Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 70

Fréttablaðið - 17.06.2017, Page 70
Þann fimmta ágúst árið 1971 sáu 110 þúsund áhorfendur á Azteca-leikvanginum í Mexíkó-borg hina fimmtán ára gömlu Susanne Augustesen skora öll mörk Dana í 3:0 sigri á Mexíkó og hampa heims- meistaratitlinum í leikslok. Eftir því sem næst verður komist hafa aldr- ei jafnmargir mætt á fótboltaleik tveggja kvennaliða í sögunni. Ætla mætti að þessum atburði væri rækilega haldið á lofti í sögu- bókum, en sú er þó ekki raunin. Raunar vill alþjóðaknattspyrnu- sambandið, FIFA, sem minnst af leik þessum vita. Til marks um það staðhæfir sambandið að áhorfenda- metið í kvennaflokki sé frá árinu 1999, þegar rétt rúmlega 90 þúsund manns sáu Bandaríkjamenn leggja Kínverja í úrslitaleik HM sem leik- inn var í Pasadena í Kaliforníu. Þöggunin um kappleikinn í Mexíkóborg á sér að mörgu leyti skiljanlegar ástæður. Margt í umgjörð hans var vandræðalegt og þolir illa upprifjun, en jafnframt tengist hið valkvæða sögulega minni ýmsum flækjum varðandi upphaf nútímakvennaknattspyrnu. Þótt dönsku stúlkurnar væru krýndar heimsmeistarar og verðu þannig titil sinn frá keppni sem haldin var á Ítalíu árið áður, var um óopinbert mót að ræða. Kvenna- liðin stóðu utan við hina formlegu knattspyrnuhreyfingu og nutu einskis stuðnings hennar. Það voru einkaaðilar sem skipulögðu mótið á Ítalíu 1970 og kenndu það ýmist við aðalstyrktaraðilann: áfengisfram- leiðandann Martini eða kölluðu það heimsmeistarakeppni. Keppnis- liðin fengu greitt fargjaldið og lítil- ræði fyrir uppihaldi, en áhorfendur létu sig ekki vanta . Um 50 þúsund mættu á úrslitaleikinn og mótshald- arar græddu á tá og fingri. Kornungt og nálega óþekkt lið Mexíkó kom mjög á óvart á mótinu og hafnaði í þriðja sæti. Sú velgengni vakti athygli mexíkóskra kaupsýslu- manna Nokkrum árum fyrr hafði hinn glæsilegi Azteca-völlur verið reistur í höfuðborginni. Leikvang- urinn, sem var í eigu einkaaðila, var opinber heimavöllur landsliðsins og kom að góðum notum í knatt- spyrnukeppni Ólympíuleikanna árið 1968 og tveimur árum síðar þegar Mexíkó hýsti HM í fótbolta. Eins og svo títt er með slík mann- virki eftir stórmót, áttu eigendurnir hins vegar bágt með að finna vell- inum hlutverk og skapa tekjur til að standa undir rekstrinum. Í þessu skyni var efnt til heimsmeistara- mótsins 1971, fjölda evrópskra landsliða var boðið til keppni og greiddu skipuleggjendur allan kostnað. Íþróttamót eða gripasýning? Frá fjárhagslegu sjónarmiði tókst keppnin frábærlega. Áhorfendur voru fjölmargir á öllum leikjum og fjölmiðlar sýndu mikinn áhuga. Deila má þó um hvort þessi mikli áhugi hafi að öllu leyti verið á rétt- um forsendum. Í byrjun áttunda áratugarins var Mexíkó mikið karlrembusamfélag. Íþróttir kvenna voru skör lægra sett- ar en karla og þótt fótboltaáhuga- menn í Mexíkó gleddust að sönnu yfir velgengni kvennalandsliðs síns, þótti hugmyndin um að konur léku knattspyrnu hálf hlægileg. Keppnin var því öðrum þræði auglýst sem skemmtiatriði eða furðusýning. Rík áhersla var lögð á kynþokka knattspyrnustúlknanna og tók það stundum á sig fáránlegar myndir. Þannig voru förðunardömur til taks fyrir leik og í hléi til að greiða leik- mönnum og mála þær. Snyrtivöru- fyrirtæki og fataframleiðendur