Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Síða 21
Ólafur J. Einarsson, svccOisstjóri Eddu, rœðir við verðandi forseta.
og þeir sem koma til með að gegna ýmsum
nefndarstörfum, hafi orðið nokkurs fróð-
ari, enda kom það fram í skýrslum leið-
beinendanna að áhugi þátttakenda var
mikill.
Hinn nýkjörni svæðisstjóri Eddu flutti
því næst ávarp og ræddi um framtíð svæð-
isins. Hann þakkaði fráfarandi svæðis-
stjóm og þá sérstaklega svæðisstjóra, fyrir
vel unnin störf og kvaðst vænta góðs sam-
starfs við klúbbana á næsta starfstíma-
bili. Auk Ólafs eiga sæti í svæðisstjórn-
inni Þórir Hall (Hekla) ritari, Eyjólfur
Hermannsson (Hekla) gjaldkeri og Ólafur
Jónsson (Þyrill).
Um kvöldið var svo „Gale Dinner“ í
Hótel Akranes, sem hófst með „Skaga-
skál“, en undir borðhaldi voru ýmsar
heimatilbúnar „kúnstir“ í frammi hafðar
við mikinn fögnuð allra viðstaddra og að
lokum var stiginn dans fram eftir nóttu.
Lauk þar með vel undirbúnu, skemmti-
legu og án alls efa árangursríku svæðis-
þingi Eddu. Þ. H.
„Skál“ á Gala-dinner á svceðisþingi Eddu.
K-FRÉTTIR — 21