Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 28
ferðuðumst mikið um Bandaríkin
á næstu árum og þá komumst við
handan við galleríin – komumst út í
senuna sjálfa áður en val galleríanna
átti sér stað. Við fórum mikið í lista-
háskólana, kynntumst ungum gagn-
rýnendum sem voru að kynna sína
kynslóð og fengum mjög breiða sýn á
bandaríska samtímalist og keyptum
samtímis gífurlega mikið magn af
verkum. Í framhaldinu gerðum við
ásamt Hans-Ulrich Obrist og Daniel
Bierbaum stóra sýningu sem kallaðist
Uncertain States of America – Amer-
ican Art in the 3rd Millennium, með
verkum þá þessara óþekktu lista-
manna. Um 70-80% af þeim eru stór
nöfn í listaheiminum í dag sem er
merkilega hátt hlutfall.
En það sem mestu skiptir er að
með þessu var loksins komið á
Norðurlöndunum safn af banda-
rískri samtímalist. Markmiðið var
að gefa almenningi raunverulega sýn
á bandaríska samtímalist frá lokum
áttunda áratugarins og fram til dags-
ins í dag og þetta erum við enn að
vinna með.“
Eitt verk borgaði allt
Gunnar viðurkennir að vissulega
fylgi því ákveðið frelsi að stýra
einkasafni í samanburði við safn í
opinberri eigu. „Við erum alveg laus
við að sjá um listasögu Noregs en við
erum norsk stofnun og við megum
ekki gleyma því. Þar af leiðandi þá
erum við með sýningar með norsk-
um listamönnum. Að auki kaupum
við líka verk norskra listamanna en
á sömu forsendum, það er að segja,
verk listamanna sem við teljum að
skipti miklu máli fyrir norska og
alþjóðlega myndlist.“
Gunnar bætir við að þessar norsku
rætur skipti líka eigendur safnsins
miklu máli og rætur safnsins liggi
djúpt í norsku viðskiptalífi. „Hans
Rasmus Astrup er erfingi að stóru
skipafyrirtæki og bæði hans föður–
og móðurfjölskylda áttu nokkur af
stærstu skipafélögum Noregs í lok
nítjándu aldar og upphafi þeirrar
tuttugustu. Langalangalangafi hans
stofnaði fyrirtækið um 1840 þegar
hann byrjaði að selja fisk til Spánar.
En fljótlega komst hann að því að
það væri arðvænlegra að eiga skipin
líka og þar með fór í gang uppbygg-
ing á skipafélagi. Í upphafi tuttugstu
aldar voru Norðmenn þriðja stærsta
skipaveldi heimsins á eftir Bretum og
Þjóðverjum en í fyrri heimsstyrjöld-
inni, þegar þeir þurftu að sinna öðru,
þá urðu norsku félögin þau stærstu
í heimi. Þá streymdi hingað alveg
gríðarlegur auður og á þessum tíma
voru eigendur þessara skipafélaga
farnir að fjárfesta í myndlist auk þess
að eiga peninga á bankareikningum
um allan heim.
Þegar heimskreppan skall á verða
peningar afar vafasamur og eigin-
lega hálf ónýtur gjaldmiðill en þá
hafði Stang-fjölskyldan, móðurfjöl-
skylda Hans Rasmus Astrup, byggt
upp gífurlegt listasafn af verkum Céz-
anne, Renoir, Gauguin, stærsta safn
Norður-Evrópu af impressjónistum
á þessum tíma. Í borðstofunni hjá afa
Hans Rasmusar hékk verk Gauguin:
Hvaðan komum við, hvað erum við,
hvert erum við að fara? Höfuðverk
listasögunnar og ótrúlegur fjársjóður
sem hangir nú uppi í Boston. Í krepp-
unni hrundi svo skipaiðnaðurinn
eins og annað en fjölskyldan gat
borgað allar sínar skuldir, komið
skipafélögunum á réttan kjöl, aðeins
með því að selja þetta eina verk.
