Fréttablaðið - 01.06.2017, Síða 47
Fótbolti Hörður Björgvin Magnús-
son, leikmaður Bristol City í ensku
B-deildinni, hefur ekki spilað marga
fótboltaleiki á árinu 2017. Eftir að
hafa byrjað fyrstu 24 leikina hjá
Bris tol var hann settur í frystikist-
una af knattspyrnustjóra liðsins og
tók aðeins þátt í fjórum leikjum af
síðustu 22 í deildinni.
„Svona er bara boltinn. Þegar
stjórinn hefur úr 35 leikmönnum
að velja. Þá er erfitt að halda öllum
góðum,“ segir Hörður Björgvin sem
leitaði svara við þessari bekkjarsetu
en greip meira og minna í tómt.
„Ég spurði hann spurninga um
hvað ég þyrfti að bæta til að fá aftur
minn spiltíma. Ég fékk tækifæri aftur
og nýtti það vel en svo var skipt um
kerfi og þá fór ég aftur á bekkinn.“
Þrátt fyrir mikla bekkjarsetu líkar
Herði lífið vel á Englandi en hann
kom í hörkuna í B-deildinni frá
Ítalíu.
„Þetta er smá breyting frá Ítalíu
en menningin er svipuð og á Íslandi
þannig að ég var snöggur að aðlagast.
Mér gekk vel í fyrstu 24 leikjunum
sem ég spilaði en síðan koma líka
erfiðir tímar. Þjálfarinn ræður liðinu
og maður þarf bara að vera tilbúinn
þegar kallið kemur aftur,“ segir hann.
Bekkjarsetan hjálpar Herði ekk-
ert að vinna sér sæti í byrjunarliði
íslenska landsliðsins en fá lið í heim-
inum í dag er erfiðara að komast inn
í enda árangurinn verið stjarnfræði-
legur á undanförnum misserum.
„Allt hefur þetta áhrif en lands-
liðsþjálfararnir vita og skilja vel
ástæðu þess að ég er ekki að spila
þarna úti. Þeir eru í reglulegu sam-
bandi við okkur. Þeir sýndu þessu
mikinn skilning og vita út í hvað ég
er kominn þarna. Aðalmálið er að ég
sé í standi og er að æfa vel. Ég er enn
þá í leikformi,“ segir Hörður Björgvin
Magnússon. – tom
Landsliðsþjálfararnir skilningsríkir
Hörður Björgvin Magnússon skoraði glæsilegt mark í fyrsta sigri Íslands á
Írum í Dyflinni í mars. NorDicPHotos/Getty
Handbolti Geir Sveinsson, lands-
liðsþjálfari karla í handbolta, hefur
gert breytingu á landsliðshópnum
sem hefur leik á fjögurra þjóða móti
í Noregi í næstu viku.
Stefán Rafn Sigurmannsson, leik-
maður Álaborgar í Danmörku, hefur
þurft að draga sig út úr hópnum
vegna meiðsla og í hans stað kemur
Arnar Freyr Ársælsson, leikmaður
FH.
Arnar Freyr er nýliði en hann fær
nú sínar fyrstu mínútur með lands-
liðinu á Gjensidige-bikarnum í
Noregi sem hefst 8. júní.
Nokkrir lykilmenn landsliðsins fá
frí í verkefninu eins og Aron Pálm-
arsson. – tom
Arnar Freyr inn
fyrir Stefán
Arnar Freyr Ársælsson er nýliði í
landsliðinu. FréttABlAðið/erNir
Handbolti ÍR fékk heldur betur liðs-
styrk fyrir átökin í Olís-deild karla í
handbolta næsta vetur þegar Björg-
vin Þór Hólmgeirsson samdi við
liðið. Eftir eitt ár í næstefstu deild
eru ÍR-ingar mættir aftur í deild
þeirra bestu og voru áður búnir að
landa hornamanninum Kristjáni
Orra Jóhannssyni frá Akureyri.
