Fréttablaðið - 17.06.2017, Síða 24

Fréttablaðið - 17.06.2017, Síða 24
Ásdís Rán ákvað að flytjast til Íslands vegna þess að henni fannst aðstæður ytra ótryggar. FRéttablaðið/SteFÁn ↣ Ég er nú búin að lenda ansi oft í hættulegum aðstæðum sem Ég hef rÉtt sloppið úr á lífi og þeir sem þekkja mig segja að Ég sÉ eins og kettirnir og sÉ með níu líf. Ég verð bara að hugsa um einn dag í einu og reyna mitt besta til að komast í gegnum hann og vera sterk, mig langar stundum bara að liggja á gólfinu og gráta eða bara sofa allan daginn. öll mjög vel saman og það þurfti ekki að gera neinar aðgerðir,“ segir Ásdís Rán og segir nánustu framtíð og endurhæfingu í óvissu. „Ég veit ekki neitt og ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta verður eða hvort ég nái mér að fullu, ég var mjög slæm fyrir í bakinu og hálsi út af tveimur hræðilegum bílslysum sem ég hef lent í þannig að ég bið bara til guðs um að þetta hafi ekki viðbótaráhrif á þau meiðsl í fram- tíðinni, ég vona að þetta sé bara eitthvað sem grær og lagast með tímanum smá saman.“ Óvissan erfiðust Þótt hún sé bundin hjólastól reynir hún að njóta lífsins og mætti á landsleik Íslands og Króatíu á dög- unum. „Ég er alveg farin að rölta um á hækjunum heima og stuttar vega- lengdir en eins og ég tók fram þá er ég mjaðmagrindarbrotin bæði að framan og aftan og brotin rétt að byrja að gróa þannig að ég get ekki stigið í fæturna mikið, það er mjög sárt og ég þreytist strax eftir stuttan spöl á hækjunum svo bætir það ekki ástandið að vera handleggsbrotin og rifbeinsbrotin sem gerir það miklu erfiðara að nota hækjurnar,“ segir Ásdís Rán. „Ég nota hjólastólinn þegar ég þarf að fara lengri vega- lengdir, niður í bæ, á leiki eins og ég gerði um daginn. Ég finn samt mik- inn mun núna, frá degi til dags. Ég get meira á hverjum degi þannig að það verður eflaust ekki langt í að ég fari að bjarga mér alveg á hækjunum og kannski að byrja að geta labbað eitthvað sjálf án þeirra.“ Óvissan er erfiðust. „Það er allt í óvissu einhvern veginn og ég verð bara að hugsa um einn dag í einu og reyna mitt besta til að komast í gegnum hann og vera sterk, mig langar stundum bara að liggja á gólfinu og gráta eða bara sofa allan daginn en ég veit ég má það ekki og ég verð bara að taka þessu eins og öðrum stórum verkefnum í mínu lífi með styrk og ákveðni. Þetta verður allt í lagi eftir smá tíma og verður vonandi fljótt að líða.“ Flutti heim vegna ólgu Ásdís Rán fluttist til Íslands í sept- ember á síðasta ári. Henni fannst aðstæður í Búlgaríu orðnar of ótryggar. Fjölskyldan óttaðist um hana. „Ég ákvað að koma mér fyrir á Íslandi og reyna að finna mér eitt- hvað að gera hér þar sem það er mikil ólga þarna allt í kringum Búlg- aríu, Tyrkland, Rússland og fleiri lönd. Fjölskyldan var orðin frekar stressuð á að hafa okkur þarna og krakkarnir smeykir þannig að við ákváðum að koma til Íslands og vera í faðmi fjölskyldunnar um óákveðinn tíma. Ég er enn þá með íbúðina mína úti og ferðast mikið á milli þannig að þetta er bara fínt svona í bili og allir sáttir. Ég opnaði umboðsskrifstofu á netinu fyrir nokkrum vikum, hún heitir Tal- entbook.is og er nýjasta framtíðin á þessum markaði, þarna getur alls konar hæfileikafólk skráð sig og komið sér á framfæri sjálft með sínum prófílum, myndum og mynd- böndum. Þarna fer svo fólk og fyrir- tæki inn og leita að sínu hæfileika- fólki fyrir kvikmyndir, auglýsingar eða önnur verkefni. Mjög einfalt og þægilegt kerfi, engin umboðsgjöld og óþarfa tímaeyðsla. Það tekur auðvitað tíma fyrir fólk að meðtaka svona og venjast kerfinu en þetta kemur allt smám saman.