Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 4
1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R4 f R é t t i R ∙ f R é t t A B L A ð i ð
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri
sagði að sér
fyndist eðlilegt
að borgar-
yfirvöld væru
upplýst um
það fyrirfram
þegar ákveðið væri
að sérsveitarmenn yrðu með
sýnileg vopn á fjöldasamkomum í
Reykjavík. Vitneskja um það hefði
borist honum í gegn um fjölmiðla.
Lykilatriði væri að ef um breytt
hættumat væri að ræða yrðu
borgaryfirvöld látin vita.
Aníta Hinriksdóttir
frjálsíþróttakona
sló Íslandsmetið
í 800 metra
hlaupi á Dem-
antamóti Ósló
í Noregi þegar
hún kom í mark
á 2:00,05 mínútum.
Aníta bætti eigið Íslandsmet, sem
hún setti á Ólympíuleikunum
í Ríó í fyrra, um níu sekúndu-
brot. Aníta sló þarna sitt annað
Íslandsmet á aðeins fimm dögum
en á sunnudaginn sló hún 30 ára
gamalt Íslandsmet í 1.500 metra
hlaupi á móti í Hollandi.
Benedikt Jóhannesson
fjármálaráðherra
kvaðst hafa gefið
„ónákvæmt
og jafnvel
rangt svar“ við
óundirbúinni
fyrirspurn á
Alþingi 31. maí.
Ráðherrann svaraði
að enginn hefði sett sig í sam-
band við fjármálaráðuneytið
með ósk um að kaupa Leifsstöð.
Í færslu á Facebook sagði hann
síðan að svarið hefði jafnvel verið
rangt. Hann hefði ekki vitað að
fjárfestar hefðu sýnt áhuga.
Þrjú í fréttum
Skotvopn, hlaup
og rangt svar
töLUR vikUnnAR 11.06.2017 tiL 17.06.2017
49
milljörðum
nemur hluta-
bréfaeign
almennings í
skráðum fé-
lögum. Heildar-
markaðsvirði
þeirra er um
1.200 millj-
arðar króna.
759
milljónir króna
var hagnaður
IKEA á Íslandi
á síðasta
rekstrarári.
Hagnaðurinn
hefur aukist
um 222 pró-
sent á síðustu
sex árum.
20
milljóna króna auka-
greiðslu fékk Herdís
Dröfn Fjeldsted, fram-
kvæmdastjóri Framtaks-
sjóðs Íslands, frá sjóðnum í
fyrra vegna starfa sinna þar
undanfarin fjögur ár.
10,6%
mannfjöldans var
hlutfall innflytjenda á
Íslandi 1. janúar 2017.
Þeir voru þá 35.997.
135
þúsund tonn var fiskafli
íslenskra skipa í maí
sem var 27% meira en
heildaraflinn í maí 2016.
30
prósenta
fækkun er
á ferða-
mönnum
á Vest-
fjörðum í
júní miðað
við sama
mánuð í
fyrra.
veRsLUn „Það mun gerast á næstu
dögum eða vikum,“ segir Brett
Vigelskas, verslunarstjóri Costco á
Íslandi, aðspurður hvenær vöruúr-
val verslunarinnar í Kauptúni í
Garðabæ verði aftur jafn mikið og
það var fyrstu vikur eftir opnun.
Brett segir fyrirtækið hafa tekið á
móti gámum með vörum í vikunni
og að von sé á fleiri sendingum á
næstunni.
„Við erum nú að taka á móti
miklu af vörum og þá sérstaklega
síðustu tvær nætur [aðfaranótt
fimmtudags og föstudags]. Svo er
miklu meira á leiðinni,“ sagði Brett
áður en hann sagðist vera upptek-
inn allan daginn í gær og kvaddi
blaðamann.
Þegar ljósmyndara Fréttablaðs-
ins bar að garði á fimmtudag voru
fjölmargar hillur verslunarinnar
tómar og ljóst að í mörgum vöru-
flokkum mátti finna færri vöruteg-
undir en þegar verslunin var opnuð
þann 23. maí. Sem dæmi má nefna
að gostegundum og hreinlætisvör-
um á borð við klósettpappír hefur
fækkað talsvert.
Brett hefur bent á að eftirspurnin
eftir vörum Costco hafi farið fram
úr björtustu vonum og að búðir
bandaríska verslunarrisans verði
ekki jafn tómlegar undir venju-
legum kringumstæðum. Eins og
Fréttablaðið greindi frá í byrjun
júní eru vísbendingar um að velta
í Costco hafi verið meiri en velta
Bónuss fyrstu daga eftir opnun
verslunarinnar í Kauptúni. Sam-
kvæmt upplýsingum sem byggja á
kortaveltu var sala Costco á þeim
tíma 32 prósent af heildarveltunni
á dagvörumarkaði en markaðs-
hlutdeild Bónuss var 28 prósent.
