Fréttablaðið - 17.06.2017, Qupperneq 24
Ásdís Rán ákvað að flytjast til Íslands vegna þess að henni fannst aðstæður ytra ótryggar. FRéttablaðið/SteFÁn
↣
Ég er nú búin að lenda
ansi oft í hættulegum
aðstæðum sem Ég hef
rÉtt sloppið úr á lífi
og þeir sem þekkja mig
segja að Ég sÉ eins og
kettirnir og sÉ með níu
líf.
Ég verð bara að hugsa
um einn dag í einu og
reyna mitt besta til að
komast í gegnum hann
og vera sterk, mig
langar stundum bara
að liggja á gólfinu og
gráta eða bara sofa
allan daginn.
öll mjög vel saman og það þurfti
ekki að gera neinar aðgerðir,“ segir
Ásdís Rán og segir nánustu framtíð
og endurhæfingu í óvissu.
„Ég veit ekki neitt og ég hef ekki
hugmynd um hvernig þetta verður
eða hvort ég nái mér að fullu, ég var
mjög slæm fyrir í bakinu og hálsi út
af tveimur hræðilegum bílslysum
sem ég hef lent í þannig að ég bið
bara til guðs um að þetta hafi ekki
viðbótaráhrif á þau meiðsl í fram-
tíðinni, ég vona að þetta sé bara
eitthvað sem grær og lagast með
tímanum smá saman.“
Óvissan erfiðust
Þótt hún sé bundin hjólastól reynir
hún að njóta lífsins og mætti á
landsleik Íslands og Króatíu á dög-
unum. „Ég er alveg farin að rölta um
á hækjunum heima og stuttar vega-
lengdir en eins og ég tók fram þá er
ég mjaðmagrindarbrotin bæði að
framan og aftan og brotin rétt að
byrja að gróa þannig að ég get ekki
stigið í fæturna mikið, það er mjög
sárt og ég þreytist strax eftir stuttan
spöl á hækjunum svo bætir það ekki
ástandið að vera handleggsbrotin og
rifbeinsbrotin sem gerir það miklu
erfiðara að nota hækjurnar,“ segir
Ásdís Rán. „Ég nota hjólastólinn
þegar ég þarf að fara lengri vega-
lengdir, niður í bæ, á leiki eins og ég
gerði um daginn. Ég finn samt mik-
inn mun núna, frá degi til dags. Ég
get meira á hverjum degi þannig að
það verður eflaust ekki langt í að ég
fari að bjarga mér alveg á hækjunum
og kannski að byrja að geta labbað
eitthvað sjálf án þeirra.“
Óvissan er erfiðust. „Það er allt í
óvissu einhvern veginn og ég verð
bara að hugsa um einn dag í einu
og reyna mitt besta til að komast
í gegnum hann og vera sterk, mig
langar stundum bara að liggja á
gólfinu og gráta eða bara sofa allan
daginn en ég veit ég má það ekki og
ég verð bara að taka þessu eins og
öðrum stórum verkefnum í mínu lífi
með styrk og ákveðni. Þetta verður
allt í lagi eftir smá tíma og verður
vonandi fljótt að líða.“
Flutti heim vegna ólgu
Ásdís Rán fluttist til Íslands í sept-
ember á síðasta ári. Henni fannst
aðstæður í Búlgaríu orðnar of
ótryggar. Fjölskyldan óttaðist um
hana.
„Ég ákvað að koma mér fyrir á
Íslandi og reyna að finna mér eitt-
hvað að gera hér þar sem það er
mikil ólga þarna allt í kringum Búlg-
aríu, Tyrkland, Rússland og fleiri
lönd. Fjölskyldan var orðin frekar
stressuð á að hafa okkur þarna og
krakkarnir smeykir þannig að við
ákváðum að koma til Íslands og
vera í faðmi fjölskyldunnar um
óákveðinn tíma. Ég er enn þá með
íbúðina mína úti og ferðast mikið
á milli þannig að þetta er bara fínt
svona í bili og allir sáttir. Ég opnaði
umboðsskrifstofu á netinu fyrir
nokkrum vikum, hún heitir Tal-
entbook.is og er nýjasta framtíðin
á þessum markaði, þarna getur alls
konar hæfileikafólk skráð sig og
komið sér á framfæri sjálft með
sínum prófílum, myndum og mynd-
böndum. Þarna fer svo fólk og fyrir-
tæki inn og leita að sínu hæfileika-
fólki fyrir kvikmyndir, auglýsingar
eða önnur verkefni. Mjög einfalt og
þægilegt kerfi, engin umboðsgjöld
og óþarfa tímaeyðsla. Það tekur
auðvitað tíma fyrir fólk að meðtaka
svona og venjast kerfinu en þetta
kemur allt smám saman.“
Nú þegar Ásdís Rán býr á Íslandi
eyðir hún frítímanum helst úti í
Búlgaríu. „Já, þetta hefur snúist við.
