Fréttablaðið - 17.06.2017, Síða 11

Fréttablaðið - 17.06.2017, Síða 11
mikilvægasta verkefni ríkisvaldsins er að tryggja öryggi borgaranna og við megum ekki gefa neitt eftir hvað það varðar. Edda Hauks- dóttir kennari Mér finnst það eðlilegt með hliðsjón af breyttri heims- mynd. Ég treysti lögreglunni. Sirrý Hallgríms- dóttir ráðgjafi Mín skoðun er sú að þetta verði að vera faglegt mat lögreglunnar. Við verðum þá bara að venjast breyttum heimi. En þetta er auðvitað mjög óþægilegt. Silja Hauksdóttir leikstjóri Svona stórar ákvarðanir ber að ræða opinber- lega og gefa fólkinu í landinu tækifæri á að hafa skoðun á þeim, því byssur í hendi lögreglu varða okkur öll. Mér finnst mótsagna- kennt að halda því fram að byssu- burður í friðsælu landi muni auka á öryggistilfinningu borgaranna. Ódæðisverk eru ekki síður framin í löndum þar sem lögreglan er vígbúin. Við erum einmitt öruggari af því að hér er lítið um vopn og byssur. Lögregla og yfirvöld á Ís- landi eiga að vinna að því að skapa þá tilfinningu að við sem samfélag samþykkjum ekki að skaða annað fólk, berum virðingu fyrir náung- anum. Með því að bera lífshættuleg vopn í kringum saklausa samborg- ara á hátíðisdögum er lögreglan og yfirvöld mun frekar að ala á ótta en öryggi. Við eigum heldur að taka vel utan um það sem við Íslendingar getum verið stoltust af, friðinn. Þórarinn Þórarinsson blaðamaður Þetta veldur mér svo sem engu sérstöku hugar- angri en mér finnst þetta engu að síður frekar hallærislegt. Íslendingar hafa löngum verið stoltir af því að vera friðsöm þjóð og svona vopnabrölt er alveg á skjön við þessa fallegu sýn sem við höfum á sjálf okkur og viljum sýna umheiminum. Þetta er enda síst til þess fallið að auka öryggistilfinningu fólks. Hver vill vera að spóka sig þar sem lögreglan telur hættu á skotbar- dögum? Og fælingarmátturinn á terrorista, sem ég held nú að hafi engan áhuga á okkur þar sem vart er hægt að hugsa sér ómerkilegra skotmark en Ísland, er enginn. Byssur eru ögrun í eðli sínu og svona stælar eru líklegri til þess að framkalla ofbeldi frekar en að koma í veg fyrir það. Svo má alveg velta því fyrir sér hvort íslenskir lögreglumenn hafi yfirleitt andlegan þroska og þá yfirvegun sem þarf til þess að það megi treysta þeim fyrir hlaðinni byssu. Miðnæturhlaup Suzuki fer fram föstudags- kvöldið 23.júní 2017 í tuttugasta og mmta sinn. Hlaupið hefst og endar í Laugardalnum. Að því loknu er öllum þátttakendum boðið í sund. Þú borgar lægra gjald ef þú skráir þig á marathon.is fyrir miðnætti mmtudaginn 22.júní. SKRÁNING Á MARATHON.IS Vertu með í Miðnæturhlaupi Suzuki Suzuki er stoltur samstarfsaðili Miðnæturhlaups Suzuki og Reykjavíkurmaraþons 2 1 km Ræst kl.21:00 10 km Ræst kl.21:00 5 km Ræst kl.21:20 Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri hefur bent á að sér- sveitarmenn séu alltaf vopnaðir en munurinn nú sé að vopnin séu sýnileg. „Þeir sem hafa fylgst með fréttum sjá það að það eru ítrekað myndir af sérsveitar- mönnum vopnuðum í alls konar verkefnum. Þeir eru ekki meira vopnaðir í dag. Þannig að þessi ráðstöfun, að setja vopnin utanklæða með þessum hætti er til að tryggja skjót viðbrögð ef eitthvað kemur upp á í mannþröng. Þá þurfa þeir að geta verndað borgarana ef eitthvað kemur upp á, í stað þess að hörfa og sækja vopnin í geymslur eða lögreglubílana sem eru kannski einhvers staðar frá þeim. Þar eru mínútur sem kannski skipta máli upp á líf eða dauða,“ segir Haraldur. Vill tryggja skjót viðbrögð Jæja-hópurinn hefur boðað til mótmæla vegna vopnaburðar á fjöldasamkomum. Mótmælin, sem eru undir yfirskriftinni Fokk the Glock, verða á Austurvelli í dag og hefjast klukkan 11. Á sérstakri Facebook-síðu sem heldur utan um mótmælin segir að hópurinn mótmæli harðlega vopnaburði íslensku lögreglunnar og sérsveitarmanna á almannafæri, á 17. júní 2017 sem og alltaf. Sara Óskarsson, meðlimur í Jæja-hópnum, segir Ísland þekkt fyrir að vera friðsælt land. „Okkur finnst stinga mikið í stúf við anda og yfirbragð lýðveldishátíðar þjóðarinnar að lögreglan sé allt í einu mætt með Glock 17 fyrir allra augum.“ Mótmæla byssunum Greipur Gíslason ráðgjafi Fyrst af öllu er sorg- legt að fólk telji þetta nauðsyn- legt. Atburðir í kringum okkur hafa auðvitað vakið óhug og valdið sorgum. Samt sem áður held ég að þegar tekin er ákvörðun um það sem mér finnst vera meiriháttar stefnubreyting, þurfi að eiga sér stað umræða, ekki síst á Alþingi. Lögreglan er auðvitað að reyna að gera sitt besta en hér er ekki um að ræða átak í að sekta bílstjóra sem hafa lagt illa og ólöglega á stórvið- burðum, heldur breyting á ásýnd samfélagsins. Það er mín skoðun að við eigum að forðast vopnaburð lögreglunnar eins lengi og mögu- legt er. Ég er ekki hrifinn af þessu. Telji lögreglan mikla hætti yfirvof- andi, þá verður bara að segja það. Daníel Örn Hinriksson hárgreiðslu- maður Ég tel yfirvöld vita við hverju er að búast og ber ég fullt traust til þeirra sem slíkar ákvarðanir taka til þess. Mér þykir það engu að síður skelfileg staðreynd og óþægilegt að fá þessa áminningu að það er enginn óhultur fyrir voðaverkum eins og þeim sem við höfum orðið vitni að í nágrannalöndum okkar. Lögreglan er auð- vitað að reyna að gera sitt besta en hér er ekki um að ræða átak í að sekta bílstjóra sem hafa lagt illa og ólöglega á stórviðburðum, heldur breyting á ásýnd samfélagsins. Greipur Gíslason ráðgjafi Mótmælin hefjast á Austurvelli klukkan 11. f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 11L A U G A r D A G U r 1 7 . j ú n í 2 0 1 7 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 D -7 4 8 8 1 D 1 D -7 3 4 C 1 D 1 D -7 2 1 0 1 D 1 D -7 0 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.