Fréttablaðið - 13.07.2017, Síða 12
Marshallhúsið – Grandagarður 20, 101 Reykjavík . Með strætó, leið 14 (Listabraut)
Bantið borð í síma 519 7766 eða á www.marshallrestaurant.is
BLEIKJUTARTAR, SÍTRUS, RADÍSUR, CROUTONS
MAR DE FRADES – RIAS BAIXAS
—
CANNELONI, RICOTTA, VALHNETUR, GRÁÐOSTUR
RAMÓN BILBAO EDICION LIMITADA – RIOJA
—
GRILLAÐUR LAMBAHRYGGUR, BOK CHOY, HVÍTLAUKSKARTÖFLUMÚS
RAMÓN BILBAO GRAN RESERVA – RIOJA
—
MASCARPONE, JARÐABER, PISTASÍUR
ASTI GANCIA SPUMANTE – PIEDMONT
MATSEÐILL 7900
MEÐ VÍNPÖRUN 13300
RAMÓN BILBAO MATSEÐILL
13.-16. JÚLÍ
Bandaríkin Rannsókn á og umfjöll-
un um tengsl rússneska ríkisins við
forsetaframboð Donalds Trump
Bandaríkjaforseta eru mestu norna-
veiðar í stjórnmálasögu Bandaríkj-
anna. Þessu tísti forsetinn í gær.
Donald Trump yngri er mikið til
umfjöllunar í Bandaríkjunum, sem
og víðar, vegna fundar sem hann
sótti í júní á síðasta ári með lög-
fræðingi er hefur tengsl við rúss-
nesku ríkisstjórnina. Var boðað til
fundarins á þeim forsendum að lög-
fræðingurinn byggi yfir skaðlegum
upplýsingum um Hillary Clinton,
mótframbjóðanda Trumps eldri.
The New York Times upplýsti
Trump yngri um að blaðið ætlaði
að birta tölvupóstsamskipti hans
við Rob Goldstone, upplýsingafull-
trúann sem kom fundinum á. Birti
Trump yngri tölvupóstana sjálfur á
Twitter. Í þeim sagði forsetasonur-
inn að hann yrði hæstánægður með
að fá téðar upplýsingar. Jafnframt
upplýsti Goldstone Trump yngri
um að upplýsingarnar væru „liður í
stuðningi Rússlands og ríkisstjórnar
þess við framboð Donalds Trump“.
Fyrrnefnt tíst Bandaríkjaforseta
var sent út í kjölfar viðtals sonarins á
sjónvarpsstöðinni Fox News. „Sonur
minn, Donald, stóð sig vel í gær-
kvöldi. Hann var opinskár, gagnsær
og saklaus. Þetta eru mestu norna-
veiðar í stjórnmálasögunni. Sorg-
legt!“ tísti forseti Bandaríkjanna.
„Af hverju eru Demókratar ekki
meðhöndlaðir á sama hátt? Sjáið
hvað Hillary Clinton virðist hafa
komist upp með. Skammarlegt!“ tísti
Trump síðar um daginn.
Sagði sonurinn í viðtalinu, sem
Sean Hannity tók, að hann hefði
aldrei sagt föður sínum frá fund-
inum. „Þetta var svo mikið ekkert.
Það var ekkert að segja. Ég meina,
ég hefði ekki munað eftir þessu áður
en fjölmiðlar fóru að garfa í málinu.
Þetta var bara tuttugu mínútna
tímasóun, sem er synd.“
Trump yngri sagði jafnframt að
hann myndi standa á annan hátt
að hlutunum, fengi hann einhverju
um það ráðið. „Einhver sendi mér
tölvupóst. Ég ræð ekki hvað einhver
sendir mér. Ég les það og sendi við-
eigandi svar,“ sagði Trump yngri.
Dmítrí Peskov, talsmaður Rúss-
landsstjórnar, hefur sjálfur neitað
tengslum ríkisstjórnarinnar við
lögfræðinginn sem sótti fundinn og
það hefur lögfræðingurinn sjálfur
einnig gert.
Demókratar taka þessum nýju
upplýsingum ekki af léttúð. Þannig
hafa allnokkrir þeirra bendlað for-
setasoninn við landráð. Meðal ann-
ars öldungadeildarþingmaðurinn
Tim Kaine, sem var varaforsetaefni
Clinton.
„Það er ekkert sannað enn. En
þetta er orðið meira en bara spurn-
ingin um að hindra framgang rétt-
vísinnar. Þetta fer að nálgast mein-
særi og jafnvel landráð,“ sagði Kaine.
Fulltrúadeildarþingmaðurinn
Seth Moulton tók í sama streng. „Ef
þetta eru ekki landráð veit ég ekki
hvað.“
Enn sem komið er hafa Repúbl-
ikanar lítið viljað tjá sig um málið
og vísa samkvæmt The Wall Street
Journal frekar á þá er fara með rann-
sókn á áhrifum Rússa á forsetakosn-
ingarnar. thorgnyr@frettabladid.is
Trump segir soninn opinn og saklausan
Bandaríkjaforseti segir son sinn verða fyrir barðinu á nornaveiðum. Trump yngri sagði föður sínum ekki frá fundi sem er sagður hluti
af stuðningi Rússlandsstjórnar við framboð föður hans. Demókratar saka Trump yngri um landráð á meðan Repúblikanar þegja.
Donald Trump yngri hefur orðið fyrir barðinu á miklum nornaveiðum að sögn föður hans. NorDicphoTos/AFp
Þetta eru mestu
nornaveiðar í
stjórnmálasögunni. Sorglegt!
Donald Trump, for-
seti Bandaríkjanna
1 3 . j ú l í 2 0 1 7 F i M M T U d a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
1
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
F
-3
7
4
8
1
D
4
F
-3
6
0
C
1
D
4
F
-3
4
D
0
1
D
4
F
-3
3
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K