Ég fór til dæmis út um jól og páska
til Búlgaríu og fór í tvær skíðaferðir
þangað í vetur og eyddi þá ein-
hverjum tíma líka heima í Sofíu
með vinum. Ég fer líka þangað út
ef það eru sérstök aukaverkefni eða
tilefni.“
Sonur hennar Róbert Andri er
orðinn tvítugur og systkinin Hek-
tor tólf ára og Victoría tíu ára eru
í sumarfríi hjá föður sínum í júní-
mánuði þannig að hún hefur tíma
til að ná sér áður en þau koma aftur
til hennar. „Þau eru orðin svo stór,
þessar elskur!“ segir Ásdís Rán og
stefnir á að vera komin til betri
heilsu þegar hún eyðir með þeim
restinni af sumrinu.
Vill bæta við flugmannsréttindin
Flug hefur átt hug Ásdísar Ránar
síðustu misseri. Hún er með rétt-
indi á þrjár tegundir af þyrlum, bæði
á litlar æfingavélar og farþegavélar.
Hana hefur langað að sækja sér enn
frekari réttindi. Það hefur þó orðið
ákveðið hlé á því eftir að hún flutti
til Íslands. Auðvitað setur slysið líka
enn frekar strik í reikninginn.
„Því miður er lítið sem ég get gert
á því sviði hér á Íslandi, það eru
engar litlar æfingavélar í boði hér
til að fljúga þannig að ég verð að
fara til útlanda til að safna tímum
og það er töluverður kostnaður við
það plús kostnaðurinn við flug-
tímana sjálfa en vonandi koma
fleiri vélar til landsins í framtíðinni
þannig að það sé hægt að þróa
betur þyrluflugmannamarkaðinn
hérna. Annars er ég er alveg til í að
fjárfesta í einni Robinson 22 ef ég
fæ nokkra aðra með mér, þannig
að ef það er einhver þarna úti sem
hefur áhuga á þessu þá bara endi-
lega setja sig í samband við mig,
þessi fjárfesting kemur betur út en
að kaupa 200 flugtíma erlendis til
að klára námið. Ég er ekki búin með
atvinnuflugmannsréttindi en ætla
að taka prófið við tækifæri þegar ég
hef tíma fyrir ár erlendis í bóklegu
námi, ég er langt komin í flugtím-
unum og á ekki marga eftir til að
klára commercial pilot gráðuna.“
Hún segir langflest áhugamál sín
fela í sér mikla hreyfingu og krefjast
orku. „Ég hef rosalega gaman af allri
útivist, flugi, ég hef gaman af því að
fara í skotgallerí í Búlgaríu, elska
skíði, mikið fyrir alls konar líkams-
rækt, alla hönnun og hef unnið að
hinum ýmsu verkefnum allt frá
innanhússhönnun, fatahönnun,
skartgripahönnun upp í förðun
og þróun á snyrtivörulínum. Ég
hef mjög gaman af ljósmyndun,
stíliseringu, er lærð í hárgreiðslu og
förðun og er sérfræðingur í flestu á
þessum sviðum fegrunar. Þetta eru
allt áhugamál og oftar en ekki vinn
ég við margt af þessu líka.“
Villiköttur og Ísdrottning
Hún segir fyrirsætubransann hafa
breyst mikið og til batnaðar. „Nú
eru miklu fleiri týpur í gangi og
minna um reglur t.d eru módelin
af alls konar stærðum, gerðum og
aldurinn hefur hækkað mikið, nú
geturðu alveg verið að módelast
til fimmtugs og jafnvel lengur ef þú
heldur þér vel og ert virk í þessum
bransa.“
En hún sjálf, hefur hún breyst? „Ég
held að ég hafi nú ekki breyst mikið,
ég er bara alltaf sama Ísdrottningin
og smá villiköttur í mér. En maður
þroskast auðvitað alltaf og vex
