Fréttablaðið - 01.06.2017, Page 26
Körfubolti Það hefur lengi stefnt
í það að Golden State Warriors og
Cleveland Cavaliers mætist í loka-
úrslitum NBA-deildarinnar og eftir
alltof mörg sóp í fyrri umferðum
úrslitakeppninnar og dágóða bið
frá því að úrslit deildanna kláruð-
ust er óhætt að segja að körfubolta-
fólk þyrsti í alvöru úrslitaeinvígi.
24 sigrar í 25 leikjum í ár
Í kvöld er loksins komið að þessu.
Það eru tíu dagar síðan Golden
State sópaði San Antonio Spurs út
og sjö dagar síðan meistararnir í
Cleveland afgreiddu Boston Celtics
sannfærandi í þriðja leiknum í röð
í Boston Garden. Það að þessi lið
séu búin að vinna 24 af 25 leikjum
sínum í úrslitakeppninni ætti að
þýða að bæði koma fersk til leiks í
Oracle Arena í Oakland.
Í raun hefur ekki reynt almenni-
lega á þessi tvö frábæru lið. Golden
State Warriors hefur unnið alla tólf
leiki sína og eina tap Cleveland
kom þegar liðið mætti til leiks „án“
LeBron James. James var eitthvað
veiklulegur og hafi einhver efast
um mikilvægi kappans þá heyrir
sá efi líklega sögunni til eftir að í
ljós kom hvað Cavs gerir án alvöru
framlags frá sínum besta manni.
Liðsmenn Golden State Warriors
hljóta samt að mæta til leiks í mikl-
um hefndarhug. Hvað annað er
hægt eftir lokaúrslitin í fyrra. Eftir
besta tímabil sögunnar vantaði
Golden State bara krúnuna til að
geta kallað sig besta lið allra tíma.
3-1 varð að 3-4
Liðið var 3-1 yfir og fékk þrjá leiki
til að landa síðasta sigrinum og
tryggja sér NBA-titilinn annað
árið í röð. En viti menn. Þeim
tókst að gera lítið úr manndómi
LeBron James sem svaraði með
einni mögnuðustu þriggja leikja
frammistöðu í sögu lokaúrslitanna.
Þegar upp var staðið hafi James og
félögum tekist að koma til baka og
vinna fyrsta NBA-titil Cleveland
Cavaliers.
Það er ekki alveg sama Golden
State lið sem mætir til leiks í ár.
Auðvitað verða alltaf einhverjar
mannabreytingar á milli tímabila
en nú mæta Warriors í lokaúr-
slitin búnir að bæta við sig einum
besta körfuboltamanni heims.
Það besta við það að mæta til leiks
með Kevin Durant er að hann er
líklegast hungraðasti maðurinn á
vellinum í titil enda einn af fáum
leikmönnum liðanna sem á ekki
hring. Bestu fréttirnar fyrir Warriors
er að stórstjörnurnar Kevin Durant
og Stephen Curry blómstra nú hvor
við annars hlið en þeir eru að skora
saman 53,8 stig að meðaltali í leik í
úrslitakeppninni. Báðir hafa tapað
einu sinni fyrir LeBron, Curry 2016
og Durant 2012, og ætla ekki að láta
það gerast aftur.
Súperframmistaða súperstjörnu
LeBron James leiddi Cleveland til
sigurs fyrir ári síðan og er þegar
búinn að skrifa NBA-söguna í þess-
ari úrslitakeppni með því að bæta
stigamet Michaels Jordan. James
þurfti vissulega fleiri leiki en um
leið færri skot til að ná átrúnaðar-
goði sínu. MJ er enn með þrjá fleiri
titla en James og LeBron þarf nú að
sýna meira af því sem hann sýndi í
síðustu þremur leikjum lokaúrslit-
anna í fyrra ætli hann að minnka
forskot Mikes í ár.
James var með 35,7 stig (55 pró-
sent skotnýting), 12,3 fráköst og 9,0
stoðsendingar að meðaltali í leik í
þremur síðustu leikjum lokaúrslit-
anna í fyrra. Við þeirri frammistöðu
átti Warriors-liðið fá svör og missti
frá sér titilinn.
Spekingar eru samt flestir á því
að Golden State Warriors vinni
NBA-titilinn í ár, bara spurning um
hvort það verði 4-3, 4-1 eða jafn-
vel 4-0. Austurdeildin þykir meðal
margra vera aðeins hálfdrættingur
á við Vesturdeildina og því er ekki
erfitt að draga þá ályktun að lið sem
kemur 12-0 í gegnum Vesturdeild-
ina eigi sigurinn vísan.
Að steypa kónginum af stóli
Lokaúrslit NBA-deildarinnar snúast
hins vegar oftast um frammistöðu
súperstjarnanna og á úrslitastundu
í fyrra réðu Warriors-menn ekk-
ert við James eða Kyrie Irving. Nú
eru þeir hins vegar búnir að bæta
við einum vænum vinstri krók
með Kevin Durant. Boltaflæðið og
breiddin er vissulega enn Warriors-
megin en þeir þurfa þurfa að steypa
kónginum af stóli og það er ekki létt
verk.