voru meðal kostunaraðila og var mikið gert úr öllu því skarti og ilmvötnum sem stúlkurnar fengu að launum fyrir þátttökuna. Þá komu skipu- leggjendurnir því til leiðar að liðin kepptu í litskrúðugum treyjum og aðskornum stuttbuxum – hugmynd sem hinn alræmdi FIFA-forseti Sepp Blatter átti löngu síðar eftir að end- urvekja í því skyni að auka vinsældir kvennaleikja. Líkt og til að árétta að hér væri ekki um „alvöru“ fótbolta- leiki að ræða var keppt með bleik- máluð mörk á mótinu. Eins og gefur að skilja hefur áhugafólk um sögu kvennaknatt- spyrnu viljað sópa hinni vandræða- legu Mexíkó-keppni undir teppið. Engu að síður voru áhrif hennar á þróun íþróttarinnar allnokkur. Mótin á Ítalíu og í Mexíkó áttu sinn þátt í því að knattspyrnuhreyfingin ákvað að opna faðm sinn fyrir kven- kyns iðkendum. Þótt karlar hafi lengst af verið mest áberandi á fótboltasviðinu og séu svo sem enn, má finna allnokkur dæmi um að konur hafi lagt stund á íþróttina, allt frá fyrstu tíð. Knatt- spyrnukeppnir kvenna færðust mjög í vöxt á árum fyrri heimsstyrj- aldarinnar, þegar konur fóru í vax- andi mæli út á vinnumarkaðinn til að leysa af hólmi karla sem gegndu herþjónustu. Stríðið gerði það líka að verkum að deildarkeppnir í knattspyrnu lögðust af, þar sem margir leikmenn héldu á vígvöllinn og ekki þótti við- eigandi fyrir þá sem heima sátu að sinna gáskafullum íþróttum. Fót- boltaþorstinn var þó enn fyrir hendi og sáu eigendur leikvanga sér leik á borði að bjóða upp á viðureignir kvennaliða sem gátu dregið að sér þúsundir borgandi áhorfenda. Að styrjöldinni lokinni var harður áróður rekinn fyrir því að snúa aftur til hefðbundinna kyn- hlutverka áranna fyrir stríð, þar sem konur ættu að hverfa aftur í húsmóðurhlutverkið. Ein birtingar- mynd þessara viðhorfa var andstaða við fótboltaiðkun kvenna, sem raunar var klædd í lýðheilsubúning þar sem staðhæft var að íþróttin gæti reynst skaðleg fyrir kvenlíka- mann. Enska knattspyrnusamband- ið gekk þar harðast fram og fyrir- skipaði að aðildarfélögum sínum væri bannað að keppa á leikvöngum þar sem konur fengju að sparka í bolta. Þetta var í raun dauðadómur yfir kvennaknattspyrnuflokkunum í landinu. Ýmis önnur knattspyrnusam- bönd í Evrópu og Rómönsku Amer- íku fylgdu í fótspor Englendinga og hreinlega bönnuðu konum að keppa í fótbolta. Næstu áratugina urðu knattfúsar konur því að æfa og spila í óformlegum félögum, jafnvel á laun og þá helst á auðum svæðum eða túnum útí sveit. Kvennaknatt- spyrna var algjört jaðarfyrirbæri og heimildir um hana afar fáar og slitróttar. Íslenskar á skotskónum Hér á landi sá KSÍ aldrei ástæðu til að banna konum sérstaklega að æfa knattspyrnu þótt ekkert væri heldur gert til að hvetja til þess. Handknatt- leikskonur áttu til að grípa í fót- bolta, einkum að sumarlagi þegar æft var utanhúss. Þannig var fyrsti eiginlegi knattspyrnuleikur kvenna á Íslandi milli handboltastúlkna úr Fram og KR sumarið 1968. Tveimur árum síðar var boðið upp á form- legan, stuttan kappleik milli Kefla- víkurkvenna og Reykjavíkurúrvals sem forleik á undan viðureign Íslands og Noregs á Laugardalsvelli árið 1970. Tveimur árum síðar var svo í fyrsta skipti keppt um Íslands- meistaratitil kvenna. Á árunum um og uppúr 1970 hvatti KSÍ aðildarfélög sín til að taka upp