Það er magnað en fyrir vikið er
Hans Rasmus líka mjög meðvitaður
um það hvað listasagan og listheim-
urinn felur í sér og hvað þarf til. Hann
hefur alltaf sinnt þessu af ástríðu og
þetta er eina einkasafnið á Norður-
löndum af þessari stærðargráðu og
það eina sem hefur haft metnað til
þess að byggja upp slíkt safn. Það
eru auðvitað til margir ríkari menn
hér um slóðir en þeir hafa bara ekki
haft áhuga á þessu viðfangsefni eða
skilning á möguleikunum.“
Verkfæri og vinnukúltúr
Þessi alþjóðlegi listheimur er gríðar-
lega stór en skyldi það hafa mótað
Gunnar að koma úr litlu samfélagi út
í þennan stóra heim? „Já, kannski,“
segir Gunnar hugsi. „Þetta hefur að
gera með sjálfsmyndina. Þú ert hluti
af litlu samfélagi og færð ákveðna
viðurkenningu frá því og í litlu lista-
samfélagi eins og heima er maður
afskaplega nálægt listalífinu og
hluti af því öllu. Það getur verið gott
að koma úr litlu samfélagi þar sem
maður fær tækifæri til þess að vinna
með öll verkfærin, hvort sem er í
tengslum við listina, listamennina,
fjölmiðla, stjórnsýsluna og svo fram-
vegis. Þannig að það að starfa heima
reyndist mér vera gífurlega mikill og
góður lærdómur þó svo skalinn væri
allt annar því inntakið og mekaníkin
er í raun sú sama.
Veikleikinn aftur á móti er að
maður kemur nýr inn í listasamfélag
sem maður þekkir ekki og samsetn-
ingin er miklu flóknari hér. Þannig að
maður þarf að læra að skilja hvernig
allt gengur fyrir sig og sérstaklega er
mikill munur á vinnukúltúr. Á Íslandi
er alltaf sterk tilhneiging, og ég var
engin undantekning á því, að vinna
meira eins og einræðisherra. Hér
hins vegar er miklu láréttari strúktur
í samfélaginu og í stofnunum. Miklu
meira samtal og áhugi á því að finna
sameiginlegan flöt. Þannig að þegar
ég legg fram mitt plan hér þá þarf ég
að vinna það meira út frá ákveðnu
samþykki og sameiginlegri sýn
fleiri aðila. Ég hef mína stjórn sem
hefur ráðið mig til verksins en inni
í stofnuninni sjálfri er lögð áhersla
á að allir séu með og það er ákveðið
lýðræði í vinnukúltúrnum hér og því
þarf að nálgast allt út frá þeirri sam-
ræðuhefð.“
Gunnar segir að það skipti líka
máli í þessu samhengi að á Íslandi séu
bókmenntirnar móðurskipið innan
listheimsins. „Bókmenntaheimurinn
og -fræðin heima á Íslandi er komin
mun lengra innan háskólanna og er
búin að framleiða miklu meiri þekk-
ingu en listfræðin en þetta hefur
breyst mikið á síðustu tuttugu árum.
Við Íslendingar þurfum ekki að gera
annað en að líta á okkar skólagöngu
til þess að sjá hversu sterk staða bók-
menntanna er og hefur verið lengi.
Skólakerfið á Íslandi hefur aldr-
ei sinnt listasögu eða myndlist að
nokkru marki. Meira að segja var
það þannig með mig sem var alinn
upp á vinnustofu myndlistarmanns
að þær umræður um myndlist sem ég
tók þátt í með föður mínum og hans
kollegum voru mjög takmarkandi.
Hann sem abstrakt listamaður hafði í
raun takmarkaða orðræðu til þess að
útlista sínar ætlanir sem hann hafði
þó ótvírætt eins og maður sér vel
þegar verkin eru skoðuð. Hans verk
voru mjög hugsuð en hann hafði fá
verkfæri til þess að lýsa sínum ásetn-
ingi. Ég minnist þess þegar ég sat og
hlustaði á pabba og Þorvald Skúlason
þá var þetta á stundum hálfgerður
hugsanaflutningur því þessar sam-
ræður voru leitandi.“
Gunnar segir að tungumálið og
staðbundin menning, hvernig maður
upplifir heiminn, setji sín mörk á
það sem við hugsum og gerum og
þess vegna skipti þetta miklu máli.
„Ákveðin birtingarmynd þessa er að
það má vel sjá móta fyrir sérkennum
listamanna út frá tungumálinu þrátt
fyrir þá alheimsvæðingu myndmáls
sem hefur átt sér stað í listinni á
síðustu áratugum. Þannig að ef við
myndum skoða vel verk eftir Ragnar
Kjartansson, Erró og marga íslenska
listamenn þá kæmum við til með að
geta einangrað ákveðin samfélagsleg
og menningarleg fyrirbæri og þá jafn-
vel í tengslum við tungumálið. Það er
það sem gefur þessum listamönnum
ákveðna sérstöðu þó svo þeir séu líka
hluti af stærri heild. Í dag er enginn
einn samnefnari í myndlistarheim-
inum, heldur er hann samsettur og
jafnvel kakófónía, af ólíkum hug-
myndum sem í raun eiga rætur í ólíkri
menningararfleifð. Það leiðir til þess
að í þessum alþjóðlega myndlistar-
heimi er ekki lengur neitt stigveldi.“
Gestirnir vilja læra
Myndlistin hefur alla tíð verið
Gunnari ástríða og hann segir að
vissulega felist ákveðin forréttindi í
því að fá að starfa við áhugamál sitt.
