Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 11
mikilvægasta verkefni ríkisvaldsins
er að tryggja öryggi borgaranna
og við megum ekki gefa neitt eftir
hvað það varðar.
Edda Hauks-
dóttir
kennari
Mér finnst það
eðlilegt með
hliðsjón af
breyttri heims-
mynd. Ég treysti
lögreglunni.
Sirrý Hallgríms-
dóttir
ráðgjafi
Mín skoðun
er sú að þetta
verði að vera
faglegt mat
lögreglunnar. Við
verðum þá bara að
venjast breyttum heimi. En þetta er
auðvitað mjög óþægilegt.
Silja Hauksdóttir
leikstjóri
Svona stórar
ákvarðanir ber að
ræða opinber-
lega og gefa
fólkinu í landinu
tækifæri á að
hafa skoðun á
þeim, því byssur
í hendi lögreglu varða
okkur öll. Mér finnst mótsagna-
kennt að halda því fram að byssu-
burður í friðsælu landi muni auka
á öryggistilfinningu borgaranna.
Ódæðisverk eru ekki síður framin
í löndum þar sem lögreglan er
vígbúin. Við erum einmitt öruggari
af því að hér er lítið um vopn og
byssur. Lögregla og yfirvöld á Ís-
landi eiga að vinna að því að skapa
þá tilfinningu að við sem samfélag
samþykkjum ekki að skaða annað
fólk, berum virðingu fyrir náung-
anum. Með því að bera lífshættuleg
vopn í kringum saklausa samborg-
ara á hátíðisdögum er lögreglan og
yfirvöld mun frekar að ala á ótta en
öryggi. Við eigum heldur að taka vel
utan um það sem við Íslendingar
getum verið stoltust af, friðinn.
Þórarinn Þórarinsson
blaðamaður
Þetta veldur mér
svo sem engu
sérstöku hugar-
angri en mér
finnst þetta
engu að síður
frekar hallærislegt.
Íslendingar hafa
löngum verið stoltir af því að vera
friðsöm þjóð og svona vopnabrölt
er alveg á skjön við þessa fallegu
sýn sem við höfum á sjálf okkur og
viljum sýna umheiminum.
Þetta er enda síst til þess fallið
að auka öryggistilfinningu fólks.
Hver vill vera að spóka sig þar sem
lögreglan telur hættu á skotbar-
dögum? Og fælingarmátturinn á
terrorista, sem ég held nú að hafi
engan áhuga á okkur þar sem vart
er hægt að hugsa sér ómerkilegra
skotmark en Ísland, er enginn.
Byssur eru ögrun í eðli sínu og
svona stælar eru líklegri til þess
að framkalla ofbeldi frekar en að
koma í veg fyrir það.
Svo má alveg velta því fyrir sér
hvort íslenskir lögreglumenn hafi
yfirleitt andlegan þroska og þá
yfirvegun sem þarf til þess að það
megi treysta þeim fyrir hlaðinni
byssu.
Miðnæturhlaup Suzuki fer fram föstudags-
kvöldið 23.júní 2017 í tuttugasta og mmta
sinn. Hlaupið hefst og endar í Laugardalnum. Að
því loknu er öllum þátttakendum boðið í sund.
Þú borgar lægra gjald ef þú skráir þig á
marathon.is fyrir miðnætti mmtudaginn 22.júní.
SKRÁNING Á MARATHON.IS
Vertu með í
Miðnæturhlaupi Suzuki
Suzuki er stoltur samstarfsaðili Miðnæturhlaups Suzuki og Reykjavíkurmaraþons
2 1 km
Ræst kl.21:00
10 km
Ræst kl.21:00
5 km
Ræst kl.21:20
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri hefur bent á að sér-
sveitarmenn séu alltaf vopnaðir
en munurinn nú sé að vopnin
séu sýnileg.
„Þeir sem hafa fylgst með
fréttum sjá það að það eru
ítrekað myndir af sérsveitar-
mönnum vopnuðum í alls konar
verkefnum.
Þeir eru ekki meira vopnaðir í
dag. Þannig að þessi ráðstöfun,
að setja vopnin utanklæða með
þessum hætti er til að tryggja
skjót viðbrögð ef eitthvað kemur
upp á í mannþröng. Þá þurfa
þeir að geta verndað borgarana
ef eitthvað kemur upp á, í stað
þess að hörfa og sækja vopnin
í geymslur eða lögreglubílana
sem eru kannski einhvers staðar
frá þeim. Þar eru mínútur sem
kannski skipta máli upp á líf eða
dauða,“ segir Haraldur.
Vill tryggja skjót
viðbrögð Jæja-hópurinn hefur boðað til mótmæla vegna vopnaburðar á
fjöldasamkomum. Mótmælin,
sem eru undir yfirskriftinni Fokk
the Glock, verða á Austurvelli í
dag og hefjast klukkan 11.
Á sérstakri Facebook-síðu
sem heldur utan um mótmælin
segir að hópurinn mótmæli
harðlega vopnaburði íslensku
lögreglunnar og sérsveitarmanna
á almannafæri, á 17. júní 2017
sem og alltaf.
Sara Óskarsson, meðlimur í
Jæja-hópnum, segir Ísland þekkt
fyrir að vera friðsælt land. „Okkur
finnst stinga mikið í stúf við anda
og yfirbragð lýðveldishátíðar
þjóðarinnar að lögreglan sé allt
í einu mætt með Glock 17 fyrir
allra augum.“
Mótmæla byssunum
Greipur Gíslason
ráðgjafi
Fyrst af öllu er sorg-
legt að fólk telji
þetta nauðsyn-
legt. Atburðir í
kringum okkur
hafa auðvitað
vakið óhug og
valdið sorgum.
Samt sem áður held ég
að þegar tekin er ákvörðun um það
sem mér finnst vera meiriháttar
stefnubreyting, þurfi að eiga sér
stað umræða, ekki síst á Alþingi.
Lögreglan er auðvitað að reyna að
gera sitt besta en hér er ekki um að
ræða átak í að sekta bílstjóra sem
hafa lagt illa og ólöglega á stórvið-
burðum, heldur breyting á ásýnd
samfélagsins. Það er mín skoðun
að við eigum að forðast vopnaburð
lögreglunnar eins lengi og mögu-
legt er. Ég er ekki hrifinn af þessu.
Telji lögreglan mikla hætti yfirvof-
andi, þá verður bara að segja það.
Daníel Örn
Hinriksson
hárgreiðslu-
maður
Ég tel yfirvöld
vita við hverju
er að búast
og ber ég fullt
traust til þeirra sem
slíkar ákvarðanir taka til þess. Mér
þykir það engu að síður skelfileg
staðreynd og óþægilegt að fá
þessa áminningu að það er enginn
óhultur fyrir voðaverkum eins og
þeim sem við höfum orðið vitni að
í nágrannalöndum okkar.
Lögreglan er auð-
vitað að reyna að
gera sitt besta en hér er ekki
um að ræða átak í að sekta
bílstjóra sem hafa lagt illa og
ólöglega á stórviðburðum,
heldur breyting á ásýnd
samfélagsins.
Greipur Gíslason ráðgjafi
Mótmælin hefjast á
Austurvelli klukkan 11.
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 11L A U G A r D A G U r 1 7 . j ú n í 2 0 1 7
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
D
-7
4
8
8
1
D
1
D
-7
3
4
C
1
D
1
D
-7
2
1
0
1
D
1
D
-7
0
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K