Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.06.2017, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 17.06.2017, Qupperneq 20
Það skiptir miklu máli að börn fái smá aðlögunar­tíma,“ segir Vilborg Arna Gissurardóttir Everest­fari um hvað beri að hafa í huga fyrir fyrstu tjald­ útilegu barna með fjölskyldunni. „Það getur verið sniðugt að prófa að tjalda í garðinum fyrst. Að leyfa þeim að prófa að sofa í svefnpoka og hafa gaman í tjaldi,“ mælir Vilborg Arna með. Vilborg Arna lumar á ótal góðum ráðum hvað varðar útivist fyrir fjöl­ skylduna. Nýverið kom út bókin Úti­ lífsbók fjölskyldunnar hjá Forlaginu þar sem er að finna hugmyndir og ráð hvað varðar útivist allt árið um kring. En meira um fyrstu tjaldútileguna sem margir stefna á í sumar. „Það skiptir miklu máli að hlusta á börnin, leyfa þeim svolítið að ráða ferðinni. Hafa gaman, það er það sem öllu máli skiptir,“ bendir Vil­ borg Arna á. „Ef þau eru á göngu og kvarta undan því að meiða sig í skónum, þá þarf að bregðast strax við. Þá er kannski hægt að koma í veg fyrir sársaukafulla blöðru á fæti. Það er alltaf hægt að bregðast einhvern veginn við og færa til betri vegar,“ segir hún. Vilborg Arna mælir með því að fólk velji sér vel tjaldstæði og fari rétt útbúið í fyrstu tjaldútileguna. Hugarfarið skipti hins vegar mestu máli þegar kemur að því að gera útivistina spennandi fyrir börnum. „Mér finnst gaman að tjalda úti í náttúrunni og það er alltaf spenn­ andi að finna góðan stað. Mér finnst gott að geta gengið og sótt mér vatn í læk og að hafa rjóður í grenndinni. Fólk ætti síðan að festa tjaldstæðið sem punkt, í GPS­tækinu eða appi í símanum. Þannig að þegar farið er í göngu eða slíkt, sé létt að finna aftur tjaldið. Svo bara að hafa það í for­ gangi að skemmta börnunum, gera allt sem viðkemur tjaldútilegunni, gönguferðum og öðru skemmtilegu. Það er góð hugmynd að stinga upp á leikjum ef það er komin þreyta í þau yngstu,“ segir Vilborg. „Þetta má ekki verða kvöl og pína, ef börn eru ekki í stuði eða þreytt þá verður að taka mið af því.“ Vilborg minnir þá sem huga á tjaldútilegu að gæta að gróðrinum og vera vakandi fyrir umhleypingum í veðri. „Það þarf alltaf að vera klæddur miðað við aðstæður og alltaf gott að sofa með húfu og í ullarsokkum þegar sofið er í tjaldi.“ Tjaldið fyrst í garðinum heima Vilborg Arna Gissurardóttir Everestfari mælir með því að leyfa börnum fyrst að prófa að tjalda í garðinum. Hún hefur ásamt Pálínu Ósk Hraundal gefið út Útilífsbók fjölskyldunnar þar sem leynast gagnleg ráð fyrir útiveruna. Vilborg Arna segir mikilvægt að leyfa börnunum að ráða svolítið för. FréttAblAðið/Eyþór búnAður l Tjald l Dýna l Svefnpoki l Klósettpappír í plast- poka l Eldspýtur eða kveikjari l Höfuðljós/Vasaljós l Sólarvörn l Sólgleraugu l Skyndihjálpartaska l Matur Gátlisti fyrir tjaldútilegu Tveir góðir útileikir FAtnAður l Ysta lag (skel) l Þykkir sokkar l Þykk peysa l Miðlag (flíspeysa) l Innsta lag (þunnur ullar- bolur, föðurland) l Stuttbuxur (ef spáin er góð) l Góðir skór l Vatnsflaska l Ævintýrabók/ Hljóðbók l Uppáhaldsbangs- inn l Brauðpokar (frá- bærir ef skórnir eru orðnir blautir og verjast þarf frekari bleytu) Punktur og króna Fyrir þennan leik þarf að finna góðan stað þar sem einn þátttakandi grúfir við staur, vegg eða álíka á meðan hinir í hópnum fela sig. Hópurinn þarf að ákveða í sameiningu upp á hvaða tölu á að telja. Yfirleitt er ekki farið yfir töluna 100. Þegar sá sem er hann er búinn að telja segir hann hátt og skýrt síðustu töluna svo allir viti að nú fari hann af stað. Þá hefst leitin að öllum í hópnum. Þegar hann svo hefur komið auga á einhvern úr hópnum reynir hann að komast fyrstur að starunum og segir: Punktur og króna fyrir (nafn) einn, tveir og þrír. Ef sá sem var í felum kemst fyrr að staurnum segir hann hátt og skýrt: Punktur og króna fyrir mér, einn, tveir og þrír. Hlaupa í skarðið Hópurinn myndar hring. Einn þátttakandi er fenginn til þess að standa fyrir utan hringinn og hlaupa réttsælis í kringum hann. Hann velur sér svo einn úr hringnum og slær í bakið á honum og þá þarf sá að hlaupa í gagn- stæða átt. Þessir tveir keppast svo um að ná í skarðið sem er í hringnum. Sá sem er á undan fær þann stað í hringnum en snýr bakinu inn í hringinn og ekki má láta hann hlaupa aftur. Svona heldur leikurinn áfram þangað til allur hópurin hefur fengið að hlaupa. Fólk ætti síðAn Að FestA tjAldstæðið sem punkt, í Gps-tækinu eðA Appi í símAnum. 1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R20 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð helgin 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 9 6 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 D -6 A A 8 1 D 1 D -6 9 6 C 1 D 1 D -6 8 3 0 1 D 1 D -6 6 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.