Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 67
iglo+indi í samstarfi við lands-nefnd UN Women á Íslandi kynnir empwr-peysuna. Peys-an er hönnuð bæði fyrir börn og fullorðna og er þetta í fyrsta
sinn sem iglo+indi hannar einnig
flík fyrir fullorðna. Prent peysunnar
er unnið úr mynstri sprottnu frá
Kamerún þar sem UN Women starf-
rækja griðastaði fyrir konur á flótta.
„Aldrei hafa fleiri verið á flótta í
heiminum en nú, en um 65 millj-
ónir manna eru á flótta eða á ver-
gangi, þar af helmingur konur. Þær
eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir
ofbeldi og mansali en oftar en ekki
eru atvinnutækifæri kvenna á flótta
af skornum skammti.
UN Women starfrækja griðastaði
fyrir konur á flótta víða um heim,
þar á meðal í Kamerún, Austur-
Kongó, Serbíu, Makedóníu, Jórdan-
íu og Írak. Þar gefst þeim kostur á að
vinna, stunda hagnýtt nám í tungu-
málum, tölvuvinnslu, klæðskurði og
saumaskap, viðskiptaáætlanagerð
og bókhaldi. Um leið hljóta þær sál-
ræna aðstoð og áfallahjálp, félags-
skap og jafningjastuðning. Með því
að kaupa empwr-peysuna styður þú
við rekstur griðastaða UN Women
og gerir konum á flótta kleift að
öðlast kraft og tækifæri á ný,“ segir
Hanna Eiríksdóttir, starfandi fram-
kvæmdastýra UN Women á Íslandi,
og býður um leið alla hjartanlega
velkomna í empwr-partí á Geira
Smart í dag kl. 17.
„Þar ætlum við að fagna empwr-
peysunni og krafti kvenna á flótta.
Empwr-peysan verður seld á staðn-
um, léttar veitingar eru í boði og
Sunna Ben þeytir skífum. Svo spáir
meira að segja sól – allir eru hjartan-
lega velkomnir.“
Pipar\TBWA og Dóttir gáfu vinnu
sína við undirbúning átaksins auk
þess sem hljómsveitin East of my
Youth lánaði átakinu lagið Stronger.
Ágóði af sölu peysunnar rennur
til styrktar rekstri griðastaða UN
Women. Empwr-peysan fæst í versl-
unum iglo+indi og á www.igloindi.
com. Verð á barnapeysu er 5.990
krónur og verð á fullorðinspeysu er
8.990 krónur.
stefanthor@frettabladid.is
UN Women kynnir empwr-peysuna
Empwr nefnist peysa sem iglo+indi hefur hannað fyrir UN Women og rennur allur ágóði af sölu peysunnar til styrktar
rekstri griðastaða UN Women. Í tilefni þessa verður haldið sérstakt empwr-partí á Geira Smart klukkan fimm í dag.
Þetta er í fyrsta sinn sem iglo+indi hannar flík sem einnig er fyrir fullorðna. Mynd/AlexAndrA Kristjánsdóttir
Við ætlUm að fagNa
empWr-peysUNNi og
krafti kVeNNa á flótta.
empWr-peysaN VerðUr seld á
staðNUm, léttar VeitiNgar
erU í boði og sUNNa beN
þeytir skífUm. sVo spáir
meira að segja sól – allir
erU hjartaNlega VelkomNir.
hr.is
– Hagfræði
– Iðnfræði/byggingafræði
– Íþróttafræði
– Lögfræði
– Sálfræði
– Tæknifræði
Velkomin í HR
Háskólinn í Reykjavík býður nemendum sínum nútímalega
kennsluhætti, góða aðstöðu og sterk tengsl við atvinnulífið.
Opið fyrir umsóknir í grunnnám til 5. júní.
– Tölvunarfræði
– Verkfræði
– Viðskiptafræði
– Haftengd nýsköpun
– Frumgreinar
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 51f i M M T U D A G U R 1 . j ú n í 2 0 1 7
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-7
4
7
8
1
C
F
C
-7
3
3
C
1
C
F
C
-7
2
0
0
1
C
F
C
-7
0
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K