Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 24
Fréttirfra Geysi
Hinn 10. des. 1975 var Kiwanisklúbb-
urinn Geysir stofnaður í Mosfellssveit.
Stofnfélagar voru 29.
Aðdragandi að stofnun þessa klúbbs var
sá, að hingað í sveit höfðu flust, á undan-
förnum árum mikill fjöldi góðra manna,
þótt svo að góðir menn hafi verið fyrir,
og komu þar með Kiwanismenn annars
staðar að af landinu.
Fyrsta forseta okkar, Sturla Þorgeirsson,
fengum við frá Vestmannaeyjum. Var
hann áður starfandi í Kiwanisklúbbnum
Helgafell. Fyrir hans atbeina og annarra
manna, náðist í 29 stofnfélaga.
Við byrjuðum á að sækja fundi hjá öðr-
um móðurklúbb okkar, Heklu. Við feng-
um þar smá innsýn í störf Kiwanis. Eftir
að haldnir höfðu verið 3 undirbúningsfund-
ir hér í sveit, voru allir pappírar komnir
erlendis frá, og kom þá umdæmisstjóri
Ásgeir Guðlaugsson, ásamt forseta Heklu,
Jóni K. Ólafssyni og forseta Nes, Jóni V.
Guðjónssyni og fleiri góðum gestum til að
ganga fullkomlega frá stofnun Geysis. Þá
fóru nokkrir félagar á 200. fund Nes og
var það mjög skemmtileg og fróðleg för
fyrir svona nýgræðinga eins og okkur.
Geysisfélagar tóku að sér sölu á jóla-
trjám fyrir jólin 1975, og var ákveðið að
styrkja björgunarsveitina Kyndil til kaupa
á talstöð í nýjan björgunarsveitarbíl. Þessi
jólatréssala gerði það mögulegt að stöðin
var keypt og er komin í bílinn. Aðrar
fjáraflanir voru ekki á því ári, enda varla
von, þar sem klúbburinn starfaði ekki nema
í tæpan mánuð á árinu.
Miklar umræður hafa verið um að fara
sér hægt af stað, og höfum við fengið
24
ábendingar um slíkt frá Kiwanisfélögum
úr öðrum klúbbum. En eftir því sem ég hef
best hlerað hjá styrktarnefnd, þá held ég
að slíkar ábendingar fari forgörðum að
töluverðu leyti.
Upp úr áramótunum 1975-1976, var
hafinn undirbúningur að vígslu klúbbsim
og fór hún fram í lok janúar við mikinn
fögnuð allra viðstaddra. Sem fullgildir
Kiwanisfélagar, fórum við að líta í kring-
um okkur eftir fleiri verkefnum til fjáröfl-
unar og niðurstaðan varð auglýsingarit
með símaskrá sveitarinnar og byggðakorti
af þéttbýliskjörnum hreppsins. Þetta rit var
kannski verkefni við vöxt, en það leystist
vonum framar og erum við Geysisfélagar
mjög stoltir af því.
I endaðan maí, var farið í ferð til Vest-
mannaeyja og Kiwanisklúbburinn Helga-
fell heimsóttur. Tókst sú ferð í alla staði
mjög vel. Eiga Helgafells-menn þakkir
skilið fyrir góðar móttökur og samveru-
stundir.
Mætingar á fundum i vetur hafa verið
frá 50 - 85%. Menn eru svona að átta sig
á hvað Kiwanis er og má búast við að
eitthvað þynnist stofnfélagatalan eftir fyrsta.
veturinn, en við erum samt bjartsýnir á
framhaldið.
Eftir rólegheit sumarins, var byrjað aft-
ur í september af miklum krafti. Stjórnar-
skipti fóru fram 6. október og þar með
hófst annað starfsár Kiwanisklúbbsins
Geysis. Nú var Geysir ekki lengur klúbbur
í mótun, hann var orðinn klúbbur í starfi.
Fyrsta verkefni nýju stjórnarinnar, var
að ganga frá dagskrá starfsársins. Var hún
tilbúin prentuð á stjómarskiptafundi. Fjár-
K-FRÉTTIR