Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Qupperneq 20
hverju umdæmi og í því voru umdæmis-
stjórar einnig, það er að segja þetta er
sama fyrirkomulag og við nú höfum í
Evrópuráði Kiwanis. Tveir þessara þriggja
funda voru sóttir af 16 til 17 mönnum og
voru haldnir á þrem ólíkum tungumálum.
Miðfundurinn var einungis fyrir þá, sem
í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
starfa, þekkt í dag sem Evrópustjóm Kiw-
anis og á fundum þeirra hefur verið gerð
til með að nota einungis eitt tungumál,
enskuna.
Augljóslega hefur miklum tíma verið eytt
á hverjum fundi í þýðingar. Árangur þess er
sá, að afrakstur starfsins var ekki í hlutfalli
við tímann sem eytt var til starfsins. Und-
anfarin tvö ár hefur starf Evrópustjómar
verið unnið í samræmi við núverandi stofn-
skrá og lög Evrópusambandsins og síðast-
liðið ár var ákveðið, að Evrópuráð Kiwanis
haldi aðeins fundi meðan á Evrópuþingi
stendur. Reynslan hefur sýnt, að upphaf-
lega ákvörðunin frá 1968, að Evrópuráð
samanstandi af þrem mönnum frá hverju
umdæmi, er óhentugt fyrirkomulag.
Reynslan hefur einnig sýnt okkur, að það
er ráðlegt fyrir framtíðar forseta Evrópu-
sambandsins, að hafa minnst þriggja ára
reynslu við störf í Evrópustjóm, áður en
þeir taka við embætti sínu. Stjóm Evrópu-
sambandsins er engu ónauðsynlegri en
stjórn klúbbs eða umdæma. Innan stjómar
Evrópusambandsins er nauðsyn fyrir alla,
að skilja vel hugsunarhátt Kiwanismanna
frá mörgum mismunandi umdæmum.
Evrópa er margskipt eftir viðhorfum, venj-
um og menningu þjóðanna sem álfuna
byggja.
Evrópustjóm ákvað þetta starfsár, að
útnefna ráðgjafa fyrir hvert umdæmi. Þess-
ir ráðgjafar em allir í Evrópustjóm. Þessi
ákvörðun átti að gefa þeim kost á að vinna
með umdæmisstjórnum, öðmm en í þeirra
eigin umdæmi, til þess að koma á betra
sambandi og samvinnu milli Evrópustjórn-
ar og umdæmisstjómanna. Ég vonast til
þess að þessi ákvörðun reynist mikilvæg
í framtíðarstörfum Kiwanishreyfingarinnar.
Allir viljum við sameinaða Evrópu inn-
an Kiwanis og við eigum enga betri leið
til að ná þessu markmiði en þá, að kjósa
alltaf reyndustu mennina frá umdæmun-
um í Evrópustjóm, burt séð frá því hvaða
hluta umdæmis þeir kunna að vera frá
og þá ekki síður með því, að gefa þeim tæki-
færi til þess að kynnast að fullnustu störf-
um Evrópusambandsins, svo að þeir geti
starfað sem virkir byggjendur hreyfingar-
innar innan Evrópustjómarinnar. Til þess
að þetta sé mögulegt, verða þessir full-
trúar að vera kosnir til starfa sinna til
meira en eins eða tveggja ára.
Starfsáætlun B, sem stofnað var til við
byrjun þessa starfsárs, hefur nú verið lokið.
Þátttaka klúbbanna í FYRSTA ÞÆTTI
var nokkuð góð, eða 155 klúbbar, sem eru
54% þeirra, sem svömðu spumingunum.
í ÖÐRUM ÞÆTTI tóku þátt 125 klúbb-
ar, eða 42% og í ÞRIÐJA ÞÆTTI tóku
þátt 109 klúbbar, eða 37°/°. Samkvæmt
niðurstöðum úr fyrsta þætti, virðist þátt-
taka félaga í klúbbstörfum vera góð. Sam-
kvæmt niðurstöðum úr þætti tvö kom í
ljós, að 68 af hundraði klúbba hafa haft
til heimsóknar ræðumenn, sem ræddu
byggðamálefni á þessu tímabili, 43% unnu
með æskunni, 60% unnu fyrir fatlaða, 58%
unnu fyrir aldraða og 33% unnu að öðr-
um verkefnum. 72% klúbbanna unnu að
fjáröflun og 44% unnu að þjónustustörf-
um, án fjáröflunar, en þátttaka félaga í
þessum störfum var mismunandi, frá 10%
til 100%. Tímabilið 1. október til 31. marr
1977 voru 135 byggðarlög heimsótt með
K-FRÉTTIR
20