Síðarnefnda fyrirtækið rekur 32
verslanir um allt land og þar af 20
á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt nýrri könnun MMR,
sem framkvæmd var dagana 6.
til 14. júní, hafa rúm 43 prósent
Íslendinga farið í Costco. Um 95
prósent Sjálfstæðismanna hafa
annaðhvort heimsótt verslunina
eða hyggjast gera það við tækifæri.
Þá eru þeir yngri og þeir sem búa
á tekjuhærri heimilum líklegri en
aðrir til að hafa heimsótt verslun-
ina. Heldur fleiri konur en karlar
höfðu farið í Costco og var hlut-
fallið 47 prósent á móti 40.
haraldur@frettabladid.is
Gæti tekið vikur að fylla Costco
Verslunarstjóri Costco á Íslandi segir útlit fyrir að það taki nokkra daga eða jafnvel vikur að koma vöruúr-
vali verslunarinnar í svipað horf og það var fyrstu vikur eftir opnun. Fjölmargar hillur í Costco eru tómar.
Vöruúrval í Costco hefur minnkað síðustu vikur en enn er nóg til af Diet Pepsi. Fréttablaðið/Eyþór
Við erum nú að taka
á móti miklu af
vörum og þá sérstaklega
síðustu tvær
nætur.
Brett Vigelskas,
verslunarstjóri
Costco á Íslandi
Tilvalið atvinnutækifæri
Verð 4.3 miljónir.
Bíllinn er til sölu og sýnis á Bílasölu Guðfinns,
Stórhöfða 15, Rvík. s. 5621055
Til sölu alhliða matsöluvagn
með öllum búnaði, tilbúinn
til notkunar stjóRnmáL „Þetta var bara góður fundur. Þessi fundur hefði bara
mátt eiga sér stað fyrr. Það kom
fram skýr ósk frá ríkislögreglustjóra
um að við myndum oftar funda svo
betri upplýsingagjöf okkar á milli
væri til staðar,“ segir Nichole Leigh
Mosty, varaformaður allsherjar- og
menntamálanefndar og þingmaður
Bjartrar framtíðar.
Í gær hélt þingnefndin
fund með Haraldi Johann-
essen ríkislögreglustjóra
og Sigríði Björk Guð-
jónsdóttur, lögreglustjór-
anum á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem
v o p n a b u r ð u r
l ö g r e g l u n n a r
var ræddur en
ríkislögreglu-
stjóri hefur
ákveðið að
vopnaðir sér-
sve i t a r m e n n
séu í viðbragðsstöðu á fjöldasam-
komum miðbæjarins í sumar.
„Það var mikið rætt um traust og
upplýsingagjöf. Ekki eingöngu upp-
lýsingagjöf fyrir þing og borgaryfir-
völd heldur líka hvernig við upp-
lýsum almenning svo almenningi
þurfi ekki að líða illa yfir þessari
ákvörðun og viti að hér er bara um
að ræða ákvörðun til að vernda
öryggi borgaranna,“ segir Nichole.
Möguleg hryðjuverkaógn kom
einnig til tals á fundinum.
„Það eru ákveðnar upplýsingar
sem um ríkir mikill trúnaður en
var ekki hægt að veita. Manstu eftir
myndinni með Jack Nicholson og
Tom Cruise? You can’t handle the
truth [A few good men]. það eru
ákveðnar upplýsingar sem við þurf-
um að treysta lögreglu fyrir. Þetta er
svo vandmeðfarið, þessi þunna lína
um hvaða upplýsingar við fáum og
hvað við megum ekki vita,“ segir
Nichole Leigh Mosty. – snæ
Sumar upplýsingar lögreglu viðkvæmar
Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri
lögreglustjór-
arnir Haraldur
Johannessen
og Sigríður
björk Guð-
jónsdóttir
Það eru ákveðnar
upplýsingar sem við
þurfum að treysta lögreglu
fyrir.
Nichole Leigh
Mosty, varafor-
maður allsherjar-
og menntamála-
nefndar
43%
Íslendinga eru talin hafa litið
inn hjá Costco síðan verslun
fyrirtækisins var opnuð fyrir
25 dögum.
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-6
0
C
8
1
D
1
D
-5
F
8
C
1
D
1
D
-5
E
5
0
1
D
1
D
-5
D
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K