Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Side 6
Séð yfir ráðstefnusalinn í Dallas þar sem ca 18.000 manns voru viðstaddir.
62. drsþing Kiwanis International
Ársþing Kiwanis International saman-
standa venjulega af fimmtán til tuttugu
þúsund manns. Þing þessi eru því, á vissan
máta, fjölskyldusamkomur þar sem til við-
bótar hinu almennu þingstörfum er boðið
upp á skipulagða afþreyingar efnisskrá fyr-
ir konur og böm Kiwanismanna. Á þessu
þingi, sem var hið fjölmennasta sem haldið
hefur verið fram til þessa, vom um sjö
þúsund þingfulltrúar. Frá EvTÓpu mættu
þó aðeins fjórir fulltrúar, þar af tveir frá
íslandi, Bjami Magnússon, umdæmisstjóri
og Bjami B. Ásgeirsson, Evrópuforseti. Af
þeim lagabreytingum, sem fram voru lagð-
ar voru allar samþykktar nema hækkun
vígslugjalda klúbbanna og tillagan um að
leyfa konum aðgang að Kiwanishreyfing-
unni, en sú tillaga var felld með 85% at-
kvæða.
Bjarni B. Ásgeirsson, forseti KIE ávarp-
aði þingið og afhenti viðurkenningu frá
KIE til Kiwanis International, eins og
ákveðið hafði verið á fundi Evrópustjórnar
í London 10. júní síðastliðinn. Hér fer á
eftir í lauslegri þýðingu ávarp það er hann
flutti áðumefndu þingi.
KveSjur frá Evrópusambandi Kiwanis,
fluttar af Bjarna B. Ásgeirssyni, forseta
Evrópusambands Kiwanis á heimsþingi í
Dallas, Texasríki, mánudaginn 27. júní
1977.
Herra forseti Stan, háttvirtir gestir,
frúr, Kiwanisbræður. Það er mér mikill
heiður og ánægja, sem forseti Evrópusam-
bandi Kiwanis, að flytja ykkur kveðjur nær
níu þúsund Kiwanismanna í Evrópu á
þessu mikla þingi hér í Dallas, í stjörnu-
K-FRÉTTIR
6