„En það er mér líka ástríða að byggja
upp þetta safn og einkasafn á borð
við þetta verður að geta sýnt fram á
ákveðna þekkingarframleiðslu og
ekki láta staðar numið við að vera
flottur búðargluggi. Fyrir mig per-
sónulega var mjög mikilvægt að
fá stjórnina til að skilja að þetta er
ekki bara spurning um að kaupa
myndlist og sýna heldur sé það ekki
síður mikilvægt að hafa hér fagfólk
og framleiða þekkingu og kunnáttu.
Við þurfum líka að vera meðvituð
um þá þróun sem hefur verið að eiga
sér stað í Evrópu síðasta áratuginn
þar sem samtímalistin er komin
með nýja stöðu hjá almenningi.
Það hefur orðið gríðarleg aukning
á listsýningum almennt og í Ósló er
þetta sérstaklega áberandi því hér
hefur orðið bylting í því sem kalla
má borgarmenningu. Þegar ég kom
hingað fyrir tuttugu árum var Ósló
frekar grá og leiðinleg borg en svo
smám saman hefur vaxið hér fram
skýr borgarmenning með kaffi-
húsum, útiveitingahúsum og fyrsta
flokks veitingastöðum. Söfnin eru
þær stofnanir sem hafa notið hvað
mest þessarar breyttu borgarmenn-
ingar því þau eru svo aðgengileg
almenningi. En við fundum líka að
kröfurnar til safnsins breyttust og
létum framkvæma skoðanakönnun
fyrir tveimur árum til þess að átta
okkur betur á þessu. Spurðum
aðeins einnar einfaldrar spurningar:
Af hverju kemurðu í listasafn? Svo
greindum við þetta eftir alls konar
hópum en í öllum þessum hópum
voru yfir 75 prósent sem svöruðu ein-
faldlega: Ég kem í listasafnið til þess
að læra um list.
Þetta var í senn óvænt og ánægju-
legt. Við áttum alls ekki von á þessu
en söfnin eru einu stofnanirnar sem
framleiða og miðla þekkingu með
þessum hætti og svo áttaði fólk sig
líka á því hversu alþjóðlegt þetta safn
er. En þetta er auðvitað alveg eins og
með tónlistina þar sem fólk vill fá
fjölbreytni og hlusta á alþjóðlega tón-
list og þetta sýndi okkur að fólk hefur
áhuga á alþjóðlegri myndlist.“
Gunnar segist líka hafa fundið fyrir
bæði undrun og hrifningu á meðal
gesta yfir því að þetta sé einkasafn.
„Þetta þykir fólki sérstakt í þessu
sósíaldemókratíska kóngaríki sem
Noregur er þar sem menningin og
samfélagið er ríkisrekið frá a til ö.
En þetta er hluti af því að auka fjöl-
breytnina, rétt eins og í fjölmiðlum
og öðru, því það er mikilvægt að það
séu margar raddir sem eru að segja
okkur allar þessar ólíku sögur, hvort
sem það er um heimsmálin eða sam-
tímalist. Þannig að við höfum mark-
visst komið inn með raddir sem segja
almenningi sögur frá bandarískri
samtímalist, kínverskri samtímalist
og alls konar erlendum listamönn-
um. Þetta hefur orðið til þess að fólk
nýtur þess að koma hingað og sjá eitt-
hvað annað, fjarlægt og spennandi og
það gleður okkur mikið.“
Ávöxtur menningarpólitíkur
Það er annað í þessu samhengi sem
er mjög mikilvægt að nefna, ekki
síst í tengslum við íslenska lista-
senu, sem er að hér í Noregi hefur
verið rekin gífurlega öflug og með-
vituð menningarpólitík síðastliðin
20 ár. Þessi menningarpólitík er
núna að bera ávöxt en hún byrjaði
með því að í samvinnu við samtök
listamanna áttaði pólitíkin sig á
því að menningin er burðarstólpi
í samfélaginu og að menningar-
heimurinn og myndlistin líkt og
aðrar listgreinar þyrfti að geta notið
góðs af þeim auði sem þjóðin ætti í
olíupeningunum. Þá kemur snemma
fram hugmynd um að búa til kerfi
sem er eins konar borgaralauna-
kerfi, þar sem fólk hefur alltaf sína
grunnframfærslu. Þetta gerir það að
verkum að nánast allir listamenn í
Noregi eru á 50 til 100% launum og
auk þess njóta ný gallerí stuðnings
fyrstu tvö árin.
