Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Side 25
Örn Egilsson afhendir Birni Baldvinssyni fyrrv.
forseta, stjórnina á klúbbnum í október 1976.
hagsáætlun var tilbúin á fyrsta fundi ný-
kjörinnar stjórnar og ársgjald ákveðið
kr. 10.000,-
Fundir voru hjá Geysi sem fyrr, annan
hvern miðvikudag, og stjómarfundir með
formönnum nefnda, annan hvem sunnu-
dag.
A vetrinum var reynt að hafa smá fjöl-
breytni í starfi, með ræðumönnum, spila-
vist og skemmtunum. Haldinn var einn
fjölskyldufundur og mættu á hann um
hundrað manns. Er hann af mörgum tal-
inn eftirminnilegasti fundur vetrarins.
Heimsóknir til annarra kltibba voru
nokkrar, t. d. heimsóttum við Esju og
Nes og einstaka félagar sóttu heim marga
aðra klúbba. Til okkar komu i heimsókn
Esja, Nes og Jörfi.
K-FRÉTTIR
Sturla Þorgeirsson, fyrsti forseti Geysis að þjón-
ustustarfi fyrir klúbbinn.
Jólatréssala var aftur um þessi jól, og
einnig seldum við jólatrésgreinar.
Aftur var hafist hand um útgáfu á blað-
inu góða, og kom það út fyrst í júní.
Þau verkefni sem klúbburinn hefur stutt
með fjárframlagi og vinnu, eru dagheimili,
Ungmannafélagið Afturelding, Björgunar-
sveitin Kyndill, Iþróttahúsið, og farið var
með vistmenn á Reykjalundi í dagsferð.
Einn félagi Geysis, Sturla Þorgeirsson, tók
að sér kennslu á bridge, í nafni klúbbsins,
við Gagnfræðaskólann.
Góðir Kiwanisfélagar, það hefur verið
stiklað á stóru, það eitt og hálft ár, sem
Geysir hefur starfað. Við erum ánægðir
með þann stutta tíma, sem við höfum ver-
ið í hreyfingunni, og þökkum við þau góðu
kynni sem við höfum eignist vítt og breitt
um landið. Með Kiwaniskveðju.
25