reykja á veitinga- og skemmtistöðum.
Undirrituð lagði fram frumvarp um slíkt bann í febrúar
2005 sem þingmannafrumvarp og fékk viðurnefnið
bann drottningin á göngum þingsins. Meðflutnings-
menn voru Ásta R. Jóhannesdóttir, Jónína Bjartmarz
og Þuríður Backman. Náði málið ekki fram að ganga
en umræðan um það var mikilvæg og upplýsandi. Jón
Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, lagði
sambærilegt mál fram í desember 2005 og þá sem
stjórnarfrumvarp. Var það samþykkt á Alþingi ári
seinna. Þorri þingmanna studdi málið að lokum. Þrír
greiddu þó atkvæði á móti.
Talsverð barátta var í aðdraganda málsins á þessum
árum milli bannsinna og hinna. Þar tókust á sjónarmið
frelsis og lýðheilsu. Svipuð sjónarmið og nú takast á
um hvort afleggja eigi rekstur ríkisins á áfengissölu eða
ekki. Meginmarkmið banns við reykingum á veitinga-
og skemmtistöðum var að vernda starfsmenn með
vísan til vinnuverndarlaga og að vernda almenning
með vísan til vaxandi fjölda vísindalegra sannana fyrir
heilsuskaða af óbeinum reykingum. Þarna var því um
að ræða bann til verndar þriðja aðila fyrir óbeinum
reykingum, þ.e. starfsmönnum og almenningi, en í
minni mæli bann til verndunar þeim sem reykti.
Sömu sjónarmið eru nú uppi í andstöðunni við aukið
aðgengi að áfengi og þar með neyslu. Þar ber að vernda
þriðja aðila sem mest. Hér er um að ræða þá aðila sem
helst mega þola neikvæðar félagslegar afleiðingar
aukinnar áfengisneyslu, börnin og ungmennin. Von-
andi ber okkur Íslendingum gæfa til þess að fara að
ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
í þessum efnum. Fyrir rúmlega 10 árum þótti ekki
sjálfgefið að leggja af þann ósið að reykja á veitinga- og
skemmtistöðum. Alþingi tók hins vegar rétta ákvörðun
í ljósi upplýsinga um skaðsemi óbeinna reykinga. Síðan
þá hefur stuðningurinn við reykleysið fest sig í sessi. Nú
tíu árum seinna vill enginn ganga til baka til fyrra fyrir-
komulags. Bönn til verndar lýðheilsu eru því réttmæt.
Fyrir tíu árum
Vonandi ber
okkur
Íslendingum
gæfa til þess
að fara að
ráðlegg-
ingum
Alþjóðaheil-
brigðismála-
stofnunar-
innar í
þessum
efnum.
Siv
Friðleifsdóttir
fv. alþingis-
maður
IS.WIDEX.COM
Hlustaðu nú!
Nánari upplýsingar
á vefsíðunni
Að þessu
virtu er ljóst
að ummæli
hvorki
ráðherra
ferðamála né
samgöngu-
ráðherra
standast
skoðun.
Óheppilegi lekinn
Skjal þar sem mat hæfnis-
nefndar á umsækjendum um
stöðu dómara við Landsrétt var
tíundað var birt á Kjarnanum
í fyrrakvöld. Smári McCarthy,
þingmaður Pírata, brást við
lekanum með þeim orðum að
skjalið hefði alls ekki átt að koma
fyrir sjónir almennings. Lekinn
væri „óheppilegur“. Þessi afstaða
Smára er afar athyglisverð í ljósi
þess að hann hefur sjálfur setið
hinum megin við borðið, í stöðu
blaðamanns, og unnið að því að
gera ýmsar upplýsingar opinber-
ar fyrir almenning. Sömuleiðis
hafa Píratar lýst þeim eindregna
vilja sínum að allar upplýsingar
séu uppi á borðum. Stundum
tekur það óvenju stuttan tíma að
verða samdauna kerfinu.
Vantraustið
En fulltrúi Pírata í stjórnskipun-
ar- og eftirlitsnefnd, Birgitta Jóns-
dóttir, boðaði vantraust á Sigríði
Á. Andersen rétt fyrir þinglok í
gær vegna málsins. Nefndin hefur
enda setið á maraþonfundum
vegna ákvörðunar Sigríðar um að
sneiða hjá hæfnisnefnd dómara.
