Fréttablaðið - 15.07.2017, Page 6

Fréttablaðið - 15.07.2017, Page 6
samgöngur Akstursbann hópbif­ reiða og breyttra fjallabíla tók gildi í dag. Um 90 athugasemdir bárust þegar tillagan var lögð fram í byrjun árs og voru langflestir á því að ekki væri nógu langt gengið. Hverfisráð Hlíða hefur þannig óskað eftir að þegar ákvörðunin um akstursbannið kemur til endurskoð­ unar í haust verði skoðað að fara í sams konar fyrirkomulag um rútu­ bann inn í hverfi í Hlíðum, Holtum og Norðurmýri og að skoðað verði að koma upp sleppistæðum á völd­ um stöðum. Margrét M. Norðdahl, formaður hverfisráðsins, segir að ferða­ mönnum hafi fylgt margt jákvætt en hún hefur áhyggjur af vaxandi umferð. „Ferðamannastraumur­ inn er byrjaður að teygja sig inn í hverfið okkar og honum hefur fylgt margt jákvætt eins og uppbygging á verslun og þjónustu en um leið er mikil aukning á umferð. Við í hverf­ isráðinu viljum að það verði kannað að koma upp fleiri sleppi stæðum en í þeim radíus sem er búið að leggja upp með.“ Þverpólitísk samstaða var um ákvörðunina og var unnið með samtökum ferðaþjónustunnar að henni. Alls eru þrettán sleppistæði í miðborginni og mega rútur vera að hámarki fimm mínútur á þeim. Er markmiðið með stæðunum að vernda íbúabyggð fyrir óþarfa umferð en um leið auka þjónustu við rútufyrirtækin og gististaði innan þeirra svæða þar sem tak­ markanir eru á akstri stórra bíla. benediktboas@365.is Ofurjeppar og rútur útlæg úr miðborginni Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarð­ stjóri hjá umferðardeild lögregl­ unnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis um bannið að akstur hópbifreiða á ákveðnum svæðum hafi valdið miklum óþægindum en bílarnir hafi átt það til að festast í þröngum götum og af þeim hafi stafað mikill hávaði, oft um miðjar nætur. Hann segir viðurlög við brotum á bann­ inu verða í samræmi við umferðar­ lög. Ökumönnum beri að virða viðeigandi merkingar en umferðar­ merki ættu að greina skilmerkilega frá banninu á viðeigandi stöðum. „Samkvæmt reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna umferðar­ lagabrota er 5.000 króna sekt við því að virða ekki þessi merki sem um er rætt,“ skrifar Guðbrandur. Stjórnarmaður í FETAR, Félagi eigenda torfæruökutækja í atvinnurekstri, hefur gagnrýnt ákvörðunina. Út sumarið munu svona bílar ekki sjást í miðborginni. Íbúar fagna og telja jafnvel ekki nógu langt gengið. FRéTTAblAðið/EyþóR Í dag tekur gildi bann við akstri hópbifreiða og fjallajeppa um mið- borgina. Íbúar fagna og kallað er eftir harðari aðgerðum víðar í borg- inni. En þeir sem aka bílunum hafa gagnrýnt ákvörðun borgarráðs. Hverfisráð Hlíða hefur óskað eftir að þegar ákvörð- unin um akstursbannið kemur til endurskoðunar verði rútur einnig bannaðar á fleiri stöðum. Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 83 0 46 Frá kr. 159.995 m/dagsferð og kveðjuhófi Netverð á mann frá kr. 159.995 m.v. 2 í íbúð. Innifalið: Flug, skattar, innrituð taska, gisting, akstur til og frá flugvelli, jóga, hugleiðsla og vinnustofa, dagsferðin Helgistaðir & Elafonisi, kvöldverður án drykkja á kveðjuhófi. Heimsferðir bjóða upp á jógaferð til hinnar grísku eyju Krítar með Auði Bjarnadóttur jógakennara. Í þessari ferð gefst tækifæri á að rækta líkama og sál við góðar aðstæður í sólinni á þessari dásamlegu eyju. Krít lætur engan ósnortinn með fegurð sinni, menningu, góðum mat og yndislegum eyjaskeggjum! Iðkun á hinni ævafornu hefð jóga nýtur sífellt aukinna vinsælda. Við munum njóta lífsins við ástundun jóga og slökunar á milli þess sem við leyfum sólargeislunum að leika við líkamann eða skoðum okkur um á þessari fallegu eyju; hvort sem er til að upplifa náttúruna eða fræðast um sögu og menningu. Jógakennari: Auður Bjarnadóttur Í ferðinni verður boðið uppá morgunjóga, síðdegisjóga/ hugleiðslu ásamt kvöldhugleiðslu á fullu tungli. Þá verður boðið upp á fyrirlestur um jógafræðin og vinnustofu um leiðir til að finna vellíðan og jafnvægi í daglegu lífi. Jafnframt verður farið í dagsferðina Helgistaðir & Elafonisi sem er innifalin í ferðinni en unnt er að bóka á Krít almennu kynnisferðirnar Hjarta Chania, Samariaglúfrið og Santorini. Auður Bjarnadóttir, sem rekur Jógasetrið, mun bjóða upp á fjölbreytt jóga, hugleiðslu og slökun undir berum himni. Auður hefur kennt jóga síðan árið 2000 og státar af mörgum kennaraprófum í jóga, þ.