Fréttablaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 42
TónlisT söngtónleikar HHHHH Tónlist eftir Jórunni Viðar, Leonard Bernstein, Claudio Monteverdi, Leo Delibes og fleiri. Flytjendur: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Dísella Lárus- dóttir. Guja Sandholt, Francisco Javier Jáuregui, Hrönn Þráinsdóttir og börn undir stjórn Þórdísar H. Kristjánsdóttur og Hildar G. Þór- hallsdóttur. Hafnarborg Sunnudaginn 9. júlí Ein fyndnasta aría óperubók­ menntanna er Glitter and be Gay eftir Leonard Bernstein. Þar er gert grín að nokkrum þekktum aríum, sérstaklega þeirri sem kennd er við næturdrottninguna úr Töfra­ flautunni eftir Mozart. Arían er gríðarlega erfið og flokkast undir svokallaðan koloratúr, sem ein­ kennist af hröðum tónahlaupum, trillum og stökkum upp eða niður tónstigann. Á lokatónleikum Söng­ hátíðar í Hafnarborg á sunnudaginn söng Dísella Lárusdóttir m.a. þessa aríu og gerði það prýðilega. Einn og einn tónn hefði að vísu mátt vera nákvæmari, en í heild var arían kröftug og glæsileg, þétt og hnitmið­ uð. Tónlistin krefst ýktra leikrænna tilburða, og Dísella náði þeim með afburðum vel, geiflaði sig og gretti, sem skilaði sér í mikilli kátínu tón­ leikagesta. Önnur söngkona, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, var listrænn stjórnandi hátíðarinn­ ar. Þetta var í fyrsta sinn sem hátíðin var haldin. Áður hefur Guðrún Jóhanna stjórnað Kammerhátíðinni á Kirkjubæjarklaustri og gert það af röggsemi og fagmennsku. Hátíðin nú samanstóð af tónleikum þekktra söngvara, en einnig fóru fram söng­ námskeið fyrir leikmenn og líka fyrir börn. Námskeiðin fyrir börnin voru haldin af Þórdísi Heiðu Krist­ jánsdóttur og Hildi Guðnýju Guð­ mundsdóttur og var afraksturinn sýndur á tónleikunum. Börnin sungu Óðinn til gleðinnar úr níundu sinfóníu Beethovens auk annarra laga. Þau munu upphaflega hafa haldið að Óðurinn væri þjóð­ söngur Íslendinga. Sá misskilningur varð vegna þess að alþekkt stefið var leikið aftur og aftur í tengslum við EM í sjónvarpinu í fyrra. Söngur barnanna var bjartur og fallegur, þrunginn lífi og einlægni. Guðrún Jóhanna kom fram í nokkrum atriðum á tónleikunum. Hún söng fyrst nokkur íslensk þjóðlög, og gerði það af viðeigandi tilfinningu. Önnur íslensk lög fylgdu í kjölfarið, en útlensk tón­ list eftir hlé var enn öflugri í með­ förum hennar, bæði Pur ti miro úr Krýningu Poppeu eftir Monteverdi og Blómadúettinn frægi úr Lakmé eftir Delibes. Þar naut falleg röddin sín til fulls. Dísella söng með Guðrúnu Jóhönnu síðarnefnda dúettinn en Guja Sandholt þann fyrri. Guja söng líka af aðdáunarverðum krafti og tæknilegu öryggi nokkur lög eftir Jórunni Viðar. Síðasta lagið, Vökuró, sem Björk Guðmundsdóttir gerði heimsfrægt, var einkar hrífandi í meðförum Guju. Það var innilegt, brothætt og angurvært; yfir því var draumkennd, nostalgísk stemning sem var afar sannfærandi. Hrönn Þráinsdóttir lék skýrt og af yfirvegun á píanóið. Eiginmaður Guðrúnar Jóhönnu, Francisco Jav­ ier Jáuregui, spilaði líka ágætlega á gítar, m.a. í íslensku þjóðlögunum. Þau voru einmitt útsett af honum af miklu næmi og smekkvísi. Þetta var skemmtileg stund. Jónas Sen niðursTaða: Glæsilegir tónleikar með mögnuðum söng og flottri tónlist. Söngkonan geiflaði sig og gretti Guðrún Jóhanna var listrænn stjórn- andi tónleikanna og kom líka fram í nokkrum atriðum. Fréttablaðið/anton brink 365.ISSÍMI 1817 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2017 KL. 19:15 EXTRA VÖLLURINN MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2017 KL. 19:15 ÓLAFSVÍKURVÖLLUR SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2017 KL. 19:15 SAMSUNG VÖLLURINN *miðað við 12 mánaða bindingu Tryggðu þér áskrift á aðeins 399 kr. á dag 11.990 kr. á mánuð i * VINNUR ÞÚ MIÐA Á LEIKINN? ÁSKRIFENDUR SPORTPAKKANS EIGA NÚ MÖGULEIKA Á ÞVÍ AÐ FARA FRÍTT Á VÖLLINN! VERÐUR ÞÚ Í HÓPI ÞEIRRA HEPPNU Í NÆSTU UMFERÐ? „Það sem verður spilað eftir mig í kvöld eru lag og eftirmáli úr leikriti sem verður frumsýnt hér á landi í október í haust undir heitinu Annarleikur,“ segir Atli Ingólfsson tónskáld um framlag sitt til tónleika Caput tríós í Iðnó í kvöld sem hefj­ ast klukkan 20.30. Hann segir lögin litlar kaldhæðnar melódíur og mjög leikhúslegar. „Ég vona að fólk hafi gaman af að heyra þær, sjálfur verð ég ekki viðstaddur því ég er fyrir norðan.“ Í ljós kemur að hann er leiðsögumaður ítalsks ferðahóps og staddur við Mývatn þegar hann svarar símanum. „Ég tek tvo hringi um landið á sumri. Það er ágætt, samt er skemmtilegra að semja,“ viðurkennir hann. Segir þó tímann til tónsmíða hafa minnkað eftir að hann gerðist prófessor við Lista­ háskólann. Lögin tvö sem Atli nefndi í upp­ hafi eru úr leiksýningu sem frum­ flutt var úti í Svíþjóð 2012. Hann kveðst hafa samið þrjú tónleikhús­ verk sem sett hafi verið upp í Sví­ þjóð, Annarleikur verði það fyrsta hér á landi. „En ég er nýbúinn að útsetja lögin fyrir þá hljóðfæra­ skipan sem félagarnir eru með,“ segir hann og á þar við Daníel Þorsteinsson píanóleikara, Sigurð Halldórsson sellóleikara og Guðna Franzson klarínettuleikara sem koma fram í Iðnó í kvöld og lofa að leika áheyrilega og sumarlega efnisskrá. Þessi sama þrenning hélt tónleika í Katuaq, listamiðstöðinni í Nuuk á Grænlandi, í nóvember síðastliðnum. Aðgangseyrir er 2.500 krónur. gun@frettabladid.is Litlar kaldhæðnar melódíur Caput tríó frumflytur á Íslandi tvö lög eftir Atla Ingólfsson tónskáld í kvöld, á Arctic Concerts tónleikaröðinni í Iðnó. Það er ágætt að leiðsegja en skemmtilegra að semja, segir tónskáldið atli. Fréttablaðið/ PJetur 1 3 . j ú l í 2 0 1 7 F i M M T u D a G u r34 M e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð 1 3 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 4 F -1 9 A 8 1 D 4 F -1 8 6 C 1 D 4 F -1 7 3 0 1 D 4 F -1 5 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.