Eitt er víst, leikurinn í kvöld er
skylduáhorf fyrir allt NBA-áhuga-
fólk. Innbyrðisleikir liðanna voru
varla marktækir vegna meiðsla,
þreytu eða fjarveru leikmanna og
þetta eru því fyrstu alvöru leikir
tveggja bestu liða heims í eitt ár. Það
er komið að þriðja rétti í körfubolta-
veislu þessara liða og við fylgjumst
spennt með á Stöð 2 Sport.
ooj@frettabladid.is
Þriðji réttur veislunnar
Úrslitaeinvígi Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers hefst í kvöld en í
fyrsta sinn í NBA-sögunni mætast sömu liðin þrjú ár í röð. Warriors unnu 2015
og Cavs 2016 en nú er komið að lokauppgjöri á milli tveggja bestu liða heims.
Steph Curry hjá Golden State og LeBron James hjá Cleveland eru mjög mikilvægir sínum liðum. nordiCphotoS/Getty
Golden State Warriors og
Cleveland Cavaliers hafa
spilað þrettán leiki í loka
úrslitum NBA undanfarin
tvö ár. Golden State hefur
unnið sjö af leikjunum en
Cleveland sex.
ÚRSLITNBA
365.ISSÍMI 1817
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
399 kr. á dag
11.990 kr. á mánuð
i
*
*miðað við 12 mánaða bindingu
CLE 0
GSW 0
FIM. 1. JÚNÍ
KL. 01:00 LEIKUR 1
SUN. 4. JÚNÍ
KL. 00:00 LEIKUR 2
MIÐ. 7. JÚNÍ
KL. 01:00 LEIKUR 3
FÖS. 9. JÚNÍ
KL. 01:00 LEIKUR 4
7
LeBron James hefur spilað í
öllum sjö lokaúrslitunum frá
og með árinu 2011.
Víðir - Fylkir 0-5
0-1 Oddur Guðmundsson (22.), 0-2 Arnar
Björgvinsson (28.), 0-3 Oddur Guðmunds-
son (56.), 0-4 Albert Ingason (76.), 0-5
Hákon Ingi Jónsson (77.).
Ægir - Víkingur r. 1-3
0-1 Vladimir Tufegdzic (32.), 0-2 Ivica
Jovanovic (36.), 0-3 Alex Hilmarsson (44.).
Ír - Kr 1-1
0-1 Tobias Thomsen (47.), 1-1 Jón Gísli
Ström (63.)
KR vann í vítaspyrnukeppni.
Fh - Selfoss 2-1
1-0 Kristján Flóki Finnbogason (23.), 2-0
Kristján Flóki Finnbogason (32.), 2-1 Alfi
Lacalle (35.).
Valur - Stjarnan 1-2
0-1 Baldur Sigurðsson (34.), 1-1 Sigurður
Egill Lárusson, víti (45.), 1-2 Jóhann Laxdal
(69.).
ÍBV - Fjölnir 5-0
1-0 Kaj Leo i Bartalsstovu (6.), 2-0 Arnór
Ragnarsson (35.), 3-0 Mikkel Maigaard (41.),
4-0 Pablo Punyed (62.), 5-0 Sigurður Grétar
Benónýsson (90.+1.).
Borgunarbikar karla
Nýjast
18.30 the Memorial tour. Golfst.
19.05 Leiknir r. - Grindavík Sport
21.15 Borgunarbikarmörkin Sport
01.00 nBA: Warriors-Cavs Sport
Í dag
ÞrJár SuNDStELpur KOMNAr
MEð ÞrJú GuLL Í SAN MArÍNó
Ísland vann sjö gullverðlaun og
alls tólf verðlaun á
öðrum degi Smá-
þjóðaleikana
í San Marinó
í gær. Sund-
stelpurnar Bryn-
dís rún Hansen
(100 m flug), Eygló
ósk Gústafsdóttir (100 m bak) og
Hrafnhildur Lúthersdóttir (200
m bringa) bættu gullverðlaunum
við þau sem þær unnu á fyrsta
degi. Þær unnu síðan allar saman
gull í 4 x 200 m boðsundi ásamt
Sunnevu Dögg Friðriksdóttur og
eru því með þrjú gull á leikunum.
Íslenska karlasveitin fékk silfur.
Aðrir Íslendingar sem unnu gull á
leikunum í gær voru ásgeir Sigur-
geirsson (loftskammbyssu), Þor-
móður árni Jónsson (júdó), Anna
Soffía Víkingsdóttir (júdó).
Stutt á MILLI á LpGA-MótA
ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði
56. sætinu á Volvik-meistara-
mótinu sem lauk um síðustu helgi
en strax í dag hefur hún keppni
á næsta móti sínu á LpGA-móta-
röðinni. ólafía, sem hækkaði sig
um 44 sæti á heimslistanum með
frammistöðu sinni á Ann Arbor
vellinum (486. sæti), leikur í dag
fyrsta hringinn sinn á móti í New
Jersey. Hún hefur leik klukkan
7.15 um morguninn að staðartíma,
eða 11.15 að íslenskum tíma.
1 . j ú n í 2 0 1 7 f i M M t u D A G u r26 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
Sport
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-9
2
1
8
1
C
F
C
-9
0
D
C
1
C
F
C
-8
F
A
0
1
C
F
C
-8
E
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K