„Já, þið lásuð rétt, langbesti leik-
maður Olís deildarinnar fyrir tveim-
ur árum er kominn heim. Þetta und-
irstrikar enn frekar þá stefnu okkar
að koma ÍR aftur í fremstu röð, þar
sem við eigum heima,“ sögðu ÍR-
ingar á heimasíðu sinni um heim-
komu Björgvins.
Hann var kjörinn besti leikmaður
tímabilsins 2014-2015 þegar ÍR
hafnaði í þriðja sæti en hann hefur
undanfarin ár spilað með Al Wasl í
Dúbaí. Austurlandaævintýrinu er
nú lokið. – tom
Björgvin heim
í Breiðholtið
Björgvin Þór verður mikill liðsstyrkur
fyrir Ír. FréttABlAðið/ANDri MAriNó
Með innbyggðri aptX
tækni og NFC pörun
9.990
1.490TRUST FERÐARAFHLAÐATrust Tag 2600mAh ferðaraf-hlaða með allt að 10klst hleðslu 1.990
16GB MINNISKORT
Elite, Ultra High Speed
MicroSDXC minniskort
DJI MAVIC PRO
Stórglæsilegur Dróni
með 4K myndavél á
3-Axis festingu, hægt
að brjóta hann saman
ARCTIC P614BT
Glæsileg Bluetooth
heyrnartól sem henta
jafnt í tónlist og sem
handfrjáls búnaður
Kemur með glæsilegum
aukahlutapakka
199.990 MOBII 748Frábær 7” spjaldtölva
með þráðlausum
BT heyrnartólum og
silíkon varðri högghlíf
Frábærar spjaldtölvur
fyrir yngri kynslóðina
9.990
32GB SDXC
2.990
64GB SDXC
4.990
128GB SDXC
9.990
1TB SG EXPAN
2TB ÚTGÁFA
14.990
4TB ÚTGÁFA
24.990
1TB FLAKKARI
2.5” Seagate Expansion flakkari
7.990
TRUST FESTINGAR
TRUST FESTINGAR
Fyrir síma og spjaldtölvur á verði frá
2.990
UR23iw
KOSS UR23i
Hágæða heyrnartól með hljóðnema
2.990
AURUS
ÍÞRÓTTA TAPPAR
Sem hrinda frá sér vatni. Fæst í 3 litum
3.490
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
www.tolvutek.is
N
ÝR
BÆ
KL
ING
UR
Allt að 50% afsláttur
SUMARTILBOÐ
7” HD IPS
1280x800 snertiskjár
1.0GHz Quad
A33 Allwinner örgjörvi
8GB flash
Allt að 32GB Micro SD
Android 5.1
Lollipop og fjöldi forrita
3
LITIR
VERÐ ÁÐUR2.990
SUMARTILBOÐ
VERÐ ÁÐUR8.990
SUMARTILBOÐ
VERÐ ÁÐUR 12.990
SUMARTILBOÐ
1. júní 2017 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
CARCHARGER 3
TRIPLE USB
Arctic Smart Charge bílahleðslutæki
1.245
VERÐ ÁÐUR2.495
50%AFSLÁTTUR
YZO BLUETOOTH
Þráðlaus ferðahátalari, allt
að 8 tíma hleðslurafhlaða 3.490
SNJALLSUMAR
NÝR BÆKLINGUR Á TOLVUTEK.IS
VERÐ ÁÐUR 209.990
SUMARTILBOÐ
VERÐ ÁÐUR 4.990
SUMARTILBOÐ
S k o ð u n ∙ F R É t t a b l a ð i ð 31F i M M t u d a G u R 1 . j ú n í 2 0 1 7
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-9
2
1
8
1
C
F
C
-9
0
D
C
1
C
F
C
-8
F
A
0
1
C
F
C
-8
E
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K