kvennafótbolta, við misjafnar undirtektir. Þessi jafnréttishugsjón var ekki sjálfsprottin hjá forystu- mönnum íslensku knattspyrnu- hreyfingarinnar, heldur vegna hvatningar Evrópska knattspyrnu- sambandsins, en um þetta leyti var hvert aðildarsambandið á fætur öðru að nema úr gildi reglur sem bönnuðu konum að leggja stund á íþróttina. Ástæður þessara sinnaskipta voru af ýmsum toga. Almenn viðhorf í samfélaginu voru heldur að þokast í átt til kynjajafnréttis. Stúlkur lögðu í vaxandi mæli stund á keppnisí- þróttir og hvort sem knattspyrnu- forkólfum líkaði það betur eða verr fór fótboltakonum fjölgandi. Í stöku löndum, svo sem á Ítalíu, var jafnvel kominn vísir að mótum á landsvísu, þótt þau væru ekki á vegum knatt- spyrnuhreyfingarinnar. Engan veginn var þó sjálfgefið að þessi atriði nægðu ein og sér til að snúa forystumönnum fótboltaheimsins. Knattspyrnuhreyfingin var gríðar- lega forneskjuleg og lítt næm á tíðarandann. Þannig sáu leiðtogar hennar enga ástæðu til að taka minnsta tillit til ört vaxandi knatt- spyrnusamfélaga í þriðja heiminum og töldu alveg nóg að Afríka, Asía og Eyjaálfa skiptu á milli sín einu sæti í úrslitakeppni Heimsmeistara- mótsins. Áhorfendafjöldi og fjárhagsleg velgengni óopinberu heimsmeist- aramótanna 1970 og 1971 varð hins vegar til að opna augu knatt- spyrnuforystunnar. Einkum eftir að fregnaðist af hugmyndum um að halda næsta heimsmeistaramót í Lundúnum árið 1972, með aðkomu kunnra fyrrverandi kappa úr enska karlalandsliðinu. Þótt knattspyrnu- hreyfingin gæti litið fram hjá litlum fótboltahópum kvenna víðs vegar um Vestur-Evrópu, gegndi öðru máli um stórmót sem drægju til sín áhorfendur og fjármuni. Jaðargreinin kvennaknattspyrna var orðin of stór til þess að alþjóða- samtökin gætu hundsað hana. Evrópska knattspyrnusambandið komst að þeirri niðurstöðu að vænlegra væri að innlima kvenna- boltann en að standa lengur gegn honum. Sjálfstæð kvennaknatt- spyrnusambönd sem stofnuð höfðu verið, til að mynda í Frakklandi, fengu aðild að landssamböndunum – þótt oftar en ekki væru þau gleypt með húð og hári. Evrópska knattspyrnusam- bandið ákvað eftir á að skilgreina viðureign Frakka og Hollendinga í apríl 1971 sem fyrsta opinbera kvennalandsleik sögunnar. Enginn þátttakenda í leiknum áttaði sig á því á sínum tíma að um sögu- frægan kappleik væri að ræða, en enn í dag er hann upphafspunktur allrar opinberrar tölfræði um lands- leikjasögu kvenna. Leikir sömu liða á óopinbera heimsmeistaramótinu í Mexíkó fáeinum mánuðum síðar fá hins vegar ekki náð fyrir augum sagnfræðinga FIFA. Konur fram á völlinn Hér er landslið Ítalíu á landsmóti árið 1979 þar í landi. Keppnisliðin fengu greitt fargjaldið og lítilræði fyrir uppihaldi, en áhorfendur létu sig ekki vanta. Auðæfi úr neðra Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um knattspyrnu- keppni sem margir vilja gleyma.  liðin kePPtu í lit- Skrúðugum treyjum og aðSkornum Stutt- buxum. 1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R34 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 1 7 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 9 6 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 D -7 E 6 8 1 D 1 D -7 D 2 C 1 D 1 D -7 B F 0 1 D 1 D -7 A B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.