Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Page 15
fatlaðra á Akureyri, til að koma upp end-
urhæfingamiðstöð. Vígsluhátíð þessarar
stofnunar var haldin þann 11. október
1970, en við höfðum samþykkt að halda
aðstoð áfram eins og efni og ástæður leyfa.
T. d. var samþykkt fyrir stuttu að gefa
sérstakan bekk til meðhöndlunar á bak-
veiku fólki. Þá hafa klúbbfélagar skipzt
á að aka öldruðu fólki til kirkju sam-
kvæmt óskum þess. Hefur þetta mælzt
mjög vel fyrir og hafa bæði mörg og hlý
þakklætisorð og jafnvel peningar borizt
okkur af þessu tilefni.
Nokkrar ferðir voru farnar af bæði
lærðum og leikum til að hjálpa við að inn-
rétta rannsóknarstofu að Víkurbakka, en
rannsóknarstöð þessi hefur hlotið nafnið
Katla og verið getið í fjölmiðlum. Er hér
um algjört áhugamannaframtak að ræða.
Þá má einnig nefna að smá jólaglaðn-
ingur var færður geðveikum, sem dvelja
í sérstakri deild sjúkrahússins á Akureyri.
Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Kaldbaks
á Akureyri sendi ég beztu kveðjur öllum
Kiwanisfélögum í íslenzka umdæminu,
með þökk fyrir alla viðkynningu.
Ritari Kaldbaks.
KIWANIS-FRÉTTIR
Útgefandi:
ÍSLENZKA UMDÆMIÐ
Ritstjóri:
EYJÓLFUR SIGURÐSSON
Prentun:
HAGPRENT HF.
Sjúkrahúsi
Akraness
gefin tæki
Svæðisþing Eddu var haldið á Akranesi
3.—4. sept., sem flestum er í fersku minni
og sá Þyrill um undirbúning. Laugardag-
inn 4. sept. 1971 boðaði stjórn Þyrils eig-
inkonur félaga á fund og kynnti þar Lo-
vísa Marinósdóttir starfsemi Sinawik í
Reykjavík. Arangur þessa fundar varð
stofnun Sinawik á Akranesi þann 7. sept.
Formaður er Ragnhildur Theódórsdóttir.
A síðasta starfsári var ákveðið m. a. að
gefa Sjúkrahúsi Akraness eitt rúm fyrir
hjartasjúklinga og súrefniskassa fyrir
böm, sem fæðast fyrir tímann. Súrefnis-
kassinn er sérstaklega gerður til þess að
flytja börnin í honum, en þau eru ætíð
flutt til Reykjavíkur.
Tæki þessi kosta ca. kr. 165.000, og voru
afhent föstudagsinn 29. okt. 1971.
Konukvöld var laugardaginn 30. okt.
Stjórnarskipti fóru fram 4. okt. og er
nýja stjórnin þannig skipuð:
Forseti: Ásgeir Guðmundsson, kjörfor-
seti: Guðmundur Vésteinsson, ritari: Ing-
ólfur A. Steindórsson, erl. ritari: Ásmund-
ur Ólafsson, féhirðir: Pétur Elíasson,
gjaldkeri: Torben Asp., meðstjórnendur:
Ársæll Jónsson, Guðjón Elíasson, Ólafur
Theódórsson.
K-FRÉTTIR — 15