Í kjölfarið á þessum grunni byrj-
uðu þeir að efla listasöfnin vítt og
breitt um landið og bjuggu til kerfi
utan um það. Þetta nýttist okkur vel
þegar ég var í Bergen og þar fengum
við fjárframlag til að styrkja þekk-
ingarsköpun safnanna og til að safna
listaverkum. Þriðji þátturinn er svo
uppbygging á nýjum listasöfnum og
menningarhúsum.
Þetta hefur gert það að verkum
að núna höfum við hér listaverka-
markað, því þetta hefur líka aukið til-
vist safnara og okkar tilvist hefur líka
smitað, en það er sagt að það séu um
200 safnarar í Noregi og þar af einir
tíu af alþjóðlegum gæðum. Í Ósló
núna eru kannski ein fimm gallerí
sem kalla má alþjóðleg og eru að selja
alþjóðlega og norska myndlist. Þetta
þýðir að norskir myndlistarmenn
hafa öðlast allt aðra tilvist í þessum
alþjóðlega heimi og í dag eru að
minnsta kosti tíu norskir myndlistar-
menn sem eru komnir á ólíka staði í
þessu stóra alþjóðlega listkerfi. Það
er gríðarlega mikið fyrir ekki stærri
þjóð en þarna erum við að tala um
afsprengi þessarar menningarpólitík-
ur sem ákvað að gefa listamönnunum
tækifæri, lífsviðurværi og möguleika
á því að þróa sína listsköpun.“
Dreifing auðsins
Gunnar segir að þetta sé honum sér-
staklega hugleikið þessa dagana í
ljósi þess sem er að gerast á Íslandi.
„Ég sá það í blöðunum um daginn
að listamenn heima á Íslandi eru að
berjast fyrir því að fá borgað fyrir það
að verkin þeirra séu sett upp á sýn-
ingar,“ segir Gunnar og nú er honum
mikið niðri fyrir. „Hér eru það bara
lög. Ef ég sýni verk eftir norskan lista-
mann verð ég að borga honum laun
fyrir það. Annað er galið.“
En er þetta ekki bara eitthvað sem
moldrík olíuþjóð getur leyft sér?
„Nei, þetta er byggt á flottri framtíð-
arsýn og það þarf að sjá langt fram í
tímann til þess að hrinda slíku í fram-
kvæmd. Þetta hefur nefnilega ekki
bara að gera með olíuna heldur ein-
faldlega þá staðreynd að norskt sam-
félag er gagnsætt og þannig byggt upp
að auðnum er dreift út í samfélagið
– út til almennings. Tökum Frakkland
sem dæmi því það er líkast til mun
ríkara land en skipting verðmætanna
og dreifing er bara miklu minni. Á
Íslandi getum við horft til þess að ef
sjávarútvegurinn væri þjóðnýttur á
sama hátt og olían er þjóðnýtt hér, þá
væri auðvitað grundvöllur ríkissjóðs
allt annar. Núna fara þessir peningar
bara til einhverra einstaklinga, á örfá-
ar hendur. Þetta er stóri munurinn.
Hér er ekkert yfirdrifið en allt sam-
kvæmt ákveðinni þörf og hvort sem
þú ert til hægri eða vinstri í pólitík þá
er fólk sammála um ákveðin grund-
vallargildi.
Menningarpólitíkin hér er ljós-
lifandi afleiðing af þessari dreifingu
auðsins og eitt af því flottasta sem
maður getur talað um í norsku sam-
félagi. Þetta er einstök framtíðar-
sýn. Við á Astrup Fearnley erum líka
þátttakendur og mikilvægur hlekkur
í þessari stóru menningarlegu sókn
Norðmanna og það skiptir okkur
miklu máli.“
Jeff Koons, Michael Jackson og Bubbles, 1988, eitt af þekktustu verkunum í eigu Astrup Fearnley samtímalistasafnsins.
MynD/Astrup FEArnlEy MusEEt
Ef ég sýni vErk Eftir
norskan listamann
vErð ég að borga
honum laun fyrir það.
annað Er galið.
þEtta hEfur orðið til
þEss að fólk nýtur þEss
að koma hingað og sjá
Eitthvað annað,
fjarlægt og spEnnandi.
↣
1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R28 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
D
-7
9
7
8
1
D
1
D
-7
8
3
C
1
D
1
D
-7
7
0
0
1
D
1
D
-7
5
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K