Fréttablaðið - 15.07.2017, Qupperneq 34
Viggó Magnús-
son er stoltur
pabbi leik-
manns númer
fjögur, Glódísar
Perlu Viggós-
dóttur.
Hér hampar Glódís, fyrirliði fjórða
flokks HK, bikar fyrir sigur á Íslands-
móti kvenna innanhúss árið 2006.
Ósvikin gleði á Pæjumóti 2008.
Glódís Perla Viggósdóttir knattspyrnukona sýnir tilþrif á Símamótinu 2008.
Fótboltinn kom inn í lífið þegar fjölskyldan flutti til Hor-sens í Danmörku en þá var
miðbarnið, Glódís, átta ára. „Við
settum þær systurnar á námskeið
í júdó en krakkarnir í skólanum
voru mikið í boltanum, handbolta
á veturna og fótbolta á sumrin, og
hún prófaði að fara á æfingu með
vinkonum sínum,“ segir Viggó
og rifjar upp hvernig Glódís fékk
fyrstu skóna sína. „Þetta bar allt
frekar brátt að og það vildi svo
vel til að nágrannar okkar voru
mikið fótboltafólk og áttu stelpu
sem var aðeins eldri en Glódís. Svo
þegar hún var að byrja þá labbaði
ég yfir í næsta hús og spurði hvort
þau ættu nokkuð skó sem þau
gætu lánað okkur, svona á meðan
hún væri að prófa því við vildum
ekki fara út í stórar fjárfestingar
ef henni myndi svo ekki líka við
þetta. Það hittist svo á að þau voru
nýbúin að henda mjög fínum
Adidas Predator-skóm sem voru
orðnir of litlir á dóttur þeirra svo
þeir voru veiddir upp úr ruslinu og
það voru fyrstu skórnir sem Glódís
spilaði í.“ Glódís var svo næstu tvö
árin á fullu í bæði handbolta og
fótbolta og þegar fjölskyldan flutti
aftur til Íslands var farið beint út á
völl. „Um leið og við komum heim
aftur þegar hún var tíu ára röltum
við saman út í Fagralund, íþrótta-
hús HK, þar sem var mjög vel tekið
á móti þeim systrum og Glódís
spilaði með HK þangað til hún var
sextán ára.“
Pabbahjartað slær hraðar
foreldrastarfi HK, varð formaður í
barna- og unglingaráði og seinna
virkur í samstarf HK og Víkings og
hefur verið síðan. Hann var ekkert
í íþróttum sem barn og heldur ekki
móðir Glódísar. „Þetta er hálfgerð
stökkbreyting,“ segir hann og hlær
við. Systur Glódísar æfðu báðar um
tíma. „Elsta dóttir okkar fór upp
í annan flokk hjá Víkingi en hún
varð fyrir meiðslum og hætti þess
vegna og sú yngri hætti líka frekar
snemma.“ Glódís þurfti að lokum
að velja milli handboltans og fót-
boltans. „Þegar var búið að velja
hana í bæði U16 og U19 landslið-
in í báðum íþróttum þurfti hún
að fara að velja því þetta var
farið að rekast á. Og hún valdi
fótboltann. Ég veit ekki hvað réð
þeirri ákvörðun en það spilaði
inn í að U17 liðið fór mjög langt
í Evrópukeppninni 2011, komst
í úrslitakeppni á Evrópumótinu
og hún var í þeim hópi sem fór út
þá. Svo skemmdi ekki fyrir að KSÍ
sá mjög vel um sín landslið og
við fjölskyldan þurftum ekki
að fara í fjáröflun eða leggja
út stórar fjárhæðir.“
Ánægð atvinnukona
2011 flutti fjölskyldan
aftur til Danmerkur og
Glódís hóf þá æfingar
með Horsens SIK. „Hún
var ekki ánægð með að
flytja aftur út enda voru
allir vinirnir hérna heima
og það var ákveðið bráð-
lega að þær mæðgur færu
Hálfgerð stökkbreyting
Lífið snerist um HK á þessum árum
„Þær vinkonurnar gengu um í
HK-búningum og það var meira að
segja erfitt að fá hana til að fermast