með lífinu og reynslunni. Ég er svo
heppin hafa fengið að upplifa mikið
á minni stuttu ævi. Ég hef búið í sex
löndum, kynnst og upplifað ólíka
menningu víðsvegar um heiminn
og ferðast ótrúlega mikið, nú er
ég orðin aðeins rólegri og farin að
njóta mómentsins aðeins meira.“
búin með sín níu líf
Ásdís Rán hefur oftar lent í alvar-
legum slysum og hættulegum
aðstæðum. „Ég er nú búin að lenda
ansi oft í hættulegum aðstæðum
sem ég hef rétt sloppið úr á lífi og
þeir sem þekkja mig segja að ég sé
eins og kettirnir og sé með níu líf,
ég hins vegar er nokkuð viss um að
þessi níu líf eru búin núna þann-
ig að ég þarf að fara að passa mig
betur! En annars hef ég lent í fjórum
lífshættulegum slysum og einhverj-
um fleiri minni sem ég hef sloppið
vel frá, þannig að ég er algjör hrak-
fallabálkur!
Ég slasaðist mest núna, hins vegar
var ég eflaust heppnari að hafa lifað
hin slysin af,“ segir Ásdís Rán en
þegar hún var fimmtán ára var keyrt
á hana á fullum hraða. Þá lenti hún í
alvarlegu bílslysi árið 2007 sem hún
slapp ótrúlega vel frá.
„Ég var svo heppin að í staðinn
fyrir að lenda undir bílnum þá
hentist ég í lofköstum yfir á umferð-
areyju hinum megin sem var með
grasi á þannig ég slapp lifandi. Árið
2007 lenti ég svo í mjög slæmu bíl-
slysi þar sem var keyrt á fullum
hraða inn í bílinn, bílstjóramegin,
þar sem ég sat, bílarnir eyðilögðust
og ég slasaðist töluvert og missti
minnið í smá tíma en slapp ótrúlega
vel frá þessu.
Um 2008 lenti ég svo aftur í lífs-
háska þegar ég varð mjög veik og
uppgötvaðist á síðustu stundu að ég
var með miklar innvortis blæðingar
og hafði blætt inn á líffæri mín út frá
blöðru á öðrum eggjastokknum sem
hafði sprungið. Það náðist rétt svo
að bjarga mér með bráðaskurðað-
gerð á sjúkrahúsi í Búlgaríu. Svo
ég hef prófað ýmislegt í gegnum
tíðina.“
engar hindranir
Hún segist afar þakklát því góða
og ævintýralega lífi sem hún hefur
fengið að lifa. Háskinn setur hlut-
ina í samhengi og skerpir á því sem
er mikilvægt. „Fjölskyldan, ástin,
hamingjan og skemmtileg móment
gefa lífinu gildi án efa, það besta sem
hefur komið fyrir mig er að hafa
gengið með og eignast þessi frábæru
kláru og yndislegu börn sem ég á og
að hafa fengið tækifæri til að búa
erlendis og upplifa heiminn og lifa
þessu ævintýralega lífi sem ég hef
lifað síðustu fimmtán ár.“
Hún segir það nokkurs konar lífs-
reglu hjá sér að hvetja fólk til þess að
elta drauma sína meðan það getur
og hefur heilsu til. „Ekki gefast upp
þó á móti blási og allt virðist von-
laust. Það gefur mér tilgang í lífinu
að geta veitt fólki innblástur og
hvetja fólk til að hafa trú á sér. Það
gleður mig að fólk geti horft á mig
og sagt vá hún gat þetta þá hlýt ég að
geta þetta og að ég geti sýnt að það
eru engar hindranir í lífinu nema þú
sjálfur – það er allt hægt ef viljinn er
fyrir hendi!“
1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-9
2
2
8
1
D
1
D
-9
0
E
C
1
D
1
D
-8
F
B
0
1
D
1
D
-8
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K