Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Side 22

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Side 22
Kiwaniskveðskapur Allir Kiwanismenn kannast við þá lesn- ingu, sem svæðisstjórinn flytur nýjum em- bættismönnum á sjórnarskiptafundum í klúbbunum á haustin. Þessi lesning mun hafa verið sett saman á fyrstu starfsárum hreyfingarinnar hér á landi, og þá væntan- lega þýdd úr ensku eða skandinavisku, Jiví að í byrjun var ísland hluti Norden-um- dæmisins. Lesningin hefur síðan gengið frá einum svæðisstjóra til annars og eiga því embættismenn allra hérlendra Kiwanis- klúbba að vera settir inn í sín embætti samkvæmt sömu formúlunni. í lok svæðisstjómartíðar undirritaðs, starfsárið 1975—1976, riðlaðist svæðaskipt- ing Kiwanis á Islandi vemlega, og má segja, að gamla Eddusvæðið hafi skipst í tvö svæði, þ. e. Þórssvæðið í Reykjavík og nágrenni ásamt ísafirði og Eddusvæðið á Vesturlandi. Eitthvað mun unrirritaður hafa orðið seinn fyrir að koma stjórnar- skiptarullunni til verðandi svæðisstjóra hins nýja Eddusvæðis, Hjartar Þórarinssonar, þannig að þegar fyrsta stjómarskiptafund- inum kom, en hann mun hafa verið í Þyrli á Akranesi, hafði nýi svæðisstjórinn enga lesningu í höndunum. Ekki dó þó Hjörtur ráðalaus heldur útbjó sína eigin lesningu og hana í bundnu máli. Þar sem margir og líklega allflestir íslenskir Kiwanismenn hafa ekki heyrt þessa nýju lesningu Hjartar, er hún nú birt hér á eftir. Þorbjöm Karlsson Innsetningarstef nýrrar stjórnar eftir Hjört Þórarinsson. Skyldur embættismanna: Skyldum ykkar skal ég hérna skilin gera, ítarlega það á að vera eins og lögin með sér bera. Meðstjórnendur: Við leysum störfin léttar en í lögum stendur, að færa þau á fleiri hendur og finnum góða meðstjórnendur. Fráfarandi forseti: Fráfarandi forseti nú feginn andar en vertu þeim áfram innan handar, ef einhver nýliðanna strandar. Gjaldkeri: Gjöld innheimtir, gætir vel og gír ó tengir. Væntanlega vilja engir vera nefndir trassadrengir. Erlendur ritari: Erlend bréf, sem enginn skilur áttu að þýða, sist af öllu svar má bíða, sú er þrautin við að stríða. Féhirðir: Við fjárreiðurnar féhirðirinn frómur situr, með ávísanir enginn kritur. Á aðalfundi skýrslu flytur. 22 K-FRÉTTIR

x

Kiwanisfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.