í einhverju öðru en HK-búningi. Frá
því við flytjum heim og til dagsins
í dag er boltinn hennar aðalmál.“
Á sama tíma hóf Viggó þátttöku í
heim aftur,“ segir Viggó. Um svipað
leyti bauðst Glódísi að leika með
Stjörnunni. „Og eftir tveggja ára far-
sælan feril þar hafði umboðsmaður
samband sem spurði hvort Glódís
hefði ekki áhuga á verða atvinnu-
kona í fótbolta og okkur leist ágæt-
lega á það.“ Skömmu síðar fékk
Glódís tilboð sem hún þurfti því
miður að hafna enda var hún samn-
ingsbundin Stjörnunni en þegar
sá samningur var útrunninn var
Glódís Perla fékk
fyrstu fótbolta
skóna beint upp
úr ruslinu en er nú
ómissandi leik
maður landsliðs
ins. Pabbi hennar,
Viggó Magnús
son, hlakkar til EM
en segist oft vera
stressaður fyrir
stóra leiki
umboðsmaðurinn búinn að tengja
hana við Eskilstuna og úr varð að
hún réð sig þangað. „Það var ekkert
auðvelt að sleppa henni út,“ viður-
kennir pabbinn. „Hún hefur alltaf
verið sterk og sjálfstæð en hún
verður nú samt alltaf litla stelpan
manns. Þetta var 2014 og þegar hún
fór var búið að græja íbúð sem hún
átti að leigja með liðsfélaga sínum
frá Svíþjóð. Svo þegar hún kom var
íbúðin langt frá æfingasvæðinu og
afskekkt og hún var ekkert sérstak-
lega kát. Sem gerði það að verkum
að það var erfitt að skilja hana eftir.
En það rættist úr og hún er mjög
ánægð núna,“ segir Viggó og bætir
við: „Það hefur alltaf gengið vel hjá
henni að falla inn í hóp og dvölin í
Eskilstuna hefur verið mikið ævin-
týri og þótt þær hafi aldrei unnið
titil þá hefur munað litlu.“
Pabbar verða mjög stressaðir
En hvernig skyldi pöbbum líða
þegar EM nálgast? „Pabbar verða
mjög stressaðir,“ segir Viggó
brosandi, „en mjög spenntir líka.
Ég gerði þau mistök að fara ekki á
EM þegar U17 liðið fór til Frakk-
lands, það var aðeins of stór biti
fyrir okkur þá en ég sé alltaf eftir
því. Og ég sór þá að ég myndi
aldrei láta þetta gerast aftur. Svo ég
fór með henni á fyrsta stórmótið
hennar í Svíþjóð og það var æðis-
legt. En hjartað barðist ansi hratt í
brjóstinu á manni þegar hún kom
inn á í fyrsta leiknum á móti Noregi
og síðan var hún í byrjunarliði á
móti Þýskalandi og þá var hún bara
17 ára. Hún svo sem stóð það af sér
og gekk vel. Í Svíþjóð vorum við
30-50 manna hópur sem ætlaði á
alla leikina og svo slæddist fólk inn
svo þetta voru kannski 100 manns í
allt. En núna er búið að selja 10.000
miða og það er allt öðruvísi til-
finning. Meiri meðbyr en líka meiri
væntingar og pressan meiri.“ Fjöl-
skyldan fer út 16. júlí og ætlar að
sjálfsögðu á alla leikina. „Sem pabbi
er ég náttúrlega stoltur af stelpunni
en ég er líka ofsalega stoltur af
liðinu og mér finnst æðislegt
hvað kvennaknattspyrnan er a
mikilli siglingu núna. Stelpurnar
hafa líka sýnt að þær eru virki-
lega þess virði að fylgjast með
þeim. Ég held að það fari ekkert
minni hrollur um mig núna en
þegar hún kom inn á í fyrsta
mótinu sínu.“
brynhildur@365.is
12 ÁfraM ÍSland 1 5 . j ú l í 2 0 1 7 l aU G a r daG U r
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
2
-F
F
0
8
1
D
5
2
-F
D
C
C
1
D
5
2
-F
C
9
0
1
D
5
2
-F
B
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K