“ Nú þegar Ásdís Rán býr á Íslandi eyðir hún frítímanum helst úti í Búlgaríu. „Já, þetta hefur snúist við. Ég fór til dæmis út um jól og páska til Búlgaríu og fór í tvær skíðaferðir þangað í vetur og eyddi þá ein- hverjum tíma líka heima í Sofíu með vinum. Ég fer líka þangað út ef það eru sérstök aukaverkefni eða tilefni.“ Sonur hennar Róbert Andri er orðinn tvítugur og systkinin Hek- tor tólf ára og Victoría tíu ára eru í sumarfríi hjá föður sínum í júní- mánuði þannig að hún hefur tíma til að ná sér áður en þau koma aftur til hennar. „Þau eru orðin svo stór, þessar elskur!“ segir Ásdís Rán og stefnir á að vera komin til betri heilsu þegar hún eyðir með þeim restinni af sumrinu. Vill bæta við flugmannsréttindin Flug hefur átt hug Ásdísar Ránar síðustu misseri. Hún er með rétt- indi á þrjár tegundir af þyrlum, bæði á litlar æfingavélar og farþegavélar. Hana hefur langað að sækja sér enn frekari réttindi. Það hefur þó orðið ákveðið hlé á því eftir að hún flutti til Íslands. Auðvitað setur slysið líka enn frekar strik í reikninginn. „Því miður er lítið sem ég get gert á því sviði hér á Íslandi, það eru engar litlar æfingavélar í boði hér til að fljúga þannig að ég verð að fara til útlanda til að safna tímum og það er töluverður kostnaður við það plús kostnaðurinn við flug- tímana sjálfa en vonandi koma fleiri vélar til landsins í framtíðinni þannig að það sé hægt að þróa betur þyrluflugmannamarkaðinn hérna. Annars er ég er alveg til í að fjárfesta í einni Robinson 22 ef ég fæ nokkra aðra með mér, þannig að ef það er einhver þarna úti sem hefur áhuga á þessu þá bara endi- lega setja sig í samband við mig, þessi fjárfesting kemur betur út en að kaupa 200 flugtíma erlendis til að klára námið. Ég er ekki búin með atvinnuflugmannsréttindi en ætla að taka prófið við tækifæri þegar ég hef tíma fyrir ár erlendis í bóklegu námi, ég er langt komin í flugtím- unum og á ekki marga eftir til að klára commercial pilot gráðuna.“ Hún segir langflest áhugamál sín fela í sér mikla hreyfingu og krefjast orku. „Ég hef rosalega gaman af allri útivist, flugi, ég hef gaman af því að fara í skotgallerí í Búlgaríu, elska skíði, mikið fyrir alls konar líkams- rækt, alla hönnun og hef unnið að hinum ýmsu verkefnum allt frá innanhússhönnun, fatahönnun, skartgripahönnun upp í förðun og þróun á snyrtivörulínum. Ég hef mjög gaman af ljósmyndun, stíliseringu, er lærð í hárgreiðslu og förðun og er sérfræðingur í flestu á þessum sviðum fegrunar. Þetta eru allt áhugamál og oftar en ekki vinn ég við margt af þessu líka.“ Villiköttur og Ísdrottning Hún segir fyrirsætubransann hafa breyst mikið og til batnaðar. „Nú eru miklu fleiri týpur í gangi og minna um reglur t.d eru módelin af alls konar stærðum, gerðum og aldurinn hefur hækkað mikið, nú geturðu alveg verið að módelast til fimmtugs og jafnvel lengur ef þú heldur þér vel og ert virk í þessum bransa.