Fréttablaðið - 17.06.2017, Síða 76
Elsa María Kolbeinsdóttir er
sjö ára og var að klára 1. bekk
í Melaskóla og það er margt
áhugavert á dagskránni hjá
henni í sumar.
„Ég fer ábyggilega á fimleika
námskeið á næstunni, svo ætla
ég í tjaldferð norður í land og
tjalda nálægt Sauðárkróki og
líka til útlanda og verða í tvær
eða þrjár vikur, þá ætla ég í
Disney land.“
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera heima? „Ég er oft að
teikna og reyni að læra af þeim
sem eru góðir. Ég teiknaði bláa
kisu fyrir ömmu mína í gær. Hún
pantaði hana. En mér finnst
skemmtilegast að syngja og
langar að verða söngkona.“
Hvaða lag syngur þú oftast núna?
„Girl on fire sem á íslensku þýðir
stelpa á eldi.“
Hvar lærðir þú það? „Ég heyrði
það bara hjá mömmu minni.“
Æfir þú á hljóðfæri líka? „Ég var
að æfa á fiðlu en ég hætti. En ég
vona að ég sé að byrja í kór.“
Hvað heitir besta vinkona þín?
„Hún heitir María og við erum
oftast að leika saman á skólalóð
inni og líka heima hjá mér. Hana
langar oftast að koma í heimsókn
til mín því ég á hund.“
Áttu hund? Segðu mér frá
honum. „Hann heitir Pipar. Hann
er rosa góður, hann er bara eins árs
í mannalífum en sjö ára í hunda
lífum svo við erum eiginlega jafn
gömul. Hann er bara að læra enn
þá en ég held hann sé samt orðinn
eins stór eins og hann verður. Við
erum rosa góðir vinir og ég fer oft
með hann út. Hann kostaði lítið en
það sem er dýrast við hann er að
kaupa matinn hans. Hann kostar
sjö þúsund pakkinn.“
Á hund sem heitir
Pipar og er rosa góður
Tröllin í fjöllunum
Hér er góður leikur til að leika á
ættarmótum eða annars staðar
þar sem margir eru saman og hafa
tún, íþróttavöll eða annað autt
svæði til að leika sér á.
Fjórir leikmenn eru tröllin í
fjöllunum. Þeir eiga hver sitt horn
á leiksvæðinu og nefna það eftir
ákveðnum fjöllum.
Aðrir leikmenn eru lömb sem
dreifa sér um svæðið. Síðan hefst
keppni á milli tröllanna um það
hvert þeirra nær flestum lömbum
á sitt fjall með því að ná þeim og
klukka þau.
Leikurinn
„Mér finnst skemmtilegast að syngja og langar að verða söngkona,“ segir Elsa
María. FréTTablaðið/STEFán
Elsa María Kolbeins-
dóttir ætlar í tjald-
ferð í sumar norður
í land og líka til út-
landa. Þar ætlar hún
að heimsækja teikni-
myndapersónurnar
í Disneylandi. En í
framtíðinni stefnir
hún á að verða
söngkona.
Hvað er skemmti-
legast við
bækur?
Mér finnst
sögu-
þráðurinn
skemmti-
legastur
og að
geta
búist við
einhverju
óvæntu.
Hvaða
bók lastu
síðast og um
hvað var hún?
Síðasta bók sem ég
las var Kafteinn Ofur-
brók og ævintýri hans. Ég fékk
bókina í
fyrradag
og kláraði
hana í gær.
Hún fjallar
um tvo
stráka, Georg
og Harald, sem
dáleiða skóla-
stjórann sinn þannig
að hann breytist í Kaftein
Ofurbrók.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér?
Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunn-
ar Helgason.
Hvernig bækur þykir þér
skemmtilegastar?
Mér finnst fyndnar bækur
skemmtilegastar og bækur með
óvæntum söguþræði.
Í hvaða skóla gengur þú?
Árbæjarskóla.
Ferðu oft á bókasafnið?
Ekki nógu oft.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Fótbolti.
Lestrarhestur vikunnar - Jóel Baldursson, 10 ára
Jóel kampakátur með
verðlaunabókina
sem er eftir Hildi
Knútsdóttur og
Þórdísi Gísla-
dóttur.
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Bragi Halldórsson
254
Lísaloppa rýndi í gátubókina og sagði: „Hvernig skyldi þessi þraut nú vera?“ Konráð
hugsaði kíminn að vonandi væri þrautin ekki sú að þurfa að lykta af sokkunum til
að vita hverjir væru óhreinastir. „Þrautin er svona,“ sagði Lísaloppa þá: „Við erum
með þrjú pör af sokkum í poka, eitt gult, eitt röndótt og eitt köflótt. Ef við
við að ná okkur í einn sokk til þess að vera örugglega komin með eitt par“ Kata
myndi aldrei klæðast köflóttum sokkum.“
örugglega kominn með eitt par?
SVAR: Fjórum sinnum ef þrír þeir fyrstu væru allir af sitthvorri sort.
1 7 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R40 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
D
-7
9
7
8
1
D
1
D
-7
8
3
C
1
D
1
D
-7
7
0
0
1
D
1
D
-7
5
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K