Birgitta hefur nokkuð til síns
máls um að það sé ólíðandi að
varpa vantrausti á nýtt dómstig
strax á frumstigi. Millidómstigið
hefur verið draumur margra
helstu stjórnspekinga lands-
ins um árabil. Það væri algjört
klúður ef arfleifð Sigríðar yrði
sú að varpa skugga á það strax í
fæðingu. snaeros@frettabladid.is
Keflavíkurflugvöllur er nú í fimmta sæti af flugvöllum í Evrópu hvað varðar fjölda flugferða til Norður-Ameríku og nálgast Schiphol í Amsterdam. Flugferðir frá Keflavík vestur um haf eru fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum saman-
lagt.
Á sama tíma og Keflavíkurflugvöllur er í fordæma-
lausum vexti vill meirihluti fjárlaganefndar Alþingis
hefja umræðu um einkavæðingu flugvallarins. Þetta
kemur fram í áliti meirihlutans um þingsályktun um
fjármálaáætlun 2018-2022 en þar segir: „Meiri hlutinn
telur einnig tímabært að opna umræðu um að ríkið
leiti leiða til að umbreyta því fjármagni sem bundið er
í mannvirkjum í flugstöðinni í Keflavík og nota það til
átaks í endurbótum samgöngumannvirkja.“
Fleiri hafa talað um einkavæðingu Keflavíkurflug-
vallar eða aðkomu einkaaðila að stækkun flugvallarins.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, sagði á Alþingi 27. mars að það
væri álitaefni hvort ríkið ætti að byggja upp Keflavíkur-
flugvöll með skattfé eða hvort einkaaðilar ættu að koma
þar að.
Jón Gunnarsson samgönguráðherra sagði í fréttum
Stöðvar 2 hinn 27. apríl að einkavæðing Keflavíkurflug-
vallar þarfnaðist skoðunar. „Mér finnst það vera mjög
sterkt sjónarmið, að það sé þess virði að skoða það,
hvort það sé ástæða fyrir íslenska ríkið og íslenska þjóð
til að hafa bundna hér alla þá tugi milljarða sem hér
liggja í fjárfestingum með þeim áhættum sem því fylgir
að vera með fjárfestingar og lántökur í tengslum við
það,“ sagði Jón.
Þeir milljarðar króna sem liggja bundnir í Kefla-
víkurflugvelli eru ekki dautt fjármagn. Þessi verðmæti
gera Isavia kleift að fjármagna stækkun flugvallarins.
Frá 2013 hefur Isavia fjárfest í uppbyggingu Kefla-
víkurflugvallar fyrir 45 milljarða króna með lánum án
ríkisábyrgðar sem hafa verið veðtryggð með rekstrar-
tekjum flugvallarins. Þannig hefur rekstur fyrirtækisins
verið algjörlega sjálfbær í þeim skilningi að tekjur fyrir-
tækisins eru grundvöllur áframhaldandi vaxtar þess og
stækkun flugvallarins án þess að ríkið komi þar að með
beinum hætti.
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, sagði í Mark-
aðnum hér í þessu blaði í gær að áhugi erlendra fjárfesta
á Keflavíkurflugvelli hefði aukist að undanförnu. Ekki
síst eftir umræðu um einkavæðingu flugvallarins. Hann
sagði jafnframt að flugvöllurinn sjálfur gæti staðið
undir eðlilegum fjárfestingum. „Ég tel að það skipti
ekki máli í því sambandi hver eigi flugvöllinn því hann
myndi alltaf þurfa að standa undir þeim fjárfestingum
sem ráðast þarf í,“ sagði Björn Óli.
Að þessu virtu er ljóst að ummæli hvorki ráðherra
ferðamála né samgönguráðherra standast skoðun. Það
þarf ekkert skattfé í uppbyggingu Isavia í Leifsstöð. Fyr-
irtækið annast stækkunina án aðkomu skattgreiðenda
og þeir fjármunir sem eru bundnir á Keflavíkurflugvelli
eru grundvöllur áframhaldandi vaxtar fyrirtækisins.
Af þessu leiðir að það eru ekki gild rök fyrir einkavæð-
ingu Keflavíkurflugvallar að rekstur flugvallarins eða
stækkun hans skapi áhættu fyrir skattgreiðendur.
Ótæk rök
1 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R18 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð
SKOÐUN
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-5
B
C
8
1
C
F
C
-5
A
8
C
1
C
F
C
-5
9
5
0
1
C
F
C
-5
8
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K