“ En hún sjálf, hefur hún breyst? „Ég held að ég hafi nú ekki breyst mikið, ég er bara alltaf sama Ísdrottningin og smá villiköttur í mér. En maður þroskast auðvitað alltaf og vex með lífinu og reynslunni. Ég er svo heppin hafa fengið að upplifa mikið á minni stuttu ævi. Ég hef búið í sex löndum, kynnst og upplifað ólíka menningu víðsvegar um heiminn og ferðast ótrúlega mikið, nú er ég orðin aðeins rólegri og farin að njóta mómentsins aðeins meira.“ búin með sín níu líf Ásdís Rán hefur oftar lent í alvar- legum slysum og hættulegum aðstæðum. „Ég er nú búin að lenda ansi oft í hættulegum aðstæðum sem ég hef rétt sloppið úr á lífi og þeir sem þekkja mig segja að ég sé eins og kettirnir og sé með níu líf, ég hins vegar er nokkuð viss um að þessi níu líf eru búin núna þann- ig að ég þarf að fara að passa mig betur! En annars hef ég lent í fjórum lífshættulegum slysum og einhverj- um fleiri minni sem ég hef sloppið vel frá, þannig að ég er algjör hrak- fallabálkur! Ég slasaðist mest núna, hins vegar var ég eflaust heppnari að hafa lifað hin slysin af,“ segir Ásdís Rán en þegar hún var fimmtán ára var keyrt á hana á fullum hraða. Þá lenti hún í alvarlegu bílslysi árið 2007 sem hún slapp ótrúlega vel frá. „Ég var svo heppin að í staðinn fyrir að lenda undir bílnum þá hentist ég í lofköstum yfir á umferð- areyju hinum megin sem var með grasi á þannig ég slapp lifandi. Árið 2007 lenti ég svo í mjög slæmu bíl- slysi þar sem var keyrt á fullum hraða inn í bílinn, bílstjóramegin, þar sem ég sat, bílarnir eyðilögðust og ég slasaðist töluvert og missti minnið í smá tíma en slapp ótrúlega vel frá þessu. Um 2008 lenti ég svo aftur í lífs- háska þegar ég varð mjög veik og uppgötvaðist á síðustu stundu að ég var með miklar innvortis blæðingar og hafði blætt inn á líffæri mín út frá blöðru á öðrum eggjastokknum sem hafði sprungið. Það náðist rétt svo að bjarga mér með bráðaskurðað- gerð á sjúkrahúsi í Búlgaríu. Svo ég hef prófað ýmislegt í gegnum tíðina.“ engar hindranir Hún segist afar þakklát því góða og ævintýralega lífi sem hún hefur fengið að lifa. Háskinn setur hlut- ina í samhengi og skerpir á því sem er mikilvægt. „Fjölskyldan, ástin, hamingjan og skemmtileg móment gefa lífinu gildi án efa, það besta sem hefur komið fyrir mig er að hafa gengið með og eignast þessi frábæru kláru og yndislegu börn sem ég á og að hafa fengið tækifæri til að búa erlendis og upplifa heiminn og lifa þessu ævintýralega lífi sem ég hef lifað síðustu fimmtán ár.“ Hún segir það nokkurs konar lífs- reglu hjá sér að hvetja fólk til þess að elta drauma sína meðan það getur og hefur heilsu til. „Ekki gefast upp þó á móti blási og allt virðist von- laust. Það gefur mér tilgang í lífinu að geta veitt fólki innblástur og hvetja fólk til að hafa trú á sér. Það gleður mig að fólk geti horft á mig og sagt vá hún gat þetta þá hlýt ég að geta þetta og að ég geti sýnt að það eru engar hindranir í lífinu nema þú sjálfur – það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi!“ 1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 D -9 2 2 8 1 D 1 D -9 0 E C 1 D 1 D -8 F B 0 1 D 1 D -8 E 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.