á.m. Hatha/Ashtanga- jóga, Kundalini-jóga ásamt Yoga Nidra og Yoga Therapíu. Auður elskar að kenna en líka að læra og lítur á sig sem eilífan nemanda í jóga, og að lifa lífinu lifandi. Krít er afar sjarmerandi staður fyrir ferð sem þessa, enda er eyjan þekkt fyrir náttúrfegurð og kyrrð. Eyjan státar af fjölbreyttum og fallegum strandlengjum, kristaltærum sjó og stórkostlegu fjalllendi. Dvalið verður á íbúðahótelunum Omega Apartments 3* og Toxo Apartments 3* sem bæði eru staðsett á/við Platanias svæðið. JÓGA á Krít 28. ágúst í 10 næturFrá kr.159.995 m/dagsferð og kveðjuhófi – fáðu meira út úr fríinu HELGISTAÐIR & ELAFONISI SANTORINI 595 1000 heimsferdir.is Frakkland „Ekkert mun nokkurn tímann aðskilja okkur,“ sagði Emm­ anuel Macron, forseti Frakklands, við blaðamenn í gær eftir að hafa sótt hátíðahöld á Bastilludeginum með Donald Trump, forseta Bandaríkj­ anna. Macron var þó ekki að vísa til vinasambands síns við Trump heldur sambands ríkja þeirra. Forsetarnir sátu saman og klöpp­ uðu ákaft þegar 63 flugvélar, 29 þyrlur, 241 hestur og 3.720 hermenn fóru fram hjá þeim á hersýningu á Champs­Elysées í París. Þakkaði Macron Bandaríkjunum sérstaklega fyrir þátttöku þeirra í fyrri heimsstyrjöldinni en í gær voru hundrað ár liðin frá því að Bandaríkja­ menn hófu þátttöku í stríðinu. Af því tilefni gengu bandarískir hermenn fremstir í flokki, sumir hverjir klæddir í búninga frá því í fyrri heimsstyrjöld. Ljóst er að forsetana tvo greinir á um margt. Til að mynda studdi Trump mótframbjóðanda Macrons, Marine Le Pen, dyggilega í frönsku forsetakosningunum. Þá hefur Macron hæðst að slagorði forseta­ framboðs Trumps, „Gerum Banda­ ríkin glæst á ný“ og notað slagorðið „Gerum hnöttinn glæstan á ný“ í kjölfar þess að Trump tilkynnti um úrsögn Bandaríkjanna úr Parísar­ samkomulaginu. Hins vegar virtist samband þeirra hafa batnað í gær. Sáust þeir spjalla saman nær linnulaust öll hátíðar­ höldin og tísti Trump því að það hefði verið mikill heiður að hafa fengið að vera fulltrúi Bandaríkjanna á hátíðarhöldunum. Óskaði hann Macron jafnframt til hamingju og sagði samband ríkjanna aldrei hafa verið betra. – þea Trump heimsótti Macron þessir harðduglegu hestar og knappar tóku þátt í sýningunni. NoRdicphoToS/AFp sjávarútvegur Þörf er á að endur­ skoða reiknireglu um útreikning veiðigjalda sem hefur verið í gildi síðustu þrjú ár, að mati Heið­ rúnar Lindar Marteinsdóttur, fram­ kvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Ný reglugerð um veiðigjald fyrir komandi fiskiveiðiár var birt í fyrra­ dag. Samkvæmt henni eiga veiðigjöld að skila allt að ellefu milljörðum í ríkiskassann. Það er sex milljarða hækkun milli ára. Við útreikning veiðigjalda 2017/2018 er miðað við afkomu greinarinnar árið 2015 sem var mjög góð. „Við höfum talað fyrir því að það sé miðað við ár sem er þá nær í tíma. Það eykur auðvitað bara óvissu þegar þú ert að gera áætlanir að það sé verið að reikna veiðigjöld tvö ár aftur í tímann,“ segir Heiðrún. Þetta var síðasta árið sem reiknireglan var í gildi. Undir þetta tekur Ægir Páll Frið­ bertsson, framkvæmdastjóri Brims. „Þetta byggist á gömlum tölum og kemur sér þess vegna mjög illa þegar sveiflur eru miklar í greininni.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra segir að á meðan sáttanefnd skoði veiðigjöld sjái hún ekki fram á miklar breyting­ ar. En hugsanlega megi flýta skilum til skattsins svo Hagstofan geti útbúið gögnin fyrr. „Þannig væri hægt að flýta uppgjörinu um eitt ár.“ – sg Kallað eftir breyttri reiknireglu Aksturinn veldur óþægindum 1 5 . j ú l í 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 5 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 2 F B 1 0 4 s _ P 0 9 9 K - n ý. p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 2 -D 7 8 8 1 D 5 2 -D 6 4 C 1 D 5 2 -D 5 1 0 1 